Fréttatíminn - 22.03.2013, Qupperneq 4
Ísafjörður fyrsti viðkomu-
staður á nýrri strandleið
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
A-átt, Allhvöss sunnAntil. slyddA eðA rign-
ing sA-lAnds, en AnnArs Að mestu þurrt.
höfuðborgArsvæðið: Skýjað með
köflum og þurrt.
hægur vindur. Að mestu þurrt,
en él eðA slyddA AustAnlAnds.
höfuðborgArsvæðið: Sól með
köflum og þurrt.
léttir til og
heldur kólnAndi.
höfuðborgArsvæðið: léttSkýjað
og hægur vindur.
fremur meinlítið veður
hitinn verður mjög víða að dansa um núllið
komandi helgi, vægt frost yfir nóttina, en 2 til
5 stig að deginum einkum sunnantil. a-lægur
vindur verður ríkjandi og að mestu þurrt á
landinu ef suðausturhlutinn er undanskilinn.
fremur hvasst með suðurströnd-
inni, en annars gola og sums
staðar strekkingur. Sólin
gægist undan skýjunum
annað slagið og einkum
þó á sunnudag, þegar líka
lægir um land allt.
5
1 0
1
3
4
0 -2 0
2
4
1 -3 0
2
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
ásdís guðmundsdóttir er sérfræðingur í atvinnumálum kvenna. hún segir að konur sæki síður fram í atvinnulífinu vegna þess
þær séu síður áhættusæknar en karlar. Svanni kemur til móts við þær. Ljósmynd/Hari
lokasprettur mottumars
Tæplega 2000 einstaklingar og 206 mottulið
hafa í mars keppst við að safna áheitum inn
á mottumars.is. Í dag, föstudag, lýkur keppn-
inni en þó verður enn hægt að heita á kepp-
endur út mars. með ýmsum hætti er hægt að
safna peningum til rannsókna og fræðslu á
krabbameinum karla. mottuarmbönd eru til
sölu um allt land og kosta 1500 krónur. Allur
ágóði af þeim rennur beint til Mottumars.
Þegar keppninni lýkur í dag, 22. mars, verða
sigurvegarar verðlaunaðir á tónleikunum
„Skonrokk“ sem haldnir verða í hörpu
klukkan 20. Þar verða til sölu „Skonrokk“ bolir
sem kosta 2.600 krónur. Allur ágóðinn rennur
til mottumars. Bolirnir verða til sölu bæði í
Hörpu og Hofi á tónleikadegi. Á tónleikunum
leggja margir af bestu rokksöngvurum
þjóðarinnar saman krafta sína ásamt hljóm-
sveitinni tyrkja guddu. mottumars er árvekni-
og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins
vegna baráttunnar gegn krabbameinum hjá
körlum. - jh
kisudagar í kattholti
kattavinafélag Íslands heldur sinn ár-
lega páskabasar í kattholti, Stangarhyl
2, á morgun, laugardaginn 23. mars
frá klukkan 11-16. Fallegir handgerðir
skartgripir, páskaskraut, kisudót og
nýbakaðar tertur og kökur er meðal
þess sem selt verður á lágu verði. allir
eru velkomnir á páskabasarinn sem er
stór þáttur í fjáröflun Kattholts. Kisur
í heimilisleit munu sýna sínar fegurstu
hliðar í von um að góður kattavinur veiti
þeim heimili til frambúðar.
eimskip strandsiglingar
fyrsti viðkomustaður
Brúarfoss eimskipafélags-
ins á nýrri strandleið var
Ísafjörður en hin nýja leið
tengir landsbyggðina beint
við færeyjar, Skotland,
england og meginland
Evrópu og óbeint inn á
Skandinavíu og eystrasalt,
að því er fram kemur í
tilkynningu félagsins. frá
Ísafirði hélt Brúarfoss til
akureyrar þar sem tekið
var á móti skipinu með
viðhöfn á laugardaginn.
