Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 2

Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 2
Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Alveg mátulegur Heimilis GRJÓNAGRAUTUR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Hátt í tvö hundruð þúsund bækur seldust Karl Sigfússon er einn íbúa Þórsgötu sem hefur áhuga á að kenna börnum sínum að rækta matjurtir og langar að nýta til þess vannýttan rólóvöll í götunni. Ljósmynd/Hari. Hverfandi líkur eru á því að Íslendingar geti uppfyllt skilyrði Evrópusambands- ins um endurvinnslu úr- gangs, að því er fram kemur í nýrri úttekt Umhverfis- stofnunar Evrópu. ESB hefur sett þau markmið að árið 2020 verði 50 prósent af tilteknum hlutum (pappír, járni, plasti og gleri) úr heimilisúrgangi og ef mögu- legt er einnig af öðrum upp- runa unnið og endurnýtt og 70 prósent af bygginga- og niðurrifsúrgangi verði unn- inn og annað hvort endur- nýttur eða endurunninn á einhvern hátt. Tilskipun þessi tók gildi hér um ára- mótin 2010-11. Í úttekt Umhverfisstofn- unarinnar kemur fram að átta lönd, auk Íslands, þurfi að auka endurvinnsluhlut- fall sorps um tvö til fjögur prósentustig milli ára til að ná settu markmiði árið 2020 en örfá lönd hafa náð slíkum árangri til þessa.  Umhverfismál Ný úttekt Um eNdUrviNNslU í evrópU Íslendingar í hópi endurvinnsluslugsara Í úttekt Evrópsku umhverfisstofnunarinn- ar kemur fram að átta lönd, auk Íslands, þurfi að auka endurvinnsluhlutfall sorps um tvö til fjögur prósentustig milli ára til að ná settu markmiði árið 2020 en örfá lönd hafa náð slíkum árangri til þessa. Ljósmynd/Hari  skipUlagsmál íbúar ÞórsgötU vilja Nýta rólóvöll til skapaNdi verka Vilja rækta mat á róló Íbúar á Þórsgötu hafa lýst áhuga á því að taka lítið notaðan rólóvöll í fóstur og breyta honum í matjurtagarð fyrir íbúa hverfisins. Í drögum að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur er meðal gert ráð fyrir aukinni borgarræktun sem sprettur af auknum áhuga á ferskum og heimafengnum mat- vælum og andstöðu við iðnvæddan landbúnað. N okkrir íbúar Þórsgötu í Reykjavík hafa lýst áhuga á því að fá að breyta lítið notuðum róló í götunni í garð- yrkjureit þar sem rækta megi matvæli. Karl Sigfússon er einn þeirra. „Við höfum rætt um það, nokkrir nágrannar, hvort ekki megi nýta leiksvæðið sem er hérna í götunni á „kreatívari“ máta. Það er frekar dapurt og sorglegt og lítið notað þrátt fyrir að hér sé mikill fjöldi barna. Okk- ur datt því hug hvort við gætum ekki nýtt svæðið undir eins konar skólagarða sem væru á ábyrgð þeirra sem notuðu þá. Þannig mætti nýta svæðið á skapandi og skemmtilegan hátt og um leið kenna börnunum að rækta mat- jurtir,“ segir hann. Gunnar Smári Egilsson er einnig íbúi á Þórsgötu og áhuga- samur um ræktun matvæla á róló- reitnum. „Við myndum vilja nýta svæðið eins vel og hægt er, til að mynda með einskonar stallarækt- un, og einnig að koma upp köldum gróðurhúsum til að lengja rækt- unartímabilið,“ segir hann. „Það væri sniðugt að byggja upp skólagarða inn í hverfunum í kringum ræktun sem hentar borgum; í stað þeirrar pláss- freku ræktunar sem er stunduð í útjöðrum byggðarinnar,“ bendir Gunnar Smári á. „Það eru mikil gæði fólgin í því að geta skotist út í garð og sótt sér salat; salat þolir í raun enga geymslu og hentar því ekki þessu lager/stórmarkaðs- matarkerfi okkar,“ segir hann. Hjálmar Sveinsson, varafor- maður umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjavíkur, tekur vel í hug- myndir Þórsgötubúa og hvetur þá til að skrifa bréf til umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar og spyrja hvort borgin, og hugsan- lega einhverjir nágrannar sem vilja hafa rólóinn áfram, geri at- hugasemdir við plön þeirra um matjurtaræktun. Hann bendir jafnframt á að í nýju aðalskipulagi sé sérstakur kafli um svokallaða borgarræktun sem kallast „urban agriculture“ á ensku. Tildrög hans eru þau að undanfarna tvo áratugi hefur áhugi á framleiðslu landbún- aðarafurða innan þéttbýlis aukist mjög bæði í Evrópu og í Norður Ameríku, að því er fram kemur í drögum að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur. „Hér er að sjálfsögðu um að ræða framleiðslu í mæli- kvarða sem hentar þéttbýli og af þeirri gerð sem talin er samrekan- leg þéttri borgarbyggð. Dæmi um þetta er grænmetisrækt, ávaxta- rækt og hænsnahald til eggjafram- leiðslu. Hvatinn að slíkum áhuga er margvíslegur svo sem aukinn áhugi á ferskum og heimafengn- um matvælum, og andstaða við iðnvæddan landbúnað og þau neikvæðu umhverfisáhrif sem honum fylgja. Þessi aukni áhugi á smábúskap innan þéttbýlis hefur orðið til þess að margar borgir hafa sett sér sérstaka stefnu um landbúnaðarframleiðslu innan þéttbýlismarkanna. Slíka stefnu þarf augljóslega að vanda þar sem skiptar skoðanir eru til dæmis um dýrahald í þéttbýli og gæta verður að þáttum eins og heilbrigði og hugsanlegu ónæði nágranna. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Egill Örn Jóhannsson. Vilja leika áfram Forsvarsmenn Gaflaraleik- hússins hafa óskað eftir því við Hafnarfjarðarbæ að fá að reka áfram leikhús í húsnæði sveitarfélagsins á Strandgötu. Samningur þess efnis rennur út um áramót. „Við erum búin að búa til lítið, kósí leikhús með heimilislegri stemmingu sem rúmar 200 áhorfendur og erum ánægð með það. Við myndum gjarnan vilja halda áfram með leikhúsið í núverandi húsnæði en erum að sjálfsögðu tilbúin til að skoða aðra kosti,“ segir Lárus Vilhjálmsson, framkvæmda- stjóri leikhússins. -sda Spjaldtölvur og snjalltæki auka fjölbreytni í námi Spjaldtölvur og önnur snjalltæki eru hentug tæki í einstaklingsmiðuðu námi og auðvelda fjölbreytt og sveigjanlegt nám, að því er fram kemur í niðurstöðum greinargerðar Ómars Arnar Magnússonar, aðstoðar- skólastjóra í Hagaskóla, sem unnin var fyrir skóla- og frístundaráð Reykjavíkur. Ráðið telur mikilvægt að starfshættir skóla verði endurskoðaðir og tækifæri nýtt til að fara nýjar leiðir í skólastarfi.-sda Næsta tölublað Fréttatímans, páskablað, kemur út á skírdag, 28. mars næst- komandi – degi fyrr en venjulega. Fyrsta tölublað eftir páska kemur að vanda út á föstudegi, þann 5. apríl. Fréttatíminn á skírdag „Það er óhætt að fullyrða að þetta er einn best heppnaði bókamarkað- urinn frá upphafi,“ segir Egill Örn Jóhannsson, formaður Félags ís- lenskra bókaútgefanda. Árlegum bókamarkaði félagsins í Perlunni lauk á dögunum og var salan góð, að sögn Egils. „Það er ómögulegt að segja upp á hár en það má fullyrða að hátt í tvö hundruð þúsund bækur hafi selst,“ segir Egill. Ekki liggur fyrir hvar bókamark- aðurinn verður á næsta ári en Egill segir enn ekki loku fyrir það skotið að hann verði í Perlunni. Það skýrist á næstunni. -hdm 2 fréttir Helgin 22.-24. mars 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.