Fréttatíminn - 22.03.2013, Blaðsíða 57
mér þetta meiri viðurkenning á
mínum verkum svona almennt.“
Gló opnar á Laugaveginum
Hún segist finna fyrir þrýstingi
að opna veitingastað í Bandaríkj-
unum. Það sé ýmislegt í gerjun og
mikill áhugi að utan en ekkert sem
komið er á hreint. Þau hafi þó nóg
með Gló og allt sem því tengist hér
á landi. „Við erum að fara að opna
á nýjum stað á Laugaveginum þar
sem veitingastaðurinn Á næstu
grösum var til húsa. Við ætlum að
reyna að opna fljótlega eftir páska.
Ég ber mjög mikla virðingu fyrir
þessu húsi því þarna var fyrsti
grænmetisstaðurinn á Íslandi. Ég
var að vinna þarna árið 1988 og
vann þarna í sex ár. Mér þykir því
mjög vænt um húsið og það er ein-
hver svakalega skemmtileg ára
þarna.“
Bjarni Pétur Jónsson
bjarni@frettatiminn.is
páskar sólveig eiríksdóttir í gló
heilsa 57Helgin 22.-24. mars 2013
Kvennaleikfimi
Mán., mið. og fös. kl. 16:30.
Verð 3x í viku kr. 14.900,-
Þri. og fim. kl. 10:00.
Verð 2x í viku kr. 12.900,-
Í form fyrir golfið
Mán., mið. og fös. kl. 12:10-12:55.
Verð 3x í viku kr. 14.900,-
Þri. og fim. kl. 12:10-12:55.
Verð 2x í viku kr. 12.900,-
Morgunþrek
Fyrir lengra komna.
Mán., mið. og fös.
kl. 7:45 eða 09:00.
Verð kr. 14.900,-
Zumba og Zumba toning
Þri. og fim. kl. 16:30
Verð kr. 12.900,-
Yoga
Þri. og fim. kl. 12:00
Verð, 4 vikur, kr. 12.900,-
Leikfimi fyrir 60 ára
og eldri
Mán og mið kl. 11:00.
Mán. og mið. kl. 15:00
Verð kr. 9.900
Zumba Gold 60+
Fyrir 60 ára og eldri
sem hafa gaman af að dansa.
Þri. og fim. kl. 11:00.
Verð kr. 9.900,-
Skelltu þér í ræktina!
Ný námskeið hefjast 4. og 5. apríl. 4 vikur.
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg
í þó nokkurn tíma og var búin að vera að hugsa lengi
um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég er
búin með grunnnámskeið í Heilsulausnum og er núna
á framhaldsnámskeiðinu. Ég hef náð góðum árangri,
náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari
og með miklu meiri orku. Maður verður að vilja gera
þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að megra sig þetta snýst
um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott líkamlegt og andlegt
form.“
Helga Einarsdóttir
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
Ferðir við allra hæfi
Skráðu þig inn – drífðu þig út
www.fi.is
Ferðafélag Íslands
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
www.gengurvel.is
BELLAVISTA náttúrulegt
efni fyrir augun, ríkt af
lúteini og bláberjum
ÞREYTT AUGU
s úkkulaði hefur lengi verið talið
hafa heilsusam-
lega eiginleika
vegna andoxunar-
efna. Þetta á að
sjálfsögðu við um
það sem kemur
úr kakóbauninni
sjálfri, ekki við-
bætta sykurinn.
Sólveig Eiríks-
dóttir, eða Solla í
Gló eins og hún
er gjarnan kölluð,
segir það hafa
marga kosti í för
með sér að búa til
sitt eigið súkkul-
aði. Þá getum við ráðið sykur-
magninu, valið þá gerð sykurs sem
okkur líkar best og nýtt okkur
lífrænt ræktað hráefni. „Á mínu
heimili höfum við í mörg ár haft
þann sið að búa til okkar eigin
páskaegg. Þetta gerum við fyrst
og fremst vegna þess að okkur
finnst svo gaman að föndra svolítið
saman, en einnig er stór kostur að
ráða algerlega innihaldinu sjálfur.
Sumum finnst gott að fylla heima-
gerðu eggin sín með hnetum og
þurrkuðum ávöxtum, þetta passar
vel að maula með dökku súkkulaði
og er næringarríkara en sælgæti,“
segir Solla. Hún segir þetta egg
vera fyrir þá ævintýragjörnu
sem vilji prófa eitthvað nýtt og
skemmtilegt.
Spennandi „ofur“ egg
1/2 bolli kakónibbur, malaðar í mat-
vinnsluvél eða blandara (hægt að nota
kryddkvörn)
1/4 bolli kakóduft
1/2 bolli fínt malaðar kasjúhnetur eða
möndlur (sem búið er að afhýða)
1/4 bolli kókospálmasykur
1 msk lucuma (gefur karamellukeim)
1 tsk maca
1/4 tsk salt
1/4 tsk stevía
1 bolli kakósmjör í fljótandi formi (pokinn
settur í skál með 40° - 45° heitu vatni)
1/4 bolli kókosolía
Til að byrja með er þurrefnunum
hrært saman í skál, olíunni bætt
við og loks öllu blandað vel saman.
Ekkert samviskubit um páskana
Gerðu þitt eigið páskaegg.
„Fyrir þessa uppskrift er best að
nota minnstu eggjaformin og fylla
þau alveg og búa til gegnheil egg.
Þegar þið hafið fyllt formin er best
að setja þau í frysti eða kæli til að
leyfa eggjunum að storkna alveg í
gegn.“ Solla segir það mikilvægt
að gleyma því ekki að páskarnir
séu bara einu sinni á ári. Þeir sem
elski hefðbundin páskaegg og sæl-
gæti þurfi ekki að fá samviskubit
yfir einu árlegu páskaeggi.