Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 34
www.sonycenter.is Sony Center Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700 Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645 Hágæða vatnsþéttur Android snjallsími Sony XperiA Z • 5” TFT snertiskjár með HD upplausn • 13 megapixla myndavél, LED flass • HD videoupptaka verð 139.990.- Vatnsþéttur Android snjallsími Sony XperiA V • 4,3” TFT snertiskjár með HD upplausn • 13 megapixla myndavél, LED flass • HD videoupptaka verð 99.990.- Frábær Android snjallsími Sony XperiA Tipo • 3,2” TFT snertiskjár með HD upplausn • 5 megapixla myndavél, LED flass • Videoupptaka verð 22.990.- Góð kaup á snjallsíma Sony XperiA J • 4” TFT snertiskjár með HD upplausn • 5 megapixla myndavél, LED flass • Videoupptaka verð 43.990.- Vatns og rykvarinn Android snjallsími Sony XperiA Go • 3,5” TFT snertiskjár með HD upplausn • 5 megapixla myndavél, LED flass • HD Videoupptaka verð 48.990.- Snjallar fermingargjafir frá Sony Frábært verð! hvað um lagið á Twitter og fólk fór að tékka á þessu. Einhver gaur úr sjónvarpsþáttunum The Vampire Diaries „twittaði“ laginu svo áfram sem var mjög skemmtilegt. Þetta er einhver leikari sem ég veit ekkert hver er þannig að ég „gúgglaði“ hann og hann er víst rosa frægur þannig að það var ekki verra.“ Og lagið hefur í kjölfarið ratað fyrir eyru og augu fólks á réttum stöðum. „Síðan er alls konar fólk búið að hafa samband og vill endi- lega gera einhverja samninga við mig og verða umboðsmenn mínir. Þannig að það standa alls konar viðræður yfir og ég má ekki segja neitt strax. En það er heilmikið í gangi og ég hef heyrt í fólki sem hefur mikil ítök í bransanum og hefur áhuga á mér. Þetta gengur samt þannig fyrir sig að allir tala um að það verði að drífa í því að fara að gera eitthvað en svo gerist ekkert strax. Þannig að ég hef ekkert viljað hafa hátt um þetta og er ekkert að hringja heim í hvert skipti sem einhver hefur samband við mig og boða heimsyfirráð. Mér finnst það ekki smart. Ég læt frekar í mér heyra þegar hlutirnir fara að gerast fyrir alvöru og var nú ekkert sérlega spennt fyrir þessu viðtali og hafði dálitlar áhyggjur af því að þetta yrði leiðinlegt spjall vegna þess að ég get svo lítið talað um þetta.“ Ætlar að slá í gegn Gréta hefur síður en svo setið auðum höndum eftir að hún lauk námi sínu í Los Angeles og hún var byrjuð að plægja akurinn áður en hún sendi Nothing frá sér á vefnum. „Ég var nýkomin hingað út þegar mér bauðst að syngja lag í bíómynd sem ég man nú ekki hvað heitir enda hef ég lítið hugsað um hana eftir að ég skilaði laginu af mér. Ég veit ekki einu sinni hvort myndin er komin út.“ Gréta syngur Nothing með til- þrifum og miklum glæsibrag á myndbandinu þannig að þeir sem á hlýða þurfa ekki að velkjast í vafa um að hún býr yfir hæfileikum en þeir einir og sér hrökkva skammt í hinum harða tónlistarbransa. „Þetta snýst svo mikið um að þekkja rétta fólkið og koma sér á framfæri á réttum stöðum. Ég hef til dæmis sungið á mjög flottum stað hérna úti, The Sayers Club. Þetta er einn heitasti staðurinn hérna og þarna troða bæði þekktir og óþekktir upp. Prince söng þarna til dæmis um daginn. Þetta er mjög flottur staður með frábæru hljóðkerfi og það er alltaf eitthvert frægðarfólk þarna að hlusta og spila auk þess sem bransaliðið er mikið þarna. Það má segja að hlut- irnir hafi byrjað að gerast þegar ég byrjaði að syngja þarna.“ Gréta segist sigla rólega í átt að settu marki en hún hafi þó farið út staðráðin í því að slá í gegn. „Ef ég ákveð eitthvað þá fylgi ég því nú vanalega eftir alla leið. Það er hrút- urinn í mér,“ segir Gréta ákveðin og laus við þær efasemdir um eigið ágæti sem lágu áður á henni. „Mað- ur vonar alltaf það besta og sér svo bara til hvað gerist.“ Pabbi hefur stutt mig með ráðum og dáð Gréta á ekki tónlistina langt að sækja en hún er dóttir Grétars Örv- arssonar sem löngum var kenndur við Stjórnina. Hún hefur því verið á kafi í tónlist frá blautu barnsbeini. „Jú. Mikið rétt. Ég byrjaði ung að spila á píanó og lærði klassískan píanóleik þegar ég var yngri og píanóið hefur alltaf heillað mig. Og pabbi er náttúrlega sá sem hann er og Kiddi bróðir er líka í þessu og allir. Pabbi hefur stutt við bakið á mér með ráðum og dáð og við erum bestu vinir í dag. Hann styður mig í öllu sem ég geri og honum finnst þetta bara frábært allt saman.“ Gréta vann hjá 365-miðlum þegar hún ákvað einn daginn að Gréta Karen er pollróleg en ætlar sér að ná takmarki sínu enda vön því að fá sitt fram, enda sannur hrútur. Ljósmyndir/Darri Ingólfsson og Michelle Darlene. 34 viðtal Helgin 22.-24. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.