Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 52
42 bíó Helgin 4.-6. janúar 2013 Ellison finnur kassa uppi á háalofti hússins og þá fyrst renna á hann tvær grímur.  Frumsýnd sinister e than Hawke leikur rithöfundinn Ell-ison Oswald í Sinister. Hann sérhæfir sig í sakamálasögum sem byggja á raunverulegum atburðum. Hann er útbrunn- inn og grípur til þess örþrifaráðs að flytja með eiginkonu sína og tvö börn inn í hús þar sem hrottalegir atburðir áttu sér stað nokkrum árum áður. Þá bjó fimm manna fjöl- skylda í húsinu og fjögur þeirra voru myrt en yngsti fjölskyldumeðlimurinn hvarf sporlaust um leið. Oswald heldur þessu leyndu fyrir eigin- konu sinni en hann vonast til þess að finna innblástur fyrir næstu bók og stefnir að því að lífga upp á feril sinn með því að sökkva sér ofan í morðmálið og reyna að leysa ráðgát- una um hvað varð um yngstu dótturina á heimilinu. Skömmu eftir flutninginn fer Ellison að gruna að fjölskyldumorðið tengist eldri morðum sem framin voru á svæðinu og til þess að bæta gráu ofan á svart fær hann á til- finninguna að morðinginn gangi enn laus. Ellison finnur kassa uppi á háalofti hússins og þá fyrst renna á hann tvær grímur. Í kass- anum er sýningarvél og 8mm filmur sem eru merktar eins og ósköp venjulegar heimaupp- tökur. Þegar Ellison skoðar filmurnar blasa hins vegar við honum viðbjóðslegar upptökur af morðum þar sem heilu fjölskyldurnar eru drepnar á ógeðslegan hátt. Elsta filman er frá 1966 en sú nýjasta er merkt 2011 og sýnir drápin á meðlimum fjöl- skyldunnar sem bjó í húsinu áður en Ellison settist þar að. Þegar Ellison hefur ráðfært sig við lög- reglumann á staðnum kemur í ljós að morðin á filmunum voru framin víðs vegar um Bandaríkin á löngu tímabili, það fyrsta upp úr 1960. Morðin eiga það sameiginlegt, fyrir utan að hafa verið fest á filmu, að fórnarlömb- in voru öll deyfð með lyfjum áður en þau voru myrt og að morðin tengist öll húsinu. Eftir því sem Ellison rýnir betur í filmurn- ar tekur hann eftir því að á þeim sést móta fyrir veru sem horfir á morðin auk þess sem á öllum þeirra gefur að líta dularfullt, málað tákn. Lögreglan vísar þá Ellison á prófessor Jonas, sérfræðing í hinu dulræna. Hann telur að á ferðinni sé púkinn Bughuul. Sagan segir að Bughuul hafi drepið heilu fjölskyldurnar. Þegar hér er komið sögu er heldur farið að þrengja að rithöfundinum sem óttast að hann og fjölskylda hans séu næst í röðinni hjá skrattakollinum. Aðrir miðlar: Imdb: 6.6, Rotten Tomatoes: 62%, Metacritic:53% Feigð og óhugnaður voma yfir persónum hryllingsmyndarinnar Sinister þar sem óhreinn andi herjar á fjölskyldu sem flytur inn í hús sem á sér skelfilega sögu. Scott Derrickson, leikstjóri Sinister, er á heimavelli þegar kemur að því að skjóta áhorfendum skelk í bringu en hann sýndi ágætis tilþrif í þeim efnum árið 2005 með myndinni The Exorcism of Emily Rose. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Óhreinn andi á reiki Ethan Hawke, í hlutverki rithöfundarins Ellison Oswald, finnur óhuggulegar filmur á nýju heimili sínu og virðist sitja uppi með illan anda sem hann þarf að reyna að reka út með öllum tiltækum ráðum.  roger ebert gerir upp árið Argo er besta myndin Kvikmyndagagnýnandinn Roger Ebert hefur tekið sam- an lista yfir bestu kvikmyndir ársins 2012 og þar trónir Argo, eftir Ben Affleck, á toppnum. Ebert segir myndina vera gegnheila bíómynd og klass- ískan Hollywood-þriller. Life of Pi er í öðru sæti hjá Ebert, Lincoln eftir Spielberg í því þriðja, End of Watch eftir David Ayer í fjórða og Arbitrage í leikstjórn Nicolas Jarecki í því fimmta. Myndirnar sem Ebert raðar í sjötta til tíunda sæti eru: Flight, The Sessions, Beasts of the Southern Wild, Oslo, August 31st og A Simple Life. Argo, í leikstjórn Bens Affleck, var besta mynd nýliðins árs að mati Rogers Ebert. Það er sko ekki tekið út með sældinni að vera hvítur kóalabjörn.  Frumsýnd Hvíti kóalabjörninn Einelti hrekur Jonna í sirkus Hvíti kóalabjörnin, The Outback, er teiknimynd fyr- ir unga kvikmyndaunnendur, talsett á íslensku og full af fjöri, glensi og hæfilega spennandi ævintýrum og uppákomum við þeirra hæfi. Þar sem Jonni er hvítur á lit sker hann sig úr hópi kóalabjarna og má þola mikla stríðni vegna þess að hann er öðruvísi. Hann ákveður því að yfirgefa heimahagana og gengur til liðs við farandsirkus þar sem hann kynn- ist hressum dýrum. Starf Jonna í sirkusnum veldur honum hins vegar vonbrigðum þegar hann kemst að því að þar á hann ekki að leika neinar listir heldur bara vera til sýnis sem furðudýr. Selma Björnsdóttir leikstýrir íslensku talsetning- unni og ljær persónum einnig rödd sína ásamt Vikt- or Má Bjarnasyni, Jóhanni G. Jóhannssyni, Valdimar Flygenring, Hjálmari Hjálmarssyni, Steini Ármanni Magnússyni, Sigurði Þóri Óskarssyni og Arnari Ívarssyni. MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  MIÐASALA: 412 7711 KOMDU Í KLÚBBINN! bioparadis.is/klubburinn SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! NÝTT Í BÍÓ PARADÍS Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS SVARTIR SUNNUDAGAR: Kl. 20 sunnudag. Aðeins þessi eina sýning. CHAPLIN: CITY LIGHTS ÞRJÚBÍÓ SUNNUDAG | 950 KR. INN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.