Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 48
38 skák Helgin 4.-6. janúar 2013  Skákakademían Carlsen í hæstu hæðum J æja, góðir hálsar, þá er það opinbert: Magnús frændi okkar Carlsen frá Noregi hefur slegið stigametið sem Gary Kasparov setti um árið. Á skákstigalista FIDE 1. janúar trónir Carlsen efstur með 2861 skákstig – en Kasparov náði mest 2851 stigi. Heimsmeistarinn Viswanathan Anand frá Indlandi dúsir í 7. sæti, en hann hefur reyndar boðað aukna hörku við taflborðið á nýja árinu. Þá ber til tíðinda að rússneski björninn Vladimir Kramnik hefur velt Armenanum Aronian úr 2. sæti listans, Azerinn Radjabov situr sem fastast í 4. sæti og sigurvegarinn á N1 Reykjavíkur- skákmótinu 2012, Ítalinn Fabiano Ca- ruana er í 5. sæti. Jóhann Hjartarson er stigahæstur ís- lenskra skákmanna með 2592 skákstig. Jóhann, sem verður fimmtugur á árinu, er sá Íslendingur sem hefur náð lengst í keppninni um heimsmeistaratitilinn – fjögurra manna úrslit – og óskandi að hann tefldi sem allra mest á nýja árinu, helst með lands- liðinu. Héðinn Steingrímsson, sem nú dvelur í Texas og teflir með háskólaliði þar, er í 2. sæti með 2560 stig, Helgi Ólafsson er í 3. sæti með 2547, gamla brýnið Mar- geir Pétursson situr í 4. sæti með 2532 og ung stirnið Hjörvar Steinn Grétarsson er kominn í 5. sæti með 2516. Næstir koma Hannes Hlífar Stefánsson (2512), Henrik Danielsen (2507), Jón L. Árnason (2498), Stefán Kristjánsson (2486) og Bragi Þorfinnsson (2484). Meiri tölfræði? Rússar eru mesta skákþjóð heims (fyrir utan Íslendinga, auðvitað) enda eiga þeir hvorki fleiri né færri en 215 stórmeistara. Meðalstigatala 10 bestu skákmanna Rússlands er 2746, næstir koma Úkraínumenn með 2703, þá Kínverjar með 2667, Frakk- ar með 2663 og Ungverjar eru í 5. sæti ásamt Armenum með 2658. Íslendingar eru í 31. sæti á heimslistanum, sem er vel viðunandi, miðað við margfræga höfðatölu og þau 196 ríki sem nú prýða heiminn með tilveru sinni. Snjall leikur hjá menntamálaráðherra Það fór ekki mikið fyrir einni helstu skákfrétt árs- ins í desember, en þá skipaði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra starfshóp til að kanna kosti skákkennslu í grunnskólum, meðal annars með hliðsjón af innlendum og erlendum rannsóknum á áhrifum skákkennslu á námsárangur og félagslega færni barna og ungmenna. Hópurinn á einnig að kortleggja stöðu skákkennslu í grunnskólum á Íslandi. Hér er um að ræða merkilegt skref, enda hafa rannsóknir leitt í ljós að skákkunnátta bætir námsárangur barna og ungmenna í nánast öllum greinum, bæði þeim sem reyna á rökhugsun og skapandi hugsun. Skák er mjög að ryðja sér til rúms sem námsgrein í fjölmörg- um löndum í öllum heimsálfum, enda stórkostlegt (og bráðskemmtilegt) tæki til að kenna börnum að nota heilann. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir stýrir vinnuhópnum, en hún hefur 11 sinnum orðið Íslandsmeistari kvenna og leiddi Skáksamband Íslands með glæsibrag í fjögur ár. Aðr- ir í hópnum eru Anna Kristín Jörundsdóttir kennari, Helgi Árnason skólastjóri, Helgi Ólafsson skólastjóri, Hrafn Jökulsson rithöfundur og Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna. Án mistaka er engin snilld! Emanuel Lasker (1868-1941) var manna lengst heimsmeistari í skák. Hann sigraði Steinitz, fyrsta heimsmeistarann, árið 1894 og tapaði titlinum til hins mikla Capablanca 1921. Lasker mælti: ,,Án mistaka væri engin snilld hugsanleg.“ Sömuleiðis: ,,Lygar og tilgerð duga skammt á skákborðinu.“ Og fyrst við erum byrjuð að vitna í stórmenni mannkynssögunnar er vel við hæfi að enda á þýska þjóðskáldinu Johann Wolfgang von Goethe (1749- 1832) sem sagði: ,,Djarfar hugmyndir eru einsog taflmenn sem sækja fram – falla kannski í valinn, en leggja drög að sigrinum.“ Góða (skák)helgi! SkÁkþrautin SVARTUR LEIKUR OG VINNUR Hér virðist hvítur í stórsókn en svartur lumar á sleggju. Sá ágæti herramaður D. Johnston hafði hvítt gegn S. Bibby í bresku deildarkeppninni 2001. Finnurðu leik fyrir svartan? LauSn Á VerðLauna myndagÁtu fréttatímanS MÁLÞÓF ÞREYTTI FÓLK Á LIÐNU ÁRI OG ALÞINGI SETTI MIKIÐ NIÐUR VIÐ ÞAÐ MÁLÞÓF ÞREITTI FÓLK Á LIÐNU ÁRI OG AÞINGI SETTI MIKIÐ NIÐUR VIÐ ÞAÐ. MÁL ÞÓF(I) ÞREITT I FÓLK Á LIÐ NU(S) ÁRI O GAL ÞING(D) I SETT IM I KIÐ N IÐUR VIÐ Þ AÐ. MÁL ÞÓF(I) ÞREYTT I FÓLK Á LIÐ NU(S) ÁRI O GAL ÞYNG(D) I SETT IM I KIÐ N IÐUR VIÐ Þ AÐ(A) Lesendur Fréttatímans voru greinilega hæstánægðir með mynda- gátuna þetta árið því hundruð lausna bárust til blaðsins. Dregið var úr réttum lausnum og hinn heppni vinningshafi er: Margrét Ásgeirsdóttir, Bjarkarási 19, 210 Garðabæ. Hlýtur Margrét gjafabréf á máltíð á veitingastaðnum SuSHiSamBa fyrir tíu þúsund krónur og fær hún það sent í pósti. Fréttatíminn þakkar lesendum fyrir þátttökuna. Gerður var greinarmunur á grönnum og breiðum sérhljóðum en ekki strangur munur á i og y. katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og friðrik Ólafsson stórmeistari í Djúpavík í Árneshreppi á Ströndum. emanuel Lasker var lengst allra heimsmeistari í skák. 1... Dxd4+ 0-1 (Drepi hvítur drottninguna verður hann mát með Hh1.) ÚTSALA Glæsileg borðstofuborð, borðstofustólar, sófaborð, útihúsgögn o.m.. með allt að 70% afslætti! Xenia Boston Paris Celeste
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.