þaðan hélt það áfram
á markaði ytra með út-
flutningsvöru og sækir
innflutningsvöru fyrir
landsbyggðina.
Brúarfoss er 130 metra
langt og 20 metra breitt
gámaskip skipað íslenskri
áhöfn og var smíðað
árið 1992. Skipið er búið
tveimur krönum sem
gerir því kleift að hafa við-
komu í höfnum sem ekki
eru búnar landkrönum.
Brúarfoss getur borið allt
að 724 gámaeiningar. - jh
atvinnulíF svanni er Fyrir konur í atvinnurekstri
Nýsköpunar-
sjóður fyrir konur
Svanni er nýsköpunarsjóður sem ætlaður er konum í atvinnurekstri. Mikil þörf var á slíku úrræði
vegna þess hve konur eru síður áhættusæknar en karlar og hrinda þar með síður hugmyndum
sínum í framkvæmd. Sjóðurinn samanstendur af 70 milljónum sem hægt er að nota sem veð
fyrir láni. Þannig tekur sjóðurinn höggið ef illa fer. Það hefur þó ekki ennþá gerst.
s vanni er nýsköpunarsjóður fyrir konur sem þurfa lítil lán til að hrinda hugmynd sinni að sprota-
fyrirtæki af stað.
Sjóðurinn var endurvakinn árið 2011
af íslenskum yfirvöldum en hann hafði
áður verið til á árunum 1999–2003. Nú er
svo komið að allar konur sem hafa hug-
mynd að litlu fyrirtæki geta sótt um styrk
í formi veðs í sjóðinn og þannig tekið lítið
lán til þess að fjármagna hugmynd sína.
„Þetta eru 70 milljónir bundnar inni á
sjóði. Þær eiga að geta þjónað sem veð
fyrir láni. Það er nefnilega oft erfitt að fá
lítil lán þetta 1–10 milljónir og það hindrar
oft konur við framkvæmd að vera ekki
jafn áhættusæknar og karlarnir. Þeir
veðsetja frekar húsið og eignir sínar fyrir
hugmynd, þær ekki. Þessi sjóður kemur
þannig til móts við þær konur sem kjósa
að stíga varlega til jarðar, en langar að
þróa hugmynd sína,“ segir Ásdís Guð-
mundsdóttir, sérfræðingur í atvinnumál-
um kvenna.
Skilyrði fyrir styrkveitingunni eru svo
að sækja ráðgjöf ýmist hjá Nýsköpunar-
miðstöð eða Atvinnuþróunarmiðstöð. Að
sögn Ásdísar er það gert til þess að verk-
efnið skili örugglega árangri. „Þannig fá
auðvitað allir sitt,“ útskýrir hún.
Hafi kona hugmynd að sprotafyrir-
tæki getur hún sótt um hjá sjóðnum
að fá veð í gegnum vefsíðu hans. Ásdís
segir að það sem þurfi að fylgja með sé
viðskipta- og kostnaðaráætlun og upp-
lýsingar um hugmyndina, hvernig hún
muni nýtast til atvinnuþróunar, hversu
mörg störf hún komi til með að skapa og
þess háttar.
„Það vantar fjármagn fyrir frumkvöðla
sem eru komnir af stað, því líkt og áður
sagði getur reynst erfitt að fá lán nema
með veðsetningu eigna. Við erum með
sjóðnum að fjárfesta í nýjum tækifærum
fyrir konur í atvinnurekstri og tökum
þannig að sjálfsögðu höggið ef illa fer.“
Tekið er við umsóknum til 16. apríl og
allar nánari upplýsingar má fá í gegnum
vefsíðuna svanni.is.
maría lilja þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Alls hafa 66
umsóknir borist í
sjóðinn frá árinu
2011.
9 lánatrygg-
ingar hafa verið
afgreiddar til
fyrirtækja á sviði
ferðaþjónustu,
hönnunar, minja-
gripagerðar og
framleiðslu af
ýmsu tagi alls
að upphæð 22.
milljónir króna.
4 fréttir Helgin 22.-24. mars 2013