Fréttatíminn - 22.03.2013, Side 34
www.sonycenter.is
Sony Center
Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700
Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645
Hágæða vatnsþéttur Android snjallsími
Sony XperiA Z
• 5” TFT snertiskjár með HD upplausn
• 13 megapixla myndavél, LED flass
• HD videoupptaka
verð 139.990.-
Vatnsþéttur Android snjallsími
Sony XperiA V
• 4,3” TFT snertiskjár með HD upplausn
• 13 megapixla myndavél, LED flass
• HD videoupptaka
verð 99.990.-
Frábær Android snjallsími
Sony XperiA Tipo
• 3,2” TFT snertiskjár með HD upplausn
• 5 megapixla myndavél, LED flass
• Videoupptaka
verð 22.990.-
Góð kaup á snjallsíma
Sony XperiA J
• 4” TFT snertiskjár með HD upplausn
• 5 megapixla myndavél, LED flass
• Videoupptaka
verð 43.990.-
Vatns og rykvarinn Android snjallsími
Sony XperiA Go
• 3,5” TFT snertiskjár með HD upplausn
• 5 megapixla myndavél, LED flass
• HD Videoupptaka
verð 48.990.-
Snjallar
fermingargjafir
frá Sony
Frábært
verð!
hvað um lagið á Twitter og fólk fór
að tékka á þessu. Einhver gaur úr
sjónvarpsþáttunum The Vampire
Diaries „twittaði“ laginu svo áfram
sem var mjög skemmtilegt. Þetta er
einhver leikari sem ég veit ekkert
hver er þannig að ég „gúgglaði“
hann og hann er víst rosa frægur
þannig að það var ekki verra.“
Og lagið hefur í kjölfarið ratað
fyrir eyru og augu fólks á réttum
stöðum. „Síðan er alls konar fólk
búið að hafa samband og vill endi-
lega gera einhverja samninga við
mig og verða umboðsmenn mínir.
Þannig að það standa alls konar
viðræður yfir og ég má ekki segja
neitt strax. En það er heilmikið í
gangi og ég hef heyrt í fólki sem
hefur mikil ítök í bransanum og
hefur áhuga á mér. Þetta gengur
samt þannig fyrir sig að allir tala
um að það verði að drífa í því að
fara að gera eitthvað en svo gerist
ekkert strax. Þannig að ég hef
ekkert viljað hafa hátt um þetta og
er ekkert að hringja heim í hvert
skipti sem einhver hefur samband
við mig og boða heimsyfirráð. Mér
finnst það ekki smart. Ég læt frekar
í mér heyra þegar hlutirnir fara að
gerast fyrir alvöru og var nú ekkert
sérlega spennt fyrir þessu viðtali
og hafði dálitlar áhyggjur af því að
þetta yrði leiðinlegt spjall vegna
þess að ég get svo lítið talað um
þetta.“
Ætlar að slá í gegn
Gréta hefur síður en svo setið
auðum höndum eftir að hún lauk
námi sínu í Los Angeles og hún
var byrjuð að plægja akurinn áður
en hún sendi Nothing frá sér á
vefnum. „Ég var nýkomin hingað
út þegar mér bauðst að syngja lag í
bíómynd sem ég man nú ekki hvað
heitir enda hef ég lítið hugsað um
hana eftir að ég skilaði laginu af
mér. Ég veit ekki einu sinni hvort
myndin er komin út.“
Gréta syngur Nothing með til-
þrifum og miklum glæsibrag á
myndbandinu þannig að þeir sem
á hlýða þurfa ekki að velkjast í vafa
um að hún býr yfir hæfileikum en
þeir einir og sér hrökkva skammt í
hinum harða tónlistarbransa.
„Þetta snýst svo mikið um að
þekkja rétta fólkið og koma sér á
framfæri á réttum stöðum. Ég hef
til dæmis sungið á mjög flottum
stað hérna úti, The Sayers Club.
Þetta er einn heitasti staðurinn
hérna og þarna troða bæði þekktir
og óþekktir upp. Prince söng þarna
til dæmis um daginn. Þetta er
mjög flottur staður með frábæru
hljóðkerfi og það er alltaf eitthvert
frægðarfólk þarna að hlusta og
spila auk þess sem bransaliðið er
mikið þarna. Það má segja að hlut-
irnir hafi byrjað að gerast þegar ég
byrjaði að syngja þarna.“
Gréta segist sigla rólega í átt að
settu marki en hún hafi þó farið út
staðráðin í því að slá í gegn. „Ef ég
ákveð eitthvað þá fylgi ég því nú
vanalega eftir alla leið. Það er hrút-
urinn í mér,“ segir Gréta ákveðin
og laus við þær efasemdir um eigið
ágæti sem lágu áður á henni. „Mað-
ur vonar alltaf það besta og sér svo
bara til hvað gerist.“
Pabbi hefur stutt mig með
ráðum og dáð
Gréta á ekki tónlistina langt að
sækja en hún er dóttir Grétars Örv-
arssonar sem löngum var kenndur
við Stjórnina. Hún hefur því verið á
kafi í tónlist frá blautu barnsbeini.
„Jú. Mikið rétt. Ég byrjaði ung að
spila á píanó og lærði klassískan
píanóleik þegar ég var yngri og
píanóið hefur alltaf heillað mig. Og
pabbi er náttúrlega sá sem hann er
og Kiddi bróðir er líka í þessu og
allir. Pabbi hefur stutt við bakið á
mér með ráðum og dáð og við erum
bestu vinir í dag. Hann styður mig
í öllu sem ég geri og honum finnst
þetta bara frábært allt saman.“
Gréta vann hjá 365-miðlum
þegar hún ákvað einn daginn að
Gréta Karen er pollróleg en ætlar sér að ná takmarki sínu enda vön því að fá sitt fram, enda sannur hrútur.
Ljósmyndir/Darri Ingólfsson og Michelle Darlene.
34 viðtal Helgin 22.-24. mars 2013