Fréttatíminn - 22.03.2013, Qupperneq 56
56 heilsa Helgin 22.-24. mars 2013
Solla á Gló – beSti hráfæðiSkokkur heimS
Skíði opið í bláfjöllum um helGina
Hitakóf - Svitakóf
Hita- og svitakóf er oft fylgikvilli breytingarskeiðs kvenna
Chello hefur bætt líðan fjölda kvenna á
þessu annars frábæra tímaskeiði.
Chello er náttúrulegt efni og fæst í þremur tegundum:
Chello fæst í heilsubúðum, apótekum
og heilsuhillum stórmarkaðanna
Náttúruleg lausn á
breytingarskeiðinu
www.gengurvel.is
facebook:
Chello fyrir
breytingarskeiðið
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Grænn án
Soja
Rauður fyrir konur
yfir fimmtugt
Blár fyrir konur
undir fimmtugt
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur
og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði
í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös
á sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta
kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu
sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn eða ert með þrönghornsgláku.
Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum,
ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki
ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli.
Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Útlit er fyrir góða helgi í Blá-
fjöllum. Veðurspá lofar góðu og
starfsfólkið býr sig undir annasama
helgi. Opið verður frá klukkan
10-17 og verða flestar brekkur á
Heimatorfu og suðursvæði opnar.
Starfsfólk í Bláfjöllum hefur
unnið hörðum höndum að því að
fríska upp á alla palla og rail fyrir
helgina svo allir geti skemmt sér
sem best.
Opnunartími í dymbilviku:
mánudagur – miðvikudagur 11-21,
rútuáætlun skv. helgum og virkum
dögum. Frá skírdegi til annars
dags páska er opið frá klukkan
10-17.
Skíða- og brettaskólinn hefur
slegið rækilega í gegn í Bláfjöllum í
vetur. Skráning í skólann fer fram á
heimasíðunni www.skidasvaedi.is.
Gott veður og góð stemning
í brekkunum í Bláfjöllum
Þ egar maður er svona mið-aldra hugsjónakerling þá gerir maður ekki hvað sem
er. Ég þarf alltaf að fara mínar
eigin leiðir, stundum getur það
verið skemmtilegt en stundum
alveg rosalega flókið.“ Sólveig
Eiríksdóttir, eða Solla eins og hún
er gjarnan kölluð, hefur starfað
sem einkakokkur fyrir fjölda fólks
og skapað sér gott orð sem slíkur
víða um heim. Hún segist hugsa
til þess að ef hún væri nokkrum
árum yngri væri hún líklega á
sólarströnd að elda fyrir milljóna-
mæringa.
Besti hráfæðiskokkur heims
Solla var nýlega valin besti
hráfæðiskokkur heims í tveimur
flokkum, simple chef og gourmet
chef. Kosið var á vefsíðunni bestof-
rawfoods.com. Hún segir mikla
vakningu hafa orðið í þessum
efnum síðustu ár og í kjölfarið
hafa verið haldnar ráðstefnur til að
vekja enn frekari athygli og áhuga
fólks á hráfæði. „Fyrir sjö eða átta
árum síðan þegar hráfæðið var í
sem mestum vexti tóku nokkrir
aðilar sig saman og hafa haldið
nokkrar ráðstefnur síðan. Þar hafa
þeir verðlaunað þá sem hafa þótt
skara fram úr, hver á sínu sviði.
Ætli það séu ekki komin fimm ár
síðan ég var tilnefnd fyrst og var
kosinn fimmti besti hráfæðiskokk-
ur í heiminum.“ Solla vann þennan
flokk í fyrra og bar svo aftur sigur
úr býtum í ár.
Áhugi frá Bandaríkjunum
Solla hefur farið til Los Angeles
nokkrum sinnum á ári og verið
með sýnikennslu fyrir framan
fjölda fólks. Fólk hefur einnig geta
fylgst með á netinu. Hún fer alltaf
út tvisvar á ári og hefur hægt og
rólega verið að eignast sína aðdá-
endur úti í heimi. „Kaninn tekur
svo mikið mark á svona keppnum
og svo framvegis. Þeim finnst
þú hafa slegið í gegn ef þú hefur
unnið einhverja keppni og svoleið-
is. Þetta er auðvitað mikil viður-
kenning fyrir mig því ég er svo
einangruð hérna á Íslandi. Ef ég
væri nokkrum árum yngri myndi
ég örugglega lifa yndislegu lífi og
væri að elda fyrir einhverja millj-
ónamæringa á Balí. Núna finnst
Einangruð á Íslandi
Sólveig Eiríksdóttir var valin besti hráfæðiskokkur heims annað árið í röð. Hún opnar nýjan
veitingastað á Laugaveginum eftir páska og lætur sig dreyma um að opna stað í Bandaríkjunum.
Það er útlit fyrir frábæra helgi í Bláfjöllum.