Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 14
www.kia.com
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
03
67
Kia Rio 1,1 dísil, sex gíra, eyðir frá 3,6 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri.
Magn CO2 í útblæstri er mjög lítið eða aðeins 94 g/km og fær hann því frítt í
stæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Einnig fáanlegur sjálfskiptur með bensínvél.
Eigum bíla til afgreiðslu strax! Komdu og reynsluaktu. Verð frá 2.660.777 kr. Rio 1,1 dísil
*M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og grænan bílasamning ERGO
í 84 mánuði. 9,7% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,72%.
Aðeins 22.777 kr. á mánuði í 84 mánuði*
Kaupau
ki:
Vetrar
-
dekkEinn sparneytnasti bíll í heimi!
7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum.
brot og eingöngu í fjórum tilvikum var um að
ræða kynferðisbrot gegn barni. „Samkvæmt
þessu hafa flestir af þeim gerendum sem
áður hafa verið dæmdir til refsingar verið
dæmdir fyrir annars konar brot en kynferðis-
brot,“ segir Svala.
Steingrímur Njálsson sker sig úr þegar
litið er til sakaferils. Í einum dóminum kemur
fram að hann hafi þegar hlotið 23 refsidóma
fyrir ýmis afbrot.
Í 19 dómum er fjallað um kynhneigð
ákærðu, m.a. hvort þeir teljist vera haldnir
barnagirnd. Aðeins níu gerendur falla þar
undir.
Upplýsingar var að finna um hjúskapar-
stöðu tæplega hundrað gerenda af þeim 166
sem dómar féllu um. Hátt hlutfall þeirra
var í hjónabandi eða sambúð, 60%. Upplýs-
ingar var að fá um vímuefnaneyslu hundrað
gerenda og var rúmlega helmingur þeirra
undir áhrifum áfengis þegar brotin voru
framin.
44 drengir og 224 stúlkur
Alls urðu 268 börn fyrir kynferðisbroti, 44
drengir og 224 stúlkur. Samkvæmt því eru
stúlkur í ríflega fimm sinnum meiri hættu á
að verða fyrir kynferðisbroti en drengir.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að
börn á aldrinum 7-12 ára eru líklegust til að
verða fyrir kynferðislegri misnotkun, en um
helmingur barnanna tilheyrði þessum aldurs-
hópi. 15% þolenda er 6 ára eða yngri og er sá
yngsti 3 ára.
„Þá er athyglisvert að skoða aldur drengja
sem þolenda sérstaklega því rannsóknin
leiddi í ljós að meðalaldur þeirra er þeir verða
fyrir kynferðisbroti er 12 ár. Það gefur vís-
bendingu um að drengir á kynþroskaaldri
séu í meiri hættu á að verða fyrir kynferðis-
legri misnotkun en ókynþroska drengir,“
segir Svala.
Algengast er að brotin séu framin innan
veggja heimilis gerandans eða þolandans –
eða á sameiginlegu heimili þeirra. Þetta á við
í rúmum helmingi tilvika. Þetta er í samræmi
við það að gerandi og þolandi þekkjast lang-
oftast. Næst algengast er að brotin eigi sér
stað í bifreið sem gerandinn hefur umráð
yfir.
„Af þeim afleiðingum sem drengir glíma
við í kjölfar kynferðisbrota er einna athyglis-
verðast hversu margir þeirra glíma við reiði,
auk þess sem margir eru hræddir um að
félagar þeirra komist að misnotkuninni, sem
tengist skömminni og sektarkenndinni sem
heldur þeim í heljargreipum, auk hræðsl-
unnar við það að vera stimplaður „hommi“,“
bendir Svala á. „Í einum dómi er að finna, í
skýrslu sálfræðings er hafði þolanda til með-
ferðar, lýsingar á djúpstæðum áhyggjum
hans af því að vera hommi, enn hann hafi
„tengt hræðslu sína við að vera hommi við
það að hafa ekki stoppað eða flúið“,“ bendir
hún á.
Drengir fá umbun
Umbun af einhverju tagi er eitt einkenna kyn-
ferðisbrota gegn drengjum, að sögn Svölu. „Í
meira en helmingi tilvika er þolanda umbun-
að með einhverjum hætti - langoftast með
peningum. Í því ljósi að gerendur eru yfirleitt
ókunnugir og njóta þar með ekki trausts
barnsins er þetta leið til að fá barnið til lags
til við sig og eins til að tryggja þagmælsku
þess. Gjafirnar eru þannig liður í misnotkun-
inni og til þess fallnar að auka mjög á sektar-
kennd drengjanna og skömm. Þeir eru þar
með á vissan hátt orðnir „samsekir“,“ bendir
hún á.
Svala getur einnig nýrrar rannsóknar, sem
gerð var á öllum dómum Hæstaréttar á 10
ára tímabili í málum vegna kynferðisbrotum
gegn börnum og tók til 70 dóma og 126 þol-
enda, leiddi í ljós að í öllum tilvikum þar sem
krafa er gerð um miskabætur er fallist á það.
„Í 98% tilvika er farið fram á bætur fyrir dómi
og fellst Hæstiréttur á það nánast undantekn-
ingalaust. Skiptir í því sambandi ekki máli
hvort bótakrafan er studd sérfræðigögnum
er lúta að heilsu og líðan viðkomandi þolanda
eða ekki. Bætur eru ávallt dæmdar á þeim
grundvelli eingöngu að brotin séu til þess
fallin að valda þeim sem fyrir verða margvís-
legum sálrænum erfiðleikum. Séu kröfurnar
studdar gögnum til viðbótar eru yfirleitt
dæmdar hærri bætur,“ segir hún.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Tengsl þolenda og gerenda í
kynferðisbrotamálum gegn drengjum10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17
Fjöldi drengja eftir aldri sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi
1
14
Kunningi
24
Ókunnugur
15
Ekki
tekið
fram
Ættingi
8
7
6
5
4
3
2
1
0
´30-́ 39 4́0-́ 49 ´50-́ 59 6́0-́ 69 ´70-́ 79 8́0-́ 89 ´90-́ 99 0́0-́ 09 1́0-
Fjöldi dóma í kynferðisbrotamálum gegn drengjum eftir áratugum
14 úttekt Helgin 22.-24. mars 2013