Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 16
Seðlabankinn keypti krónur
Seðlabankinn keypti krónur fyrir um sex millj-
ónir evra, um einn milljarð króna, á gamlárs-
dag til að sporna gegn veikingu krónunnar
síðustu daga ársins. Gengi krónunnar hefur
ekki verið veikara í tæp tvö ár.
Óvissustigi aflétt á Vestfjörðum
Snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands hefur
aflýst óvissustigi vegna hættu á snjóflóðum á
norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum.
Rýmingu aflétt á Hofsósi
Almannavarnir í Skagafirði, í samráði við snjó-
flóðavakt Veðurstofunnar, hafa aflétt lokun á
svæðinu norðan göngubrúar í Kvosinni á Hofs-
ósi. Lokunin var sett á vegna snjóflóðahættu
ofan við tvö hús sem hýsa Vesturfarasetrið og
Íslensku fánasaumastofuna.
Mál stúlknanna tekið fyrir í
næstu viku
Þórir Gunnarsson, ræðismaður Íslands í
Tékklandi, segir að vonast sé til þess að mál
stúlknanna tveggja, sem handteknar voru
þegar átta kíló af kókaíni fannst í farangri
þeirra á flugvellinum í Prag um miðjan
nóvember, verði tekið fyrir 10. janúar.
Úrskurðað í Icesave-málinu 28.
janúar
EFTA-dómstóllinn hyggst úrskurða í Icesave-
málinu 28. janúar, að því er fram kemur á
vefsíðu dómstólsins. Munnlegur málflutningur
var í Lúxemborg í september.
Flensan snemma á ferðinni
Mikið hefur verið um inflúensu og aðrar pestir
síðustu daga hér á landi. Sóttvarnalæknir
segir að flensan sé snemma á ferð þennan
veturinn og hvetur fólk til að hafa varann á.
Þjóðkirkjan safnar fyrir Land-
spítalann
Biluð og úr sér gengin tæki á Landspítalanum
stofna öryggi landsmanna í hættu, sagði
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Þjóðkirkjan ætlar að efna til landssöfnunar
fyrir sjúkrahúsið sem byrjar með samskotum í
kirkjum landsins.
Hælisleitendur lugu til um aldur
Sjö af átta hælisleitendum sem komu til Ís-
lands á síðasta ári og fóru í aldursgreiningu
reyndust eldri en þeir sögðust vera. Þetta
sýnir aldursgreining á tönnum þeirra.
Tjón á raflínum nemur hundr-
uðum milljóna króna
Veðurtjón á raflínum hér á landi á síðasta ári
hleypur á hundruðum milljóna króna, segir
Guðlaugur Sigurgeirsson, deildarstjóri hjá
Landsneti.
Þingmannatap stjórnarflokka
VG tapar átta þingmönnum og fengi sex, yrði
gengið til kosninga nú, samkvæmt nýjum
þjóðarpúlsi Gallups. Samfylkingin myndi tapa
sjö þingmönnum, fengi þrettán. Björt framtíð
fengi níu þingmenn, Sjálfstæðisflokkurinn 26,
bætti við sig 10 og Framsóknarflokkurinn 9,
jafnmarga og síðast.
Hlutverk stjúpforeldris ekki jafn eðlislægt og foreldrahlutverkið
Ónáttúrulega stjúpan
É g fór í sund milli jóla og nýárs og hitti kunningjakonu í barnalauginni. Við ræddum saman meðan börnin voru að
leika sér og leiddu umræðurnar okkur fljótlega
út í nokkuð alvarlega sálma – að minnsta kosti
miðað við aðstæður. Við ræddum hlutskipti
okkar sem stjúpmæðra.
Kunningjakonan er í tiltölulega nýrri sam-
búð með manni sem átti þrjú stálpuð börn
fyrir en hún sjálf eitt. Ég á þrjú
stjúpbörn sem ég eignaðist þegar þau
voru á aldrinum eins til tuttugu ára
og átti eitt fyrir sem maðurinn minn
stjúpfeðraði þar af leiðandi. Ég er því
stjúpmóðir þriggja barna manns sem
er jafnframt stjúpfaðir elstu dóttur
minnar en að auki eigum við saman
tvö börn.
Eftir stutt en innilegt samtal kom-
umst við að því að stjúpur þurfa að
eignast vettvang þar sem þær geta hist
og deilt reynslu sinni af þessu krefj-
andi en jafnframt gefandi hlutverki.
Við þurfum að stofna félag.
Það er nefnilega alls ekkert einfalt
við stjúpmæðrahlutverkið – né heldur
stjúpfeðrahlutverkið ef því er að skipta. Flest-
um er foreldrahlutverkið sem betur fer eðlis-
lægt og við kunnum einnig flest að vera dætur,
synir, barnabörn, systkini eða makar. Hlut-
verk stjúpforeldris er hins vegar ekki jafnskýrt
og mörg þeirra hlutverka sem við tökumst á
hendur í lífinu. Það er einhvern veginn ekki
jafn náttúrulegt.
