Fréttatíminn - 22.03.2013, Page 77
bíó íslensk kvikmyndahelgi á 18 stöðum
34 íslenskar
bíómyndir sýndar
um helgina
í slensk kvikmyndahelgi fer fram um helgina. Alls verða sýndar 34 íslenskar myndir á 18 sýn-
ingarstöðum og ókeypis verður inn
á allar sýningar.
Tilefnið er hækkun framlaga í
Kvikmyndasjóð Íslands og sá stuðn-
ingur sem kvikmyndagreinin hefur
fengið í gegnum tíðina. Á bak við
framtakið standa íslenskir kvik-
myndagerðarmenn, í samstarfi við
18 sýningarstaði og Kvikmyndamið-
stöð Íslands.
Leikstjórar eða aðrir aðstand-
endur myndanna verða viðstadd-
ir fjölda sýninga. Óskar Jónas-
son verður viðstaddur sýningu á
Hetjum Valhallar á Ólafsfirði, Rún-
ar Rúnarsson fer með Eldfjall sitt á
Raufarhöfn, Ari Kristinsson sýnir
Duggholufólkið á Blönduósi, Kristín
Andrea Þórðardóttir framleiðandi
Tvær glæsilegar sýningar eru nú
á Kjarvalsstöðum í tilefni 40 ára
afmælis listasafnsins.
Ókeypis á
Kjarvalsstaði
á sunnudag-
inn
l istasafn Reykjavíkur býður til afmælishátíðar
á Kjarvalsstöðum á sunnu-
daginn, 24. mars, frá klukk-
an 11-17. Á sunnudaginn eru
40 ár liðin frá opnun Kjar-
valsstaða. Ókeypis aðgangur
er að safninu allan daginn og
allir velkomnir.
Formleg dagskrá hefst
klukkan 14 með ávarpi
borgarstjóra. Klukkan 14.30
flytur Tríó Sunnu Gunn-
laugs létta djasstónlist en
klukkan 15 leiðir Guja Dögg
Hauksdóttir arkitekt gesti
um húsið. Klukkan 15.30 til
16.30 verður spjall um sögu
Klambratúns og uppbygg-
ingu hverfisins í kringum
Kjarvalsstaði.
Tvær sýningar eru á Kjar-
valsstöðum í tengslum við
afmælið. Flæði er stærsta
málverkasýning sem sett
hefur verið upp á Íslandi en
búast má við að hátt í eitt
þúsund málverk verði sett
upp þá tæpu fjóra mánuði
sem hún er í gangi. Sýningin
stendur til 20. maí. Klukkan
16 verður leiðsögn starfs-
manna Kjarvalsstaða um
sýninguna.
Þá er einnig í gangi stór
sýning á verkum eftir Kjar-
val á safninu en á henni hafa
verið dregin fram flest öll
málverk eftir listamanninn
sem eru í eigu Listasafns
Reykjavíkur. Leiðsögn verð-
ur um sýninguna klukkan
16.30.
Kvikmyndin
Eldfjall verður
sýnd á Raufar-
höfn um helgina
og verður Rúnar
Rúnarsson leik-
stjóri viðstaddur
sýninguna.
fer með Borgríki á Patreksfjörð og
þannig mætti áfram telja.
Upplýsingar um dagskrá Ís-
lenskrar kvikmyndahelgi má finna á
kvikmyndamidstod.is og upplýsing-
ar um bíómyndirnar er að finna á
kvikmyndavefurinn.is.
dægurmál 77 Helgin 22.-24. mars 2013