Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 2
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Heimilis
RIFINN OSTUR
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
heilbrigðismál sigrún björk fangar athygli heilaskurðlækna víða um heim
m ig langaði að vinna við eitt-
hvað sem tengd-
ist náminu
mínu og setti
mig í sam-
band við
leiðbein-
anda síð-
asta vor.
22 ára býr til þrívíddar-
líkön af höfuðkúpum
Sigrún Björk Sævarsdóttir er 22 ára söng-
nemi sem lauk BS gráðu í heilbrigðisverk-
fræði á síðasta ári. Hún notaði síðasta
sumar í að vinna þrívíddarlíkan af
höfuðkúpu til þess að nýta við
heila- og skurðlækningar.
Verkefnið vann hún með
leiðbeinanda sínum,
heilbrigðisverkfræðingi
á Landspítalanum og
heilaskurðlækni. Þetta hefur
ekki verið gert áður og
verkefnið hefur því kveikt á
áhuga á meðal lækna víðs-
vegar um heiminn.
Sigrún
Björk
Sævars-
dóttir er
hörkudugleg
ung kona sem
hefur hlotið
verðskuldaða
athygli innan
læknastéttarinnar
hér heima og utan land-
steinanna. Ljósmynd/Hari
Hann nefndi þessa hugmynd sem hefði komið
frá heilaskurðlækni á spítalanum, þar sem hann
starfar. Tæknin er til staðar en hún hefur hingað
til verið notuð við kjálkaskurðlækningar og
undirbúning við lengingu á kjálka. Við ræddum
möguleikana á að nýta þetta einnig á heila-
og skurðlæknasviði og í framhaldinu fékk
ég styrk hjá Rannís síðasta sumar og gat
því í samvinnu við heilaskurðlækninn
látið þetta verða að veruleika,“ segir
Sigrún Björk Sævarsdóttir. Verkefni
hennar hefur hlotið mikið lof innan
læknastéttarinnar en það fólst í því að
smíða og samþætta þrívíddarmódel
við staðsetningarbúnað sem notaður
er við heilaskurð. Módelið hannar Sig-
rún eftir mjög nákvæmum þrívíddar-
myndum, annarsvegar úr segulómun
og hinsvegar sneiðmyndir. Úr
teikningunum vinnur hún
þrívíddarmódel af höfuð-
kúpu sjúklings í raun-
stærð sem er svo
prentað í þartil-
gerðum þrívídd-
arprentara.
„Þá getur
skurð-
læknir-
inn
met-
ið
mód-
elið
fyrir
aðgerð
og jafnvel sett
upp sýndaraðgerð
og gert þannig sömu
aðgerð viku áður og
undirbúið sig. Heilaskurð-
læknar þurfa að sjá mikið
fyrir sér í þrívídd og einu
tækin sem þeir hafa
haft hingað til eru
sneiðmyndirnar. Þetta
er mun áþreifanlegra
og gerir þeim kleift að komast að æxli og mögu-
lega sjá fyrir vandamál sem komið geta upp við
skurðaðgerðina.“
Aðferðin hefur þegar verið reynd á Landspítal-
anum, það tókst mjög vel til og segir Sigrún að
með því að hafa þetta svona í höndunum fari
læknirinn mun öruggari í aðgerðina og jafnvel
geti mikill kostnaður sparast.
„Vegna notkunar á líkaninu gat læknirinn séð
fyrir leiðir að meini og hægt var að framkalla
aðgerðina hér heