Fréttatíminn - 04.01.2013, Blaðsíða 8
Einar Oddsson, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum, við speglatæki á meltingarsjúkdómadeild sem eru orðin svo léleg að þau
minnka líkurnar á því að ýmsar flóknar aðgerðir takist. Ljósmynd/Hari
Færð Vetur konungur minnir á sig
Sorphirða að komast í samt lag
„Um leið og færðin versnaði
fórum við að dragast aftur úr
í sorphirðunni,“ segir Guð-
mundur B. Friðriksson, skrif-
stofustjóri hjá umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkur-
borgar.
Vetrarfærðin hefur sett
strik í reikninginn hjá sorp-
hirðufólki í höfuðborginni,
sem víðar, en að sögn Guð-
mundar hefur verið unnið af
krafti til að komast aftur á
áætlun. Kveðst Guðmundur
gera ráð fyrir að sorphirða
komist aftur í samt lag á
morgun, laugardag.
„Hálkan er ekki að hjálpa
okkur og það er erfitt að trilla
fullum tunnum upp brekkur
við þessar aðstæður,“ segir
Guðmundur. „Við förum hægt
inn húsagötur á bílunum enda
ekkert grín ef margra tonna
trukkar renna af stað,“ segir
hann en fullhlaðinn sorpbíll
vegur um 19 – 20 tonn.
Sorphirða í Reykjavík er að
komast í rétt horf eftir erfiða
vetrarfærð. Ljósmynd/Hari
Heilbrigðismál tækjakostur á landspítala
Aðgerðir mistakast
vegna lélegs búnaðar
Endurtaka þarf aðgerðir á sjúklingum á Landspítala sem takast ekki vegna þess hve tækjabún-
aður er orðinn lélegur og úreltur. Þrjá milljarða þarf til að koma tækjakosti í eðlilegt horf – en
enn hærri upphæð ef framþróun á að verða.
t ækjabúnaður á Landspítala er í mörgum tilfellum orðin svo lélegur að endurtaka þarf flóknar aðgerðir
á sjúklingum sem takast ekki vegna úr sér
genginna tækja. Karlmaður þurfti nýverið
að gangast undir flókna aðgerð á gall-
göngum sem gerð er í gegnum speglunar-
tæki en aðgerðin tókst ekki. Einar Odds-
son, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum
á Landspítalanum, segir að líkurnar á því
að aðgerð sem þessi takist, séu meiri ef
tækjabúnaður er fyrsta flokks, sem hann
er ekki. „Það er dapurlegt að þurfa að taka
sjúklinga mörgum sinnum í sams konar
aðgerðir bara vegna lélegs tækjabúnaðar,“
segir Einar.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans,
tekur undir þetta og segir að því miður sé
raunin sú, að tækjakostur Landspítalans sé
orðin svo úreltur víða að endurtaka þurfi
aðgerðir af þeim sökum. „Við reynum að
sjálfsögðu að koma í veg fyrir að það gerist
en þróunin er orðin svo hröð og líftími tækj-
anna orðinn styttri en áður,“ segir Björn.
„Tækjabúnaðurinn er orðinn gamall og
endurnýjun hefur setið á hakanum hér á
meltingasjúkdómadeild sem annars staðar
á spítalanum,“ segir Einar. Nýjustu tækin
sem notuð eru á meltingasjúkdómadeild
eru þau sem spítalinn fékk frá St. Jósefs-
spítalanum í Hafnarfirði þegar honum var
lokað fyrir um tveimur árum, önnur tæki
eru enn eldri.
Að sögn Björns er fjárþörfin til nauðsyn-
legrar endurnýjunar tækja um milljarður
á ári næstu þrjú árin. „Það dugir eingöngu
til að koma tækjakosti í eðlilegt horf. Við
myndum þurfa hærri upphæð til að þróa
tækjakostinn áfram,“ segir hann.
Biskup Íslands, Agnes Sigurðardóttir,
lýsti í nýársávarpi sínu yfir áhyggjum af
stöðu tækjabúnaðar Landspítalans og ætlar
að leiða söfnun til tækjakaupa á spítal-
anum. Björn segir að spítalinn þurfi allan
þann stuðning sem hægt er að veita þó svo
að landssöfnun muni engan veginn skila
því fjármagni sem þörf er á. „Við fengum
rúmar 800 milljónir á fjárlögum fyrir þetta
ár og erum því komin af stað. Auk þess
fáum við nokkur hundruð milljónir í gjafir
árlega,“ segir hann.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Það er
dapurlegt
að þurfa að
taka sjúk-
linga mörg-
um sinnum í
sams konar
aðgerðir
bara vegna
lélegs tækja-
búnaðar.
jafn íslenskur og...
jafn íslenskur og
gráð, hiti fimm stig.
GÓÐOSTUR
Innritun í síma 897 2896
www.bakleikfimi.is
Bakleikfimi
Betri líðan í hálsi, herðum og baki
undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Hádegis- og eftirmiðdagstímar
í sundlaug Hrafnistu við Laugarás.
Með sambaívafi í Heilsuborg, Faxafeni 14
Hefst 7. janúar
6 fréttir Helgin 4.-6. janúar 2013