Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 6

Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 6
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Nýr ŠKODA Rapid Láttu þér líða vel. ŠKODA Rapid er nýr og glæsilega hannaður fjölskyldubíll frá ŠKODA sem uppfyllir kröfur þeirra sem vilja gott innanrými og mikil þægindi fyrir fjölskylduna. Heildarlengd Rapid er 4,48 metrar, haganleg hönnun gefur gott rými fyrir fimm farþega og farangursrýmið rúmar 550 lítra sem er með því besta sem gerist í þessum stærðarflokki. Komdu víð í HEKLU eða hjá umboðs mönnum um allt land og reynsluaktu nýjum og frábærum ŠKODA Rapid. Nýr ŠKODA Rapid kostar aðeins frá: 3.190.000,- m.v. ŠKODA Rapid Ambition 1.2TSI, 86 hestöfl, beinskiptur. Velkomin í reynsluakstur á frábærum fjölskyldubíl 5 stjörnur í árekstrar­ prófunum EuroNcap Eyðsla frá 4,2 l/100 km CO2 frá 114 g/km SIMPLY CLEVER Meira en helmingur fær frest hjá Skatt- inum „Þetta stendur bara ágætlega. Frá klukkan hálf fjögur á miðvikudag og þar til í gærmorgun skiluðu 15.400 manns inn framtali sínu og við eigum von á að 20 þúsund til við- bótar skili inn áður en fresturinn rennur út,“ segir Gunnar Karlsson, sviðsstjóri einstaklingssviðs hjá Ríkisskattstjóra. Frestur einstaklinga til að skila inn skattaframtali sínu rann út á miðnætti í gær, fimmtudagskvöld. Í gærmorgun höfðu 98.200 manns skilað inn framtali sínu. Alls eru 262.640 manns framtalsskyldir. Með áætlun Gunnars má því gera ráð fyrir að rétt ríflega helmingur landsmanna hafi fengið frest á skil- um að þessu sinni. „Skilin að þessu sinni eru ívíð betri en verið hefur. Svo kemur eflaust mikið um helgina en þetta verður drjúgt síðustu dagana,“ segir Gunnar. -hdm Þ að hefur verið gríðarleg eftirspurn á undanförnum tveimur mánuðum. Eignirnar renna út miklu hraðar en venjulega og um þessar mundir eru helm- ingi færri eignir á skrá hjá okkur en venju- lega,“ segir Guðlaugur Örn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Leigulistans. Guðlaugur kveðst hafa áhyggjur af skorti á íbúðum á leigumarkaði. „Menn verða að fara að bretta upp ermarnar og byggja. Fólk er bara fast og það vantar hreyfingu á markaðinn. Þetta hefur lagast mikið en það er fullt af íbúðum sem eru í sjálfheldu vegna óleystra lánamála.“ Undir þetta tekur Svanur Guðmunds- son, formaður félags löggiltra leigu- miðlara: „Eftirspurnin er margföld á við framboðið.“ Undanfarið hafa verið fluttar fréttir af innrás fjárfestingasjóðsins Centrum, sem er í eigu Gamma, á leigumarkaðinn. Sam- kvæmt frétt DV hefur sjóðurinn fjárfest fyrir fjóra milljarða í íbúðum í miðborg Reykjavíkur, Vesturbænum, Norður- mýri og Hlíðunum. Alls hefur sjóðurinn nú yfir 140 íbúðum að ráða sem eru í útleigu. Segir forsvarsmaður félagsins í DV að leiguverð hafi verið lágt á Íslandi. Viðskiptahugmyndin gengur því út á að leiguverð og fasteignaverð hækki. Viðmælendur Fréttatímans voru á einu máli um að innkoma sjóðsins hafi hækkað leiguverðið, „skrúfað það upp,“ eins og einn orðaði það. „Þeir eru að búa til bólu sem springur eins og graftarkýli á unglingi. Þeir eru líka eins og unglingar á þessum markaði,“ segir Svanur Guðmundsson um innkomu Gamma á leigumarkaðinn. „Þetta eru bara verðbréfamiðlarar sem eru í öðrum heimi. Það kæmi mér ekki á óvart að leiguverðið þyrfti að hækka um fimmtíu prósent til að standa undir verði eignanna. Þessir menn eru ekki tengdir inn á hinn almenna borgara.“ Þjóðskrá birti í vikunni nýjar upplýsing- ar um leiguverð íbúðarhúsnæðis. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækk- aði um 2,4 prósent frá janúar til febrúar. Síðastliðna tólf mánuði er hækkunin 10,6 prósent. Samkvæmt tölum Þjóðskrár kostar um 110 þúsund krónur að leigja tveggja her- bergja íbúð í vesturhluta Reykjavíkur og Seltjarnarnesi, að meðaltali. Þriggja her- bergja íbúð kostar 143 þúsund krónur á mánuði en 4-5 herbergja íbúð 186 þúsund krónur. Fljótleg leit á leiguvef mbl.is í gær leiddi í ljós að algengt verð á tveggja herbergja íbúðum í miðborg og Vest- urbæ Reykjavíkur er 150 þúsund krónur. Þriggja herbergja íbúðir á sama svæði geta svo verið verðlagðar á allt að 200 þúsund krónur á mánuði. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is  leigumarkaður innkoma fjárfestingasjóðs skrúfar upp verðið Búa til bólu sem springur eins og graftarkýli á unglingi Eftirspurn á leigumarkaði er margföld á við framboð. Titringur vegna innkomu fjárfestingasjóðs á markaðinn. Leiguverð hefur hækkað. Slegist er um íbúðir á leigumarkaði um þessar mundir og leiguverð hefur hækkað. Ljósmynd/Hari 6 fréttir Helgin 22.-24. mars 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.