Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 28
 Krónu útsala „Ef þú verslar vöru á krónu útsölu færðu aðra á aðeins 1 krónu“ Hefst á morgun Laugardaginn 5.janúar Ný heilsubúð í Smáralind Mikið úrval, frábær gæði og betri verð www.hollandandbarrett.is Facebook “Holland and Barrett á Íslandi” „Framþróun hér er mjög hæg og það er í sumum málum líkt og hér sé fólk fast á miðöldum. Yfirvöld eru gjörspillt og virðast hafa lítinn áhuga á velferð al- mennings,“ útskýrir Eva. Það kemur mörgum ef til vill spánskt fyrir sjónir að krafa mótmælenda sé, meðal annars, hert viður- lög við kynferðisglæpum með dauðarefsingum. Eva segir að þetta megi rekja til þessara sömu gamal- dags viðhorfa og skort á menntun í landinu en um 70 prósent þjóðarinnar er ómenntuð. Hún segist sjálf á engan hátt hlynnt dauðarefsingum en styðji þó við kröfuna sem hún vonar að hafi fælingarmátt. Eva greinir blaðamanni frá fleiri dæmum sem hafa verið í fjölmiðlum á Indlandi meðal annars máli þar sem fórnarlambið var fjögurra mánaða stúlka, barninu var síðan hent í ruslagám eftir ódæðið en lifði af. Eins framdi táningsstúlka sjálfsmorð eftir að lögregluyfir- völd bentu henni á að lausnin fælist ef til vill í því að giftast kvalara sínum. Þar sem fjölskylda hennar væri ekki nógu fjáð til þess að standa í málaferlum. Einnig lést 10 ára gamall drengur eftir hópnauðgun. Eva útskýrir að nauðganirnar séu ekki endilega bundnar við fátækrahverfi heldur eigi þær sér stað jafnt í fínni hlutum borgarinnar. „Það er kannski sorglegt að fólk fór ekki að aðhafast fyrr en ofbeldið varð svona áber- andi í fínni hluta borgarinnar. Það er erfitt að hugsa til þess hve mikið hefur gengið á og beinlínis þaggað af lögreglu og yfirvöldum.“ Ummæli forsetasonar gott dæmi um vandann Íbúar norður Indlands fylltust, líkt og áður sagði, mik- illi reiði vegna máls stúlkunnar Damini. Fólkið tók strax að streyma út á götur í mótmælaskyni og héldu mótmælin áfram á meðan stúlkan barðist fyrir lífi sínu. Þau eru ennþá í gangi í dag, tæpum þremur vik- um síðar, eftir að Damini lést af sárum sínum. „Þetta er orðin uppsöfnuð reiði vegna langvarandi hættu- ástands,“ útskýrir Eva. Fólkið krefst aðgerða yfirvalda sem þó hafa lofað aukinni löggæslu, birtingu nafna dæmdra ofbeldismanna og að skyggðar rúður í bílum verði bannaðar. Þetta er langt frá því að teljast full- nægjandi, samkvæmt mótmælendunum sem telja að breyta verði viðhorfi almennings til kvenna. Til þess að það takist þarf stórkostlegt átak af hendi yfirvalda sem virðast ekki vera á þeim buxunum. Nýleg ummæli sonar forsetans, Abhijit Mukherjee, sem hann síðar dró til baka vegna þrýstings, bera vott um hversu djúpstæður vandinn er. Mukherjee sagði þær konur sem að mótmælunum stæðu ómarktækar bæru þær andlitsfarða eða færu út að skemmta sér. Slíkar konur væru í raun rót alls vandans og bæðu hreinlega um að láta nauðga sér. Einnig hafa lögreglu- stjórar og aðrir opinberir embættismenn tekið afstöðu gegn frelsi indverskra kvenna og skellt skuldinni alfarið á fórnarlömbin, fyrir það sem þeir telja óæski- lega hegðun. Svona ummæli hafa verið sem olía á mót- mælendabálið. Til að mæta