Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 22
Á morgun, 23. mars, er dagur Norðurlanda en
sá dagur er tileinkaður
norrænni samvinnu.
Á þessum degi árið
1962 hittust fulltrúar
ríkisstjórna Norður-
landanna í höfuðborg
Finnlands til að skrifa
undir samning um
náið og skuldbindandi
samstarf. Samningur-
inn, sem nefndur er
Helsinkisáttmálinn, er
grundvallarsamningur
í norrænu samstarfi og fjallar um
samstarf Norðurlandanna á sviði
réttarfars, menningarmála, félags-
mála, efnahagsmála, samgangna
og umhverfisverndar. Í honum er
kveðið nánar á um störf Norður-
landaráðs og Norrænu ráðherra-
nefndarinnar og hann festir í sessi
formlegt samstarf þjóðþinga og
ríkisstjórna Norðurlandanna.
Samningurinn kveður einnig á um
að Norðurlöndin skuli vinna saman
á alþjóðavettvangi og hafa samráð
sín á milli. Þrátt fyrir ýmsar end-
urskoðanir á texta samningsins
hefur grundvallarhugmynd hans
ekkert breyst. Helsinkisáttmálinn
kveður á um fjölmörg gagnkvæm
réttindi Norðurlandabúa sem við
höfum um áratugaskeið vanist að
taka sem sjálfsögðum hlut. Þannig
þykir okkar það sjálfsagt að njóta
sömu réttinda á hinum Norður-
löndunum og þeirra sem við njót-
um heima hjá okkur.
Norðurlandasamstarfið hefur
notið þess frá upphafi að eiga sér
víðtækan, þverpólitísk-
an og styrkan stuðn-
ings fólksins sem bygg-
ir Norðurlönd. Sjaldan
eða aldrei hefur verið
deilt af sannfæringu
um hvort norrænt sam-
starf eigi rétt á sér,
heldur einungis um
leiðir að settum sam-
eiginlegum markmið-
um. Hið nána norræna
samstarf varð ekki til á
einum degi. Þjóðþing
Norðurlanda höfðu
lengi haft náið sam-
starfs sín á milli en Norðurlandaráð
var stofnað árið 1952. Og á undan
þessu öllu höfðu þjóðirnar sjálfar
komist að nauðsyn þess að vinna
saman og halda vinatengslum og
stofnað Norræna félagið. Norrænu
félögin voru stofnuð fljótlega eftir
fyrri heimsstyrjöldina, árið 1919
í Svíþjóð, Noregi og Danmörku,
árið 1922 á Íslandi og 1924 í Finn-
landi. Því er með réttu hægt að
segja að norrænt samstarf hafi
þrjár meginstoðir: Norræna fé-
lagið, Norðurlandaráð og Norrænu
ráðherranefndina. Vissulega fer
fram fjölbreytt og öflugt norrænt
samstarf á ýmsum sviðum þjóð-
lífsins en þessir þrír aðilar starfa
að norrænu samstarfi á grund-
velli þeirrar meginhugmyndar að
Norðurlönd eigi eitthvað mikil-
vægt sameiginlegt og eigi sam-
eiginlegra hagsmuna að gæta við
lausn ýmiskonar mála.
Norræna félagið gegndi mikil-
vægu hlutverki í tengslum við
stofnun Norrænu ráðherranefnd-
Dagur Norðurlanda 23. mars
Heiðursviður
kenning til Vigdísar
Finnbogadóttur
Ragnheiður H. Þóra-
rinsdóttir
formaður Norræna
félagsins á Íslandi
Í dag geta börn í hinum ýmsu sveitarfélagög-um nýtt sér það að
geta farið eftir skóla í frí-
stundaheimili og stundað
þar fjölbreyttar tómstund-
ir á meðan foreldrarnir
klára sinn vinnudag.
