Fréttatíminn - 22.03.2013, Qupperneq 54
54 heilsa Helgin 22.-24. mars 2013
skíði Námskeið fyrir fatlaða á akureyri
É g hafði heyrt af því áður og fundist eðlilegt að hreyfihaml-að fólk færi á skíði ef búnað-
urinn væri til staðar,“ segir Guðný
Bachmann, fulltrúi Vetraríþrótta-
nefndar Íþróttasambands fatlaðra,
sem hefur kennt og aðstoðað á skíða-
námskeiðum fyrir fatlaða. „Þegar ég
sá hversu auðveld skíðaiðkunin er,
þrátt fyrir að fólk sé hreyfihamlað,
hafði það mikil áhrif á mig og ég fór
til Bandaríkjanna til að kynna mér
þetta betur,“ segir hún.
Á þessu ári voru haldin tvo nám-
skeið á Akureyri á vegum Íþrótta-
sambands fatlaðra, Vetraríþrótta-
miðstöðvar Íslands og Hlíðarfjalls.
Guðný hefur aðstoðað og kennt á
þessum námskeiðum frá upphafi.
„Ég fylgdist með og aðstoðaði á nám-
skeiði 2006 en þá var ég að sjá fatlað
fólk á skíðum í fyrsta sinn.
Íþróttasamband fatlaðra og
Vetraríþróttamiðstöð Íslands á
Akureyri hafa verið í samstarfi við
NSCD frá árinu 2006. NSCD eru
69%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
Fatlaðir geta vel skíðað
Þátttakendur og aðstandendur í blíðviðrinu á Akureyri á dögunum. Mynd: Marrit Meintema
„Þegar ég sá
hversu auðveld
skíðaiðk-
unin er, þrátt
fyrir að fólk sé
hreyfihamlað,
hafði það mikil
áhrif á mig
og ég fór til
Bandaríkjanna
til að kynna
mér þetta
betur.“
bandarísk samtök sem hafa starfað að endur-
hæfingarmálum fatlaðra með áherslu á íþrótta-
iðkun. Samtökin eru með aðstöðu í Winter park
í Colorado og þar fer fram markviss skíðaþjálfun
og endurhæfingarstarf í tengslum við barnaspít-
ala í Denver. Markmiðið er að efla vetraríþróttir
fatlaðra á Íslandi og auka samstarf við færustu
sérfræðinga heims á þessu sviði. Nokkrir Ís-
lendingar hafa sótt námskeið til Bandaríkjanna
en þar starfa færustu leiðbeinendur heims á sviði
skíðaþjálfunar fatlaðra. Tveir Íslendingar stunda
nú æfingar og keppni ytra, þau Erna Friðriks-
dóttir og Jóhann Hólmgeirsson. Þau æfa bæði í
Winter Park á vegum NSCD og markmiðið er að
taka þátt í vetrarólympíuleikum fatlaðra í Sochi í
Rússlandi árið 2014.
Guðný segir það hafa gengið erfiðlega til að
byrja með að ná til fatlaðs fólks og fá það til að
koma á skíði. „Það þurfti nánast að hringja í fólk
og biðja það um að koma í fjallið og prófa að fara
tvær ferðir. Í dag vita fleiri að það er til sérstakur
skíðabúnaður fyrir hreyfihamlað fólk. Til dæmis
skíðagrind, setskíði og stafaskíði sem eru eins
og hækjur með skíðum neðst. Skíðaiðkendur
hafa einnig mjög mismunandi færni á skíðum,
allt frá því að vera að æfa sig í að ná jafnvægi á
skíðum yfir í að svífa tignarlega yfir fannhvíta
jörð. Þar af leiðandi finnst mörgum hreyfihöml-
uðum einstaklingum þeir falla vel inn í hóp
skíðaiðkenda því einstaklingarnir í fjallinu eru af
öllum toga en allir eru jafnir og stefna að því að
eiga góða dag í góðum félagsskap,“ segir Guðný.
Bjarni Pétur Jónsson
bjarni@frettatiminn.is
Tveir Íslendingar stunda nú æfingar og keppni á skíðum í Denver í Colorado,
þau Erna Friðriksdóttir og Jóhann Hólmgeirsson. Þau stefna á vetrarólymp-
íuleika fatlaðra í Rússlandi 2014.
facebook.com/frettatiminn
Vertu vinur okkar
á og þú getur
átt von á glaðningi.