Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.03.2013, Side 77

Fréttatíminn - 22.03.2013, Side 77
 bíó íslensk kvikmyndahelgi á 18 stöðum 34 íslenskar bíómyndir sýndar um helgina í slensk kvikmyndahelgi fer fram um helgina. Alls verða sýndar 34 íslenskar myndir á 18 sýn- ingarstöðum og ókeypis verður inn á allar sýningar. Tilefnið er hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands og sá stuðn- ingur sem kvikmyndagreinin hefur fengið í gegnum tíðina. Á bak við framtakið standa íslenskir kvik- myndagerðarmenn, í samstarfi við 18 sýningarstaði og Kvikmyndamið- stöð Íslands. Leikstjórar eða aðrir aðstand- endur myndanna verða viðstadd- ir fjölda sýninga. Óskar Jónas- son verður viðstaddur sýningu á Hetjum Valhallar á Ólafsfirði, Rún- ar Rúnarsson fer með Eldfjall sitt á Raufarhöfn, Ari Kristinsson sýnir Duggholufólkið á Blönduósi, Kristín Andrea Þórðardóttir framleiðandi Tvær glæsilegar sýningar eru nú á Kjarvalsstöðum í tilefni 40 ára afmælis listasafnsins. Ókeypis á Kjarvalsstaði á sunnudag- inn l istasafn Reykjavíkur býður til afmælishátíðar á Kjarvalsstöðum á sunnu- daginn, 24. mars, frá klukk- an 11-17. Á sunnudaginn eru 40 ár liðin frá opnun Kjar- valsstaða. Ókeypis aðgangur er að safninu allan daginn og allir velkomnir. Formleg dagskrá hefst klukkan 14 með ávarpi borgarstjóra. Klukkan 14.30 flytur Tríó Sunnu Gunn- laugs létta djasstónlist en klukkan 15 leiðir Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt gesti um húsið. Klukkan 15.30 til 16.30 verður spjall um sögu Klambratúns og uppbygg- ingu hverfisins í kringum Kjarvalsstaði. Tvær sýningar eru á Kjar- valsstöðum í tengslum við afmælið. Flæði er stærsta málverkasýning sem sett hefur verið upp á Íslandi en búast má við að hátt í eitt þúsund málverk verði sett upp þá tæpu fjóra mánuði sem hún er í gangi. Sýningin stendur til 20. maí. Klukkan 16 verður leiðsögn starfs- manna Kjarvalsstaða um sýninguna. Þá er einnig í gangi stór sýning á verkum eftir Kjar- val á safninu en á henni hafa verið dregin fram flest öll málverk eftir listamanninn sem eru í eigu Listasafns Reykjavíkur. Leiðsögn verð- ur um sýninguna klukkan 16.30. Kvikmyndin Eldfjall verður sýnd á Raufar- höfn um helgina og verður Rúnar Rúnarsson leik- stjóri viðstaddur sýninguna. fer með Borgríki á Patreksfjörð og þannig mætti áfram telja. Upplýsingar um dagskrá Ís- lenskrar kvikmyndahelgi má finna á kvikmyndamidstod.is og upplýsing- ar um bíómyndirnar er að finna á kvikmyndavefurinn.is. dægurmál 77 Helgin 22.-24. mars 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.