Dæmi eru um að skóla-
degi ljúki rúmlega eitt á
daginn og börnin séu sótt
þegar foreldrarnir klára
vinnu rúmlega fimm,
þetta geta verið allt að tutt-
ugu klukkustundir á viku. En hvað fer
fram á þessum frístundaheimilum og
hvaða menntun er æskileg að starfs-
fólkið þar hafi?
Í Reykjavík starfa frístundaheimilin
eftir Starfsskrá skrifstofu tómstunda-
mála – ÍTR. Þar kemur fram að gildi
frítímans sé töluvert og að á þeim vett-
vangi sé lögð áhersla á að þjálfa sam-
skiptafærni, auka félagsfærni, styrkja
sjálfsmynd og efla virkni og þátttöku.
Fjallað er um menntunar- sem og for-
varnargildi, forvarnargildið felst í því
að bjóða börnum uppá jákvæð við-
fangsefni í frítímanum með sterkum
fyrirmyndum og að með því aukist
líkur á að þau kjósi að heilbrigðan lífs-
stíl og forðist áhættuhegðun. Þar fer
semsagt ekki bara fram afþreyingar-
starfsemi þótt vissulega sé það stór
þáttur af starfinu.
Ég hef rekist á atvinnuauglýsingar
þar sem óskað er fólki til að starfa á
frístundaheimilum og oft er óskað
eftir menntun sem nýtist í starfi,
án þess að það sú menntun sé skil-
greind sérstaklega. Í Háskóla Íslands
er í boði lítið þekkt nám
Í Tómstunda- og félags-
málafræði sem hefur það
markmið að veita nem-
endum sérþekkingu til
starfa á sviði tómstunda-
og félagsmála og þeir fái
heildarsýn á þá starfsemi
sem fer fram í frítímanum.
Meðal námskeiða sem
kennd eru í tengslum við
námið má nefna þroska-
sálfræði, félagsfræði og
siðfræði og fagmennska
auk fjölmargra sérhæfðra áfanga í
tómstundafræðum. Faglærðir kenn-
arar hafa það hlutverk að kenna fög
eins og stærðfræði, tungumál, sögu
og fleira. Tómstunda- og félagsmála-
fræðingar sem vinna á frístundaheim-
ili eru í stöðu og hafa færni til þess að
efla samskipta- og félagsfærni, hjálpa
við að styrkja sjálfsmynd, mynda góð
tengsl í hversdagslegu umhverfi og í
gegnum leik, sem og að efla hópinn
og geta mögulega styrkt stöðu ein-
staklings innan hóps sem nauðsyn-
lega þarf á því að halda.
Á frístundaheimilum snýst þetta
ekki bara um bara um leika þótt
það sé vissulega mikilvægur hluti af
starfinu. Þar er grundvöllur á því að
mynduð séu náin tengsl milli starfs-
manns og barns byggð á raunveru-
legu trausti. Þar á sér stað óformlegt
nám þar sem börn fá tækifæri til að
öðlast sem getur fylgt einstaklingum
allt lífið, færni sem ekki lærist með
heimanámi eða í bókum, og er tóm-
stundafræðingurinn sniðinn að því
starfi.
Frístundaheimili
Réttur barna til faglegs frítíma
Jón Skúli Traustason
nemandi við HÍ
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Mjúka fermingargjöfin
Hjartar rúmföt
Stærð 140x200 / 50x70
Verð 13.490 kr
Fermingartilboð
9.990 kr
100% Pima bómull
Gjöf sem gefur ár eftir ár
Gjön fyrir
hann & hana
Íslensk
hönnun
Faxafeni 5, Reykjavík | Sími 588 8477
Skeiði 1, Ísafirði | Sími 456 4566
Opi› virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.is Leggur grunn að góðum degiwww.betrabak.is
Þín stund – Þinn staður
Prime
Hægindastóll fullt verð 299.990
skemill fullt verð 79.990
til í mörgum útfærslum
f
y
r
ir
þ
ín
ar bestu stun
d
ir
10%
KYNNiNGAr
AFSLÁTTUr
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
Helgin 22.-24. mars 2013