ólgunni hafa yfirvöld sett á útivistarbann í Nýju Delí þar sem ekki leyfist að vera þrír eða fleiri úti eftir klukkan 20. Einnig hafa yfirvöld brugðið á það ráð að beita táragasi á hópana, loka samgönguleiðum og fangelsa mótmælendur, sem flestir eru friðsamir. Þegar mótmælin hófust fóru þau, að sögn Evu, mjög friðsamlega fram í fyrstu. Kveikt var á kertum í virð- ingarskyni við fórnarlömb en fljótlega færðist í þau harka með ofbeldi lög- reglunnar gegn mótmælendum. „Á öðrum og þriðja degi fóru þeir að sprauta vatni og táragasi og beita aukinni hörku. Yfirvöld hafa forðast að taka afstöðu með mótmælunum og þannig varð þetta að endingu pólitískt. Nú eru andstæðingar ríkisstjórnarinnar gengnir til liðs við mótmælin.“ Eva útskýrir að þannig séu þau orðin að ógn við sitjandi stjórn. „Ríkisstjórnin reyndi að loka ákveðnum hlutum borgarinnar til þess að stöðva mótmælin og lokaði líka metróstöðvum. Við þetta varð fólk mjög reitt. Það eru ennþá mótmæli í gangi núna og ég vona að athygli heimsins fari að beinast hingað. Það virðist vera eini sénsinn á að eitt- hvað gerist, að heimssamfélagið beiti þrýstingi. Með tilkomu samskiptamiðla er heimurinn orðinn mikið minni og auðveldara er fyrir almenning að velta stein- um til þess að fylgjast með og þvinga fram réttlæti.“ Á dögunum var Vladimír Pútín Rússlandsforseti gestur í indversku forsetahöllinni. Hann forðaðist sjálfur að taka afstöðu í málinu og vegna heimsóknar hans fór, að sögn Evu, allt á annan endann. Yfirvöld fóru í markvissar hreinsanir á götunum þar sem mót- mælendum var gert erfitt fyrir. Það hafi hins vegar ekki borið árangur og enn í dag er mikill hiti í fólkinu sem skiptir hundruðum þúsunda. Fordómar fyrir vestrænum konum algengir Eva segist vera heppin að eiga marga góða vini því það sé ekki sjálfgefið að vestrænum konum sé vel tek- ið í norðurhluta Indlands, en hún á indverskan unn- usta. „Það er mjög illa farið með hvítar konur hér fyrir norðan. Ég þekki dæmi um íslenskar stelpur sem komu hingað eftir að hafa dvalið í góðu yfirlæti lengi fyrir sunnan og þær fengu áfall. Sértu hvít þá muntu verða fyrir aðkasti. Meira að segja „tour guide-inn“ þeirra áreitt þær. Sjálf er ég frekar indversk í útliti og það spilar inn í, mér í hag. Ég finn samt að mörgum finnst ég of frjálsleg og fólki finnst að kærastinn minn ætti ekki að vera að leggja lag sitt við mig.“ Eva segir að fordómana megi ef til vill rekja til þess að vestrænar konur klæði sig öðruvísi en innfæddar sem yfirleitt klæðist sarí, eða salvar kamís sem er indverskur heilklæðnaður. „Það má einnig rekja þessa vanvirðingu til birtingarmyndar vestrænna kvenna í fjölmiðlum og því sem kallað er klám- væðingu. Indverskir karlar telja margir hverjir að vestrænar konur séu hórur og druslur. Þess vegna megi gera hvað sem er við þær. Ég vil samt taka það fram að svona hugsa ekki allir karl- menn. En þetta er vissulega útbreidd skoðun.“ Eva segist vera vongóð um að ind- verskar konur fái þá aðstoð sem þurfi til að lifa mannsæmandi lífi, þar sem augu alþjóða- samfélagsins hvíli á Indlandi eftir ódæðið. „Til þess þurfa yfirvöld að finna fyrir alvöru þrýstingi. Það geta Íslendingar gert með margvíslegum hætti, hægt er að skrifa undir undirskriftarlista og stofna til mótmæla. Með því að þagga ekki mál Damini heldur tala um það gerum við eitthvað. Ég trúi því að sannleikurinn frelsi okkur.