Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 67
E
ftir að hafa verið frá áfengi í eitt
ár, árið 1982, var Gísla Stefánssyni
boðið að starfa sem áfengis- og
vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ. Síðan
þá hefur hann lengst af unnið hjá
SÁÁ, en einnig með skandinavíska alkóhólista
á Fitjum á Kjalarnesi, auk starfa við áfengis-
og vímuefnaráðgjöf í Svíþjóð í nokkur ár. Nú
starfar hann hjá SÁÁ í Von í Efstaleiti.
Eiginkonan tók fyrsta skrefið
Gísli var í óreglu frá átján ára aldri og um
þrítugsaldurinn var hann kominn í þrot með
sitt líf. „Síðustu árin voru mjög erfið. Ég frétti
af stofnun SÁÁ árið 1977 og hugsaði lengi um
það hvort ég ætti að leita til þangað en það var
ekki fyrr en besti vinur minn leitaði til þeirra
árið 1980 að ég ákvað að slá til. Ég sá á vini
mínum hvað meðferðin gerði honum gott og
hvernig líf hans gekk miklu betur. Ég varð svo-
lítið öfundsjúkur út í hann. Áður hafði konan
mín leitað til SÁÁ sem aðstandandi svo það
var hún sem tók fyrsta skrefið. Nokkrum mán-
uðum síðar fór ég svo í meðferð á Silungapoll.
Þá var Vogur ekki kominn til sögunnar,“ segir
Gísli sem á þessum tíma hafði ekki mikla trú
á lífi án áfengis en ákvað þó að prófa meðferð.
Löngunin til að hætta neyslu áfengis kom svo
í meðferðinni sem var meiriháttar opinberun
fyrir Gísla og hafði þau áhrif að líf hans breytt-
ist gjörsamlega. „Mér var sagt hvað ég gæti
gert til að laga líf mitt og fór eftir þeim ráð-
leggingum sem ég fékk og hefur gengið vel
síðan. Það má segja að sólin hafi komið upp
hjá mér þarna um þrítugt.“ Í fyrstu hafði Gísli
ekki mikla trú á því að meðferðin myndi hjálpa
þó raunin hafi orðið önnur.
Botna á grynnra vatni
Á árunum 1974 til 1975 varð þjóðarvakning á
Íslandi gagnvart áfengisvanda og margir sem
tjáðu sig opinberlega um að hafa leitað sér
hjálpar við áfengissýki. Gísli segir SÁÁ hafa
breytt viðhorfi almennings til áfengisvandans.
„Það er ekki lengur þessi skömm sem var til
staðar hér á árum áður. Vakningin hefur hald-
ist við og fleytt SÁÁ áfram og orðið til þess
að það hefur átt farsælan feril sem stofnun og
fyrirtæki.“
Þegar Gísli leitaði sér hjálpar á sínum tíma
var hann kominn í þrot eins og áður segir og
búinn að ná botninum. Hann telur þó að með
tímanum hafi SÁÁ tekist að lyfta þessum
botni þannig að í mörgum tilvikum botni fólk á
grynnra vatni í dag en áður og leiti sér hjálpar
fyrr.
Breyttur vandi
Fyrir nokkrum áratugum var nær óþekkt hér
á landi að fólk í vímuefnaneyslu sprautaði sig
og segir Gísli jafnvel fólk undir tvítugu sem
hiki ekki við taka upp nálina og sprauta sig.
„Vandinn er breyttur og meira um ungt fólk í
vímuefnaneyslu. Algengt er að ungt fólk byrji
að drekka áfengi, fari svo í kannabisefnin.
Eftir það tekur við neysla á örvandi vímuefn-
um og fólk sprautar sig jafnvel með rítalíni og
fer svo út í ópíumneyslu,“ segir Gísli og bætir
við að kannabisneysla á Íslandi hafi aukist um
300 prósent á árunum 1995 til 2011. „Áfengis-
neysla á Íslandi hefur einnig aukist mikið og
svo bætist við það allur fjöldinn sem notar
ólögleg efni og lyf svo sjúkdómurinn lifir góðu
lífi.“
Á Íslandi eru um 12.000 manns sem náð
hafa bata af áfengissýki og telur Gísli að sá
árangur sé að mörgu leyti SÁÁ að þakka. „Það
er talað um að í sambandi við áfengi þá eigi
um 15 til 20 prósent þeirra sem þess neyta við
vanda að stríða. Þetta er því stór hópur og jafn-
vel tugir þúsunda hér á landi,“ segir hann.
