Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 40
30 úttekt Helgin 4.-6. janúar 2013
Þ
egar árið 2013 er
gengið í garð þykir
rétt að líta öld aftur í
tímann. Hvað gerðist
helst á Íslandi á því
herrans ári 1913 þegar heildar-
útgjöld ríkisins voru 1,7 milljónir
króna? Nú fæst Chevrolet Spark
fyrir þá upphæð, talsvert minni
bíll en fyrsti Fordinn, opinn T-
Ford blæjubíll, sem fluttur var til
landsins í júní þetta ár og raunar
annar í september. Í bílaflotann
bættist sama haust bifreið af
Overland-gerð sem næstu árin
keppti við Ford. Strax árið 1913
var farið að nota Fordana í leigu-
akstur. Raunveruleg bílaöld var
hafin.
Sjálfstæðisbarátta og kosn-
ingaréttur kvenna
Sjálfstæðisbaráttan var í fullum
gangi og hámark ársins var þegar
skipverjar á danska varðskipinu
Fálkanum, sem var ytri höfninni
í Reykjavík, tóku með valdi blá-
hvítan fána af Einari Péturssyni
verslunarmanni sem réri fram á
höfnina á litlum kappróðrarbáti
með þann bláhvíta á stöng í skut.
Reykvíkingar svöruðu ofbeldi
herraþjóðarinnar með því að
draga hvarvetna bláhvíta fána að
húni. Áður hafði Dannebrog blakt
víða í heiðurskyni við danska
skipið.
Á fleiri vígstöðvum var barist
gegn óréttlæti og yfirgangi. Þetta
ár samþykkti Alþingi frumvarp
um kosningarétt kvenna – og
raunar vinnumanna einnig. Ekki
var þó gengið langt í þeim efnum
því inn var sett ákvæði um 40 ára
aldurstakmark sem átti svo að
lækka smátt og smátt. Þingmenn
þess tíma, karlar eingöngu, töldu
það of mikla röskun að fjölga
kjósendum í einu vetfangi um tvo
þriðju. Betra væri að fjölgunin
kæmi í smá skömmtum. Þess var
enn fremur getið, bæði í um-
ræðum á Alþingi og í blaðagrein-
um, að sumir karlanna óttuðust
sérframboð kvenna.
Bönnuð leiksýning og Biograf
Síðla vetrar sömdu nokkrir
stúdentar í Reykjavík gamanleik-
inn Allt í grænum sjó. Revían var
í senn stjórnmálaádeila og grín
um samband manna þessa heims
við framliðna – og úr hófi þótti
ganga þegar „beitt var upp í klám-
vindinn,“ eins og það var kallað
þar sem „hjú eru sýnd í rúminu
... miklum fjölda áhorfenda skilst
svo, sem þeim væri ætlað að sjá
að nú væri athöfn í byrjun, sem
skynlausar skepnur einar láta
fara fram í annarra augsýn...“
Það fór svo að lögreglustjóri varð
við kröfu um bann á sýningum
revíunnar og stúdentar urðu að
endurgreiða selda aðgöngumiða.
Almenningur átti þó annan
kost til afþreyingar en leiksýn-
ingar. Kvikmyndahús voru að
festa sig í sessi en árið 1913
stofnaði Árni Þorsteinsson hús-
gagnasmiður, í félagi við aðra,
Kvikmyndafélag Hafnarfjarðar.
Það var forveri Hafnarfjarðarbíós
sem tók til starfa ári síðar. Fyrst
var líka getið kvikmyndasýningar
á Siglufirði árið 1913 í svonefndu
Biograf-húsi – en fyrri heim-
styrjöldin sem hófst ári síðar varð
til þess að tefja fyrir að sýningar
hæfust með reglubundnum hætti.
Hafnargerð og tvær eimreiðar
Margt horfði til framfara. Eftir
áralangan undirbúning hófst
hafnargerð í Reykjavík. Gufu-
skip kom í mars með stórvirk
verkfæri og efni til hafnargerðar-
innar. Mikla hafnargarða átti að
hlaða milli Örfiriseyjar og lands,
Grandagarð, og jafnframt tvo
garða hvorn á móti öðrum milli
eyjarinnar og Batterísins, Örfiris-
eyjargarð og Ingólfsgarð. Miklar
uppfyllingar voru fyrirhugaðar og
smíði hafskipabryggju. Til að ná
í möl og grjót í þessa miklu fram-
kvæmd var lögð um 12 kílómetra
löng járnbraut í hálfhring um bæ-
inn en efnistaka átti að fara fram
í Öskjuhlíð og á Skólavörðuholti.
Tveir gufuknúnir lyftikranar voru
notaðir við að hlaða járnbrautar-
vagnana og gufuknúin ámokst-
ursvél til að moka mölinni. Tvær
eimreiðar voru fluttar til lands-
ins árið 1913 og notaðar við gerð
hafnarinnar – en slík tæki náðu
ekki fótfestu á landinu bláa og
voru aldrei notuð sem samgöngu-
tæki eins og raunin varð í öðrum
löndum. Samt varð járnbrautar-
slys á Íslandi. Þann 4. maí árið
1913 varð stúlka undir járnbraut-
arvagni er verið var að skemmta
fólki með því að flytja það um
Eskihlíðarjárnbrautina. Stúlkan
ætlaði að stökkva af vagninum
í því að lestin stansaði en varð
undir og fótbrotnaði og hlaut
fleiri meiðsl.