“ María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Sex menn veittust að parinu, börðu vin stúlkunnar og misþyrmdu henni á hrottafenginn hátt. Unga stúlkan, sem fengið hefur frelsisnafnið Damini í opinberri umræðu, var á gangi heim ásamt vini sínum, en þau höfðu verið á kvikmyndasýningu. Að þeim veittust sex menn sem óku strætisvagni og tóku grunsemdir þeirra að vakna um að ekki væri allt með felldu þegar vagninn fór af leið sinni og elti þau. Mennirnir um borð hrópuðu að þeim og gerðu við það athugasemdir að þau væru úti við tvö ein um kvöld. Þeir stöðvuðu að endingu vagninn og börðu manninn með járnröri en námu stúlkuna á brott inn í vagninn þar sem þeir nauðguðu henni í klukkustund og misþyrmdu, meðal annars með rörinu og sköðuðu líffæri hennar hrottalega. Eftir ofbeldið tóku þeir parið og hentu út úr vagninum á ferð. Maðurinn slapp lifandi með nokkra áverka en stúlkan háði hetjulega baráttu fyrir lífi sínu í 13 daga. Hefði hún komist til meðvitundar hefðu hún þurft á líffæragjöf að halda, auk þess að hafa hlotið heilaskaða. Hún var flutt til Singapúr á hátæknisjúkrahús þar sem læknar höfðu á orði að aldrei hefðu þeir séð jafn hrottalegt mál áður. Hún lést að lokum af sárum sínum þann 29. desember. Konur á Indlandi eru flestar huldar í sarí eða salvar kamís. Þær sem ekki gera slíkt búa við mikla fordóma. Krafa mótmælenda er meðal annars sú að viðurlög við nauðgunarglæpum verði hert. Nauðgarar verði látnir gjalda með lífi sínu. Gerendurnir í máli Damini náðust allir. Tveir bræður og þrír vinir þeirra auk táningspilts, sem virðist tengjast einum mannanna fjölskylduböndum. Farið hefur verið fram á dauðadóm yfir þeim öllum og hefur einn þerra játað og jafnframt farið fram á að dauðadómi verði framfylgt. Þeir höfðu setið við drykkju daglangt og meðal annars numið á brott ungan mann í sama vagni og ódæðið átti sér stað og rænt af honum fé. Þá þarf að hafa í einangrun vegna reiði annara fanga í þeirra garð. Yfirvöld hafa verið gagnrýnd harkalega í kjölfar málsins og tveir embættismenn innan lögreglunnar látnir fara vegna afglapa í starfi. Lögreglustöðin þeirra hafði vitneskju um vagninn og mennina. Til þeirra hafði verið sagt af manninum sem rændur var fyrr um daginn. Damini Nafnið Damini er hindú og þýðir elding. Nafnið er komið úr kvikmynd frá árinu 1993 þar sem segir frá konu sem berst fyrir réttindum nauðg- unarfórnarlambs, þvert á vilja fjölskyldu sinnar og eiginmanns. Hún sýnir mikla hetjudáð og stendur ein á móti kerfinu. Nafn stúlkunnar sem lést var ekki gefið upp af yfirvöldum og brugðu mót- mælendur á það ráð að sýna henni stuðning og virðingu sína með nafngiftinni sem þótti hæfa henni vel. „Framþróun hér er mjög hæg og það er í sumum málum líkt og hér sé fólk fast á miðöldum. Yfirvöld eru gjörspillt og virðast hafa lítinn áhuga á velferð almennings,“ segir Eva Dögg. 26 viðtal Helgin 4.-6. janúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.