Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Page 70

Fréttatíminn - 22.03.2013, Page 70
70 bíó Helgin 22.-24. mars 2013 Heldur syrtir síðan í álinn hjá köppunum þegar í ljós kemur að á jörðu niðri er samsæri um að fá risana í mann- heima.  ryan Singer HriStir upp í Jóa og baunagraSinu b ryan Singer hitti í mark með hinum skemmtilega f léttaða krimma The Usual Suspects árið 1995. Því næst gerði hann Apt Pupil eftir nóvellu Stephens King um ungan afburðanemanda sem sturlast við kynni sín af gömlum nasista sem fer huldu höfði í heimabæ hans. Sir Ian McKellen lék roskna stríðsglæpamanninn sem ornaði sér við gaml- ar minningar úr útrýmingabúðunum með því að stinga hundum og köttum inn í gasofninn í eldhúsinu heima hjá sér. Samstarf Singers og McKellen hélt áfram árið 2000 þegar Singer tók að sér að snara fram almennilegri mynd um stökkbreyttu Marvel-ofurhetjurnar sem kenndar eru við X-Men. Þar lék McKellen skúrkinn Magneto með ágætum. Singer skilaði síðan framhalds- myndinni X2 en eftirlét Brett Ratner að leik- stýra þriðju myndinni X-Men: The Last Stand þar sem hann vildi endilega snúa sér að Super- man. Niðurstaðan varð Superman Returns sem Singer sendi frá sér 2006 og olli þó nokkrum vonbrigðum. Singer hefur nú tekið aftur við X- fólkinu og leikstýrir næstu mynd um ævintýri þeirra, X-Men: Days of Future Past. Áður en Singer fór aftur til fundar við ást- kærar stökkbreyturnar sínar millilenti hann í þjóðsagnaheimi Jóa og baunagrassins en mynd- in Jack the Giant Slayer er nú loks komin í bíó eftir tafir og alls konar vandræðagang í fram- leiðslunni. Hér segir Singer frá bóndasyninum Jack sem kemst yfir töfrabaunir sem hann glutrar niður þegar hann hittir hina hugrökku prins- essu Isabelle. Jack verður undir eins ástfanginn af Isabelle en þegar hann missir baunirnar sprettur upp risavaxið baunagras og með því skýst prinsessan upp í tröllaheima. Konungur sendir þá fræknasta riddara sinn, sem Ewan McGregor skemmtir sér greini- lega konunglega við að leika, af stað til þess að bjarga Isabelle. Með honum í för er fláráður vonbiðill prinsessunnar sem Stanley Tucci leikur og Jack slæst að sjálfsögðu í hópinn enda mjög áfram um að bjarga stúlkunni sem hefur fangað hjarta hans. Heldur syrtir síðan í álinn hjá köppunum þegar í ljós kemur að á jörðu niðri er samsæri um að fá risana í mannheima til þess að ræna þar völdum. Þá eru góð ráð dýr enda stefnir allt í magnað lokauppgjör milli risa og manna og þeir smávaxnari þurfa ekki að kemba hær- urnar hafi risarnir betur í þeim darraðardansi. Aðrir miðlar: Imdb: 6,6, Rotten Tomatoes: 51%, Metacritic: 51% Leikstjórinn Bryan Singer vakti fyrst verulega athygli með hinni stórgóðu glæpamynd The Ususal Suspects fyrir einum átján árum. Undanfarin ár hefur hann helst fengist við ofurhetjur og þá fyrst og fremst X-Men. Í Jack the Giant Slayer tekur hann hliðarspor og dembir sér út í gamaldags ævintýri þar sem menn og risar takast á með miklum látum. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Tilbrigði við kunnuglegt stef Jack hikar ekki við að snarast upp í risaheima til þess að bjarga stúlkunni sem hann elskar. Katie er ung og falleg kona sem er á flótta undan skuggalegri fortíð sinni. Hún kemur sér fyrir í smábæ í Norður-Karólínu þar sem hún vekur nokkra forvitni og athygli enda þykir hún í meira lagi dularfull þar sem hún dúkkar upp einn daginn án þess að eiga nokkrar tengingar við bæinn. Þótt hún reyni að láta lítið fyrir sér fara og halda fólki frá sér festir hún rætur í samfélaginu, eignast góða vinkonu í nágranna sínum og binst tveggja barna, bráðhuggulegum ekkli sterkum tilfinn- ingaböndum. Katie er þó ekki lengi í paradís þar sem fortíðin eltir hana uppi og hún þarf að gera upp við sig hvort hún leyfi hjartanu að ráða, leggi allt undir eða haldi áfram að flýja. Leikstjórinn Lasse Hallström (Mitt liv som hund, What's Eating Gilbert Grape) leikstýrir er myndin er úr smiðju þeirra sem gerðu hina hjartnæmu The Notebook, sem nánast vonlaust er að horfa á án þess að rennbleyta nokkra vasaklúta, þannig að hér má búast við miklu tilfinningadrama. Aðrir miðlar: Imdb: 6.2, Rotten Tom- atoes: 13%, Metacritic: -  frumSýnd Save Haven Öruggur staður að vera á  frumSýnd SnitcH Traustur pabbi Vöðvatröllið Dwayne Johnson, sem lengst af var þekktur sem The Rock, tekur á honum stóra sínum í glæpamyndinni Snitch. Hann leikur vörubílstjórann John Matthews sem þarf að koma syni sínum til bjargar þegar hann flæk- ist í dópviðskipti. Drengurinn á yfir höfði sér tíu ára dóm sem hann getur ein- ungis fengið mildaðan með því að koma upp um höfuðpaurana í málinu. Stráksi er því miður hið mesta gauð og faðir hans sér ekki fram á að honum takist að snúa á glæpamennina. Hann býður sig því fram í stað sonarins og freistar þess að komast inn undir hjá dóp- genginu og afla sönnunargagna gegn hyskinu. En það er enginn hægðarleikur og bílstjórinn þarf að tefla á tæpasta vað. Eðalleikkonan Susan Sarandon og sá allt of sjaldséði Parry Pepper setja svip sinn á myndina sem þó hverfist fyrst og fremst um The Rock. Aðrir miðlar: Imdb: 6,9, Rotten Tomatoes: 56%, Metacritic: 52% Katie finnur öryggi í örmum ekkju- manns en sælan endist ekki lengi. Dwayne Johnson lætur sig ekki muna um að tuska eiturlyfjaskúrka til í hlutverki vörubílstjóra sem tekur málin í sínar hendur. Viðhald húsa Fréttatíminn gefur út blað um viðhald húsa í samvinnu við Húseigendafélagið 12 apríl. Þetta er einstakt tækifæri fyrir ykkur að ná til þeirra sem hyggja á endurbætur, með auglýsingu eða kynningu á starfsemi ykkar í vönduðu blaði sem unnið er af fagmönnum. Hafið samband við Baldvin Jónsson í síma 531 3311 eða sendið honum póst á netfangið baldvin@frettatiminn.is og fáið nánari upplýsingar. 12. Apríl MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS n MIÐASALA: 412 7711 KOMDU Í KLÚBBINN! bioparadis.is/klubburinn SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! NÝTT Í BÍÓ PARADÍS SJÁ SÝNINGARTÍMA Á BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS SUN kl. 20:00 MEÐLIMUR Í sló í gegn á þýskum kvikmyn- dadögum! HANNAH ARENDT Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á þjónustustöðvum N1 um land allt HELGARBLAÐ

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.