Af samgöngubótum í Reykjavík
má nefna að lokið var að leiða
lækinn, sem rennur úr Tjörninni
norður í sjó og skiptir í sundur
miðbænum og austurbænum, í
stokk undir þá götu sem nafn ber
af læknum, Lækjargötu.
Eldgos og arnarfriðun
Af náttúrufari fyrir réttri öld er
þess helst að geta að allmikið
gos varð við Hrafnabjörg, austan
Heklu. Þann 25. apríl urðu menn
varir við jarðskjálftakippi á
Suðurlandi og um morguninn
sást gufumökkur hefjast hátt
á loft norðaustur af Heklu. Um
kvöldið sáust eldstólpar bera við
himin. Bjarmi af jarðeldinum
sást alla leið til Reykjavíkur.
Eldurinn var mestur í þremur
gígum í langri sprungu. Upp úr
aðalgígnum stóð eldsúla og eld-
fljót rann í bröttum fossi niður á
láglendið. Guðmundur Björns-
son landlæknir rannsakaði gosið
og hið nýja hraun nefndi hann
Lambafitjahraun. Þegar leið fram
á sumarið virtist draga smátt
og smátt úr gosinu og bar lítið
á því þar til í byrjun september
að eldar virtust færast í aukana.
Mekkir risu á ný og eldroði var á
himni um nætur en síðan kulnaði
jarðeldurinn.
Haförninn var friðaður þetta
ár til að koma í veg fyrir að þessi
konungur fuglanna yrði aldauða
hér á landi en ljóst var að stofninn
var nánast hruninn. Íslendingar
voru fyrstir allra þjóða til að friða
örninn. Á þeirri öld sem liðin er
hefur stofninn braggast heldur
þótt enn eigi arnarstofninn í vök
að verjast.
Morgunblaðið og fyrsta
fréttamyndin
Morgunblaðið hóf göngu sína 2.
nóvember árið 1913 – og kemur
enn út. Það má því búast við því
að Óskar Magnússon útgefandi
og ritstjórarnir, Davíð Oddsson
og Haraldur Johannessen, slái
í rjómapönnsur næsta haust til
að fagna aldarafmælinu. Upp-
hafsmaður að stofnun Morgun-
blaðsins var Vilhjálmur Finsen
sem hafði átt sér þann draum
í fjölda ára
að koma út blaði í Reykjavík.
Ólafur Björnsson, vinur hans og
samherji, lagði til húsnæði og
prentaðstöðu í Austurstræti 8 þar
sem Ísafold var til húsa.
Á upphafsdögum Morgunblaðs-
ins birtist fyrsta fréttamynd sem
gerð var hér á landi, af Dúkskoti,
vettvangi morðmáls þar sem kona
myrti bróður sinn með því að
byrla honum rottueitur í skyri.
Bróðirinn lést 13. nóvember 1913
í Landakotsspítala eftir innan-
tökur og uppsölu.
Hagstofan og Eimskip í
augsýn
Þetta sama haust gengu í gildi lög
um Hagstofu Íslands. Hlutverk
hennar var, eins og sagði í þeim
lögum, „að safna skýrslum um
landshagi Íslands, vinna úr þeim
og koma þeim fyrir almennings
sjónir.“ Hagstofan tók til starfa
um nýár 1914 en Þorsteinn Þor-
steinsson var skipaður hagstofu-
stjóri.
Allt árið 1913 var unnið að
stofnun íslensks gufuskipafélags
sem getur „er því vex fiskur um
hrygg, tekið að sér bæði milli-
landaferðirnar og strandferð-
irnar.“ Óhætt er að þjóð og þing
hafi sameinast um það félag enda
brugðust menn hart við er Sam-
einaða gufuskipafélagið danska
reyndi að kyrkja hið nýja íslenska
skipafélag í fæðingu. Menn voru
nær orðlausir yfir „fáheyrðri
frekju“ hins danska félags og
Íslendingar svöruðu með því
að kaupa hlutabréf í innlenda
gufuskipafélaginu fyrir þúsundir
króna. Framkoma danska félags-
ins var sögð í senn „óprúttin og
óhyggileg banatilræðisviðleitini“.
Skipafélagið varð til í janúar ári
síðar, „óskabarn þjóðarinnar“,
Eimskipafélag Íslands, sem við
þekkjum enn í dag.
Það styttist því í stórafmælið
á þeim bænum, ekki síður en á
Mogganum.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Eimreið,
hafnargerð og
fyrsti Fordinn
Árið 1913, fyrir
réttri öld, voru
samþykkt lög
sem veittu
konum kosninga-
rétt – þó aðeins
fertugum og eldri
svo kjósendum
fjölgaði ekki um of
auk ótta við sér-
framboð kvenna.
Raunveruleg
bílaöld hófst
þetta ár með
tveimur fyrstu
Ford-bílunum og
tvær eimreiðar
voru fluttar til
landsins til malar-
flutninga vegna
hafnargerðar í
Reykjavík. Sjálf-
stæðisbaráttan
kristallaðist í
fánamálinu og
Morgunblaðið hóf
göngu sína.
Fyrsta forsíða
Morgunblaðsins,
2. nóvember 1913.
Fyrsta fréttamyndin
sem gerð var hér
á landi. Hún birtist
í Morgunblaðinu í
nóvember 1913, af vett-
vangi morðmáls í Dúks-
koti. Þar myrti kona
bróður sinn með skyri
blönduðu rottueitri.
Kotið var torfbær og
tómthúsbýli sem reist
var um 1800. Dúkskot
var við Hlíðarhúsastíg
(Vesturgötu) og stóð í
núverandi götustæði
Garðastrætis. Dúkskot
var rifið um 1920.