Stjúpforeldri verður oft þriðja hjól undir
vagni. Ábyrgðin á barninu er í langflestum til-
fellum á hendi foreldra þess þó svo að stjúpfor-
eldrið taki þátt í uppeldinu. Það tók mig smá
tíma og heimsókn til stjúptengslaráðgjafa til
þess að átta mig á því að samband stjúpforeldr-
is og barns er annars eðlis en samband foreldra
en barna. Um leið hætti ég að gera óraunhæfar
kröfur til mín sem stjúpmóður og einbeitti mér
að því að rækta vinskap, umburðarlyndi og
væntumþykju í garð stjúpbarna minna.
Sem betur fer hefur umræðan um samband
stjúpforeldra og barna aukist mikið á undan-
förnum árum. Heilmikill fróðleikur er til fyrir
stjúpforeldra um þetta hlutverk – og er það
vel.
Hið flókna við stjúpmæðrahlutverkið – og
stjúpfeðrahlutverkið geri ég ráð fyrir – er sam-
skiptin við makann vegna barnanna hans og
barnsins míns. Það er allt miklu einfaldara
varðandi börnin sem við eigum saman.
Því þegar við eignumst börn gerist eitthvað
sjálfkrafa innra með okkur, eitthvað frum-
stætt. Við verjum þessi börn okkar með kjafti
og klóm. Og þegar stjúpforeldri barnsins leyfir
sér að finna að hegðun barnsins – þó svo að
gagnrýnin sé væg og réttmæt – hrökkvum
við beint í vörn fyrir barnið okkar. Allt önnur
lögmál gilda um gagnrýni á börnin sem við
eigum saman. Þá verður gagnrýnin ekki að að-
finnslum heldur að umræðum um hvernig for-
eldrarnir geti í sameiningu leiðbeint barninu,
sem þeir bera sameiginlega ábyrgð á, í átt að
æskilegri hegðun.
Þessu komumst við kunningjakonurnar að
í okkar stutta spjalli í barnalauginni. Og fund-
um um leið að það var svo margt enn óútrætt,
svo margt sem við höfðum upplifað og haldið
að við værum einar um. En erum ekki.
Því það er flókið að tilheyra stjúpfjölskyldu.
Allir þessir foreldrar og fyrrverandi makar –
og fyrrverandi stjúpforeldrar...
En það er hægt að finna út úr því. Við þurf-
um bara að vera duglegri að tala um hlutina
okkar á milli, stjúpmæður og stjúpfeður.
Og einmitt þá, þegar ég hafði velt því raun-
verulega fyrir mér hvort ég ætti að hafa frum-
kvæðið að því að stofna félag stjúpmæðra, rak
á fjörur mínar námskeið sem ég er staðráðin í
að skrá mig á, námskeið á vegum Félags stjúp-
fjölskyldna, stjuptengsl.is, undir yfirskrift-
inni: Stjúpuhittingur. Kannski stjúpufélagið
geti orðið (stjúp)dótturfélag í Félagi stjúpfjöl-
skyldna?
Við sjáum til með það. Fyrst hlakka ég til að
hitta vonandi fullt af öðrum stjúpum.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
... stjúpur þurfa að eignast vettvang þar sem þær
geta hist og deilt reynslu sinni af þessu krefjandi
en jafnframt gefandi hlutverki. Við þurfum að
stofna félag.
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · Sími 590 2160 · notadir.is Opið frá kl.10-18
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2-
09
13
Gæða-
bíll
Kia cee’d
Árgerð 2011, 105 hestafla bensínvél, beinskiptur
5 gíra, ekinn 36.000 km, 6 ár eftir í ábyrgð.
Verð: 2.490.000 kr.
Mánaðarleg afborgun: 22.339 kr.**
Aksturstölva, aðgerðarstýri, geislaspilari, hiti í sætum, fjarstýrðar
samlæsingar, þjófavörn, rafdrifnir speglar og margt fleira.
Eyðir aðeins 5,8 l/100 km í blönduðum akstri.*
*Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
**Miðað við1.200.000 kr. útborgun í peningum eða með uppítökubíl ásamt láni
frá ERGO til 84 mánaða. Árleg hlutfallstala kostnaðar: 11,72%. Vextir: 9,70%.
7
prósent meiri velta var á
kreditkortaviðskiptum hjá Visa
í desember en á sama tíma
árið áður.
VikAn í tölum
480.000.000
króna eru árslaun Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Tottenham samkvæmt úttekt Viðskipta-
blaðsins. Hann hefur fjórfaldast í launum síðan hann gekk til liðs við félagið síðasta
sumar.
1.768
sinnum var slökkvilið Akur-
eyrar kallað út á sjúkrabílum
í fyrra, oftar en nokkru sinni
áður.
50
ár eru liðin frá því Savanna
tríóið kom fyrst fram
opinberlega með fullmótaða
efnisskrá.
36
konur eru
nú á lífi
sem náð hafa
hundrað ára
aldri. Sex
karlar eru
eldri en
hundrað
ára.
23
létust af slysförum hér á landi
á síðasta ári. Flestir létust í
umferðarslysum, tíu manns.
300
manns skelltu sér í sjósund
í Nauthólsvík á nýársdag.
Sjórinn var um -1°C. Elsti sund-
kappinn var 75 ára.
14 fréttir Helgin 4.-6. janúar 2013 vikunnar