Margþætt starf í Von
Í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti í Reykjavík,
fer fram margþætt starfsemi. Sumir þeirra
sjúklinga sem ljúka dvöl á Vogi leggjast inn
í áframhaldandi meðferð á Vík og Staðarfell
en þeir sem það gera ekki fara í meðferð hjá
göngudeildinni í Von. „Þá er fólk í fjórar vikur
í daglegri meðferð, hluta úr degi. Síðan erum
við með stuðningshópa fyrir fólk sem er að
koma af Vogi eða strandar í sínum bata.“ Í Von
er einnig veitt eftirfylgni eftir dvöl á Vík og
Staðarfelli. „Við erum líka með fallvarnarmeð-
ferð fyrir karla sem hafa áður farið í meðferð
en ekki náð fullum bata, svokallaða víkinga-
meðferð. Þeir eru hérna í eftirfylgni í eitt ár.“
Fyrirtækjaþjónusta SÁÁ
Fyrir um það bil ári stofnaði SÁÁ fyrir-
tækjaþjónustu og sinnir Gísli því verkefni. Í
fyrirtækjaþjónustunni felst að SÁÁ aðstoðar
fyrirtæki við gerð stefnu varðandi áfengis-
og vímuefnamál. „Ef um skimanir er að
ræða, leiðbeinum við í sambandi við það. Við
fræðum einnig yfirmenn um það hvernig skuli
framkvæma íhlutun ef starfsmaður er í vanda.
Þá er viðkomandi einstaklingur sendur til mín
í viðtal og ég tek við málinu og hjálpa viðkom-
andi í meðferð eða á annan hátt.“
Bati er líkamlegur,
andlegur og félagslegur
Fólk sem er að koma í meðferð í fyrsta sinn
getur hringt til SÁÁ og lagt inn beiðni en fyrir
það fólk sem hefur áður farið í meðferð og
gengur ekki nógu vel mælir Gísli með
því að fara í viðtal við ráðgjafa og fara
yfir málin. „Oft er það niðurstaðan að
leggjast aftur inn. Stundum er hægt
að veita fólki aðstoð með viðtölum eða
inngripi hér á göngudeildinni.“
Að sögn Gísla er bati flókið fyrir-
bæri þar sem margt spili inn í. „Bati er
líkamlegur og tíminn læknar margt.
Hann er líka andlegur og félagslegur
og því er mikilvægt að vera í sam-
neyti með öðrum sem eru á sömu leið
og maður sjálfur.“ Hann segir skipta
höfuðmáli að fólk með áfengissýki fái
upplýsingar og fræðslu um sjúkdóm-
inn og batann og þýðist þá leiðsögn
sem það fær. „Það er ekki gott að fólk
telji sér trú um að ef það láti sterka
drykki vera og drekki bara bjór að þá
verði allt í lagi. Það eru ákveðin lögmál sem
við vitum að fólk verður að fylgja og ákveðnar
reglur. Ragnar Ingi Aðalsteinsson sem vann
hjá okkur á sínum tíma samdi ljóð sem lýsir
þessu vel:
Líkamleg skilyrði
leyfa mér hvorki
lausung né hroka.
Ég er alkóhólisti
til æviloka.
Áfengisneysla
á Íslandi hefur
aukist mikið og
svo bætist við
allur fjöldinn sem
notar ólögleg
efni og lyf svo
sjúkdómurinn lifir
góðu lífi.
Tíminn
læknar
margt
Gísli Stefánsson hefur starfað
sem áfengis- og vímuefnaráð-
gjafi í yfir 30 ár og lengst af
hjá SÁÁ. Sjálfur var hann í
óreglu í tólf ár en leitaði sér
aðstoðar hjá SÁÁ um þrítugt
og náði bata. Í fyrstu hafði
hann þó ekki mikla trú á
lífi án áfengis en varð fyrir
opinberun í meðferðinni og
fór eftir þeim ráðleggingum
sem hann fékk og segir sólina
í sínu lífi hafa komið upp á
þeim tíma.
Gísli Stefánsson, áfengis-
og vímuvarnarráðgjafi hjá
SÁÁ fór sjálfur í með-
ferð fyrir rúmlega þrjátíu
árum og segir hana hafa
verið meiriháttar opinberun
fyrir sig. Til að ná bata segir
hann mikilvægt að fólk fari
eftir þeim ráðleggingum
sem það fær. „Það er ekki
að gott fólk telji sér trú um
að ef það láti sterka drykki
vera og drekki bara bjór að
þá verði allt í lagi.“
Ljósmynd/Hari
11 2013 DESEMBER