Fréttatíminn - 22.03.2013, Síða 38
Diamond
Gloss
Sjampó og
hárnæring
Inniheldur demants
agnir sem gefa
mikinn gljáa og
fljótandi keratín
sem gerir hárið
létt og mjúkt.
Arnaldur og Stieg Larsson bera af öðrum
Andrés Jónsson almannatengill
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona
Ásgeir Eyþórsson útvarpsmaður
Birgir Guðmundsson, lektor við Háskólann á Akureyri
Elín Sveinsdóttir dagskrárframleiðandi
Erla Björg Gunnarsdóttir menningarfræðingur
Eygló Þóra Harðardóttir alþingismaður
Gunnar Helgason leikari
Gunnar Lárus Hjálmarsson rithöfundur
Guðmundur Steingrímsson alþingismaður
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra
Kristín Eva Þórhallsdóttir dagskrárgerðarkona
Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri
Margrét Marteinsdóttir, dagskrárstjóri Útvarpsins
Margrét Tryggvadóttir alþingismaður
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Íslensku
tónlistarverðlaunanna
Nanna Rögnvaldardóttir, ritstjóri og matargúrú
Oddný G. Harðardóttir alþingismaður
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður
Jóhann Ágúst Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Kraums
Júlía Margrét Alexandersdóttir blaðamaður
Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður
Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur
Örn Úlfar Sævarsson hugmyndasmiður
Álitsgjafar
Íslendingar eru óðir í spennusögur. Engu
virðist skipta hvort um íslenska eða norræna
höfunda er að ræða, góðir krimmar seljast
í þúsundum eintaka. Um hundrað þúsund
eintök af nýjum spennusögum seljast hér
á landi á hverju ári og þá er ótalið allt
sem selst á bókamörkuðum og víðar. En
hvaða höfundar eru bestir? Fréttatíminn
fékk 24 álitsgjafa til að velja besta íslenska
spennusagnahöfundinn og besta norræna
spennusagnahöfundinn.
Þ essi bylgja fer af stað með Stieg Larsson. Hún reis hátt og hefur ekki fallið enn,“ segir Kristján Kristjánsson, útgefandi hjá Upp-heimum.
Ekkert lát virðist á vinsældum norrænna glæpa-
sagna hér á landi. Þær eru gefnar út í kiljum allt árið
um kring og eru rifnar úr hillum verslana. Vinsældir
krimmanna hafa breytt landslaginu í bókaútgáfu.
Áður fyrr voru bækur fyrst og fremst gefnar út fyrir
jólin en nú er krimmunum mjatlað út allt árið. Fram
undan eru einmitt „litlu jólin“ í bókaútgáfu en margir
telja nauðsynlegt að birgja sig vel upp af bókum fyrir
páskahelgina.
Ótaldar eru íslensku glæpasögurnar. Turnarnir
tveir, Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir,
selja bækur í tugum þúsunda eintaka á ári hverju og
sífellt fleiri höfundar njóta sömuleið-
is vinsælda í þessum geira.
Egill Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Forlags-
ins og formaður Félags
íslenskra bókaútgefanda,
segir að áætla megi að
um hundrað þúsund ein-
tök af nýjum glæpasögum
seljist á hverju ári hér á
landi. Þá eru ótaldar allar
eldri bækur sem seljast á
bókamörkuðum og víðar.
Kristján Kristjánsson hjá
Uppheimum segir að vin-
sældir glæpasagna hér
á landi komi ekki á
óvart, krimmun-
um sé mokað
út um alla
Skandinavíu.
„Maður
hristir bara
hausinn.
Það virðist
ekkert lát
þessu. Þrem-
ur mánuðum
eftir að við
gefum út
bók eftir Ca-
millu Läck-
berg fara
aðdáendur
að hringja
hingað
og spyrja
hvenær von
sé á þeirri
næstu.“
1.
stieg larsson
8 atkvæði
„Millenium-trílógían braut blað í norrænni
glæpasagnaritun (rétt eins og Sjöwall
og Wahlöö gerðu á sínum tíma) með því
að taka mál eins og kvenhatur og setja
róttækari fókus á það en áður hefur verið
gert í glæpasagnasögunni.“
„Lisbeth Salander ... er ein eftirminni-
legasta kvenpersóna seinni tíma.“
„Magnaðar spennusögur sem skarta
einum flottasta kvenkarakter sem sögur
fara af.“
2.
jo Nesbø
6 atkvæði
„Hann er langbestur á Norðurlöndum;
byggir á hinni norrænu hefð auk þess
sem hann blandar af nokkurri ósvífni
elemetnum úr bandaríska krimmanum
saman við það og úr verður kröftugur
kokkteill.“
„Sérfræðingur í snjöllum fléttum. Maður
sogast inn í söguna og er ekki mönnum
sinnandi fyrr en lestrinum lýkur.“
„Bækurnar hans eru hressilega skrif-
aðar og spennandi, vel merktar inn í þessa
félagslegu norrænu glæpasagnahefð en
örlítið meira brútal og hraðari. Svo er hann
frábær barnabókahöfundur líka.“
3.
Henning Mankell
4 atkvæði
„Ótrúlegur þungi í stílnum hans en um leið
getur hann hraðað á frásögninni að vild
eins og að sprauta frá garðslöngu. Það er
líka ótrúlegt að maður er alltaf jafn fárán-
lega spenntur þótt hann segi strax frá því
í fyrsta kafla hver morðinginn er. Mankell
er dökkt súkkulaði, mjög dökkt súkkulaði,
með miklu kakómagni.“
„Hann er einhvern veginn bara
með’etta. Ég get ekki hætt að lesa þegar
ég byrja.“
Af erlendum höfundum voru þessi einnig nefnd: Jussi Adler-Olsen (2 atkvæði), Åsa Larsson, Liza Marklund, Sjöwall og Wahlöö og
Sara Blædel.
1
arnaldur indriðason
12 atkvæði
„Þótt aðrir höfundar hafi kannski nálgast hann
í sölutölum eru þeir óravegu frá því að ná hans
tálgaða stíl.“
„Grafarþögn var sérstaklega minnisstæð,
vegna þess hvernig höfundur náði að lýsa þróun
og afleiðingum heimilisofbeldis á magnaðan
hátt.“
„Arnaldur er konungurinn. Klunnalegur og
kuldalegur stíll hans hæfir formúlukrimmanum
prýðilega og honum hefur tekist merkilega vel
að halda dampi. Menn eins og Ævar Örn hafa
gert skammæra atlögu að konungsdæminu en
hefur skort snerpuna, duginn og þolgæðið. Hann
hokrar því uppí Mosó við að semja krossgátur
meðan Arnaldur veit ekki aura sinna tal. Verða
ekki hæfileikarnir í þessum efnum að miðast að
einhverju leyti við slíka velgengni?“
„Bækurnar hans eru yfirleitt spennandi en
taka líka á ýmsum samfélagsmeinum. Maður fær
það heldur yfirleitt ekki á tilfinninguna að hann
hafi verið að flýta sér um of að skila handritinu
fyrir jólin eins og mér finnst eiga við um suma
aðra.“
„Sá íslenski glæpasagnahöfundur sem hefur
náð mestri dýpt í persónusköpun, leggur mikla
vinnu í að nýta sögulegt efni í sögusvið sitt og
nær um leið að halda spennu.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
2.-3.
Yrsa sigurðardóttir
3 atkvæði
„Yrsu tekst vel upp með að flétta inn í spennuna yfirnátt-
úrulegri mystík sem er eitthvað sem trúgjarnir Íslendingar
kunna vel að meta.“
„Yrsa fyrir Ég man þig því með henni varð hún
besti spennusagnahöfundur Íslandssögunnar.
Ég vanrækti börnin mín meðan á lestri stóð.
Skyndibiti þrjú kvöld í röð og tölvuleikjanotkun
með mesta móti.“
„Það hvernig hún leikur sér að draugum verður
aldrei klént heldur þrælvirkar og fær hárin til
að rísa enn meira.“
2.-3.
Ævar Örn jósepsson
3 atkvæði
„Arnaldur er betri rithöfundur ... en mér
finnst Ævar Örn betri sem spennusagna-
höfundur og vildi gjarna sjá mun meira til
hans.“
Af innlendum höfundum voru þessi
einnig nefnd: Viktor Arnar Ingólfsson,
Helgi Ingólfsson, Fritz Már Jörgensen,
Stefán Máni, Sólveig Pálsdóttir og Gunnar
Gunnarsson.
38 glæpasögur Helgin 22.-24. mars 2013