Fréttatíminn - 22.03.2013, Page 74
KRINGLUNNI 2. HÆÐ - HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS
PROOPTIK
afmæli
25 ára
20 ÞÚSUND
króna umgjörð á
199 krónur!
- Ef þú kaupir glerið hjá okkur
Næstum allar aðrar umgjarðir á 50% afslætti
Blúsuð dymbilvika
Blúshátíð í Reykjavík hefst á laugardaginn og blúsinn mun svífa yfir
dymbilvikunni. Aðalgestir hátíðarinnar að þessu sinni eru hjónin
Lucky og Tamara Peterson og goðsögnin Guitar Shorty.
Lucky Peterson er ein helsta stórstjarna blússins um þessar mundir
og Tamara, eiginkona hans, er fær blússöngkona með hjartað á
réttum stað. Guitar Shorty er svo blúsmaður af gamla skólanum
og þessir gestir verða með þrenna stórtónleikar á Hilton Reykjavík
Nordica, þriðjudags- miðvikudagskvöld og að kvöldi skírdags.
Á fimmtudaginn, skírdag, verður tíu ára afmælishátíð Blúshátíðar
einnig haldin og þá kemur íslenska blúslandsliðið fram, Andrea
Gylfa, Vinir Dóra, Ragnheiður Gröndal, Björn Thoroddsen, Sigurður
Sigurðsson, Mike Pollock, Ásgeir Óskarsson, Langi Seli og Skuggarnir,
Sigurður „Kentár“ Sigurðsson, Berglind Björk Jónasdóttir og fjöldi
annarra.
Tónleikarnir á Nordica hefjast klukkan 20.
Fram til 15. maí næstkomandi verður hægt að fylgjast með
baráttu 18 háskólastúdenta við að koma út rúmlega 200
blaðsíðna bók á blogginu bokverdurtil.net. Verkefnið er
hluti af námskeiði meistaranema í ritlist og rit-
stjórn við Háskóla Íslands.
„Þetta er mikið álag og það er í mörg horn að
líta og einingafjöldinn kannski ekki alveg í sam-
ræmi við vinnuna, en þetta er allt svo vel þess
virði og við öll reynslunni ríkari. En þetta verður
örugglega heilsárskúrs á næstu önn,“ segir Björg
Björnsdóttir, meistaranemi í ritstjórn og ritlist.
Bókina setja nemarnir saman á um 4 mánuðum
og var það ákvörðun þeirra sjálfra að ganga alla
leið með útgáfuna og gefa þannig út heildstætt
verk þar sem hópurinn sæi sjálfur um texta, fjár-
mögnun, umbrot og alla þá fjölmörgu hluti sem
líta þarf til við útgáfu bókar. Einnig tóku þau
svo ákvörðun um að vinna vinnuna fyrir opnum
tjöldum á bloggsíðu til þess að almenningur gæti
fylgst náið með ferlinu.
„Þannig settum við líka ákveðna pressu á okk-
ur sjálf að gera þetta sem best,“ útskýrir Björg
en bloggið þjónar líka tilgangi fjármögnunar þar
sem fyrirtækjum gefst kostur á að kaupa aug-
lýsingar á síðunni og styðja þannig við bakið á
nemunum.
Aðspurð segir Björg að bókin sem komi út
verði svokölluð sýnisbók ungra höfunda þar sem
lesendanum gefst kostur á að kynna sér verk höf-
undanna ungu. Með því hyggst hópurinn tengja
ritlistina listsýningum, líkt og þekkjast í mynd-
list. „Þetta verður því hálfgerð útskriftarsýning
ritlistarnema, þessara vaxtarsprota íslenskra
bókmennta,“ segir Björg og bætir við kímin,
“erum við ekki hógvær?“
Bókina er hægt að kaupa í miðju ferlinu á vefsíðunni
bokverdurtil.net. Útgáfudaginn verður svo boðið upp á út-
gáfuhóf, „Bókmenntahátíð alþýðunnar“, sem verður haldið
í Stúdentakjallaranum.
María Lilja Þrastardóttir
marialillja@frettatiminn.is
Fimm ritstjórnarnemar vinna með þrettán ritlistarnemum
að því að velja, vinna og búa texta þeirra til útgáfu undir
leiðsögn Guðrúnar Sigfúsdóttur ritstjóra. Þar með lýkur
í raun kröfum námskeiðsins en hópurinn ákvað að stíga
skrefið til fulls og gefa í sameiningu út bók sem kemur út
um miðjan maí.
Goðsögnin Guitar Shorty hefur spilað með flestum stórstjörnum
blústónlistarinnar frá upphafi, þar á meðal mági sínum Jimi
Hendrix, Muddy Waters, Koko Taylor, Johnny Winter og fleiri.
Bókmenntir meistaranemar í ritlist gefa út Bók
Gera bók fyrir opnum tjöldum
74 menning Helgin 22.-24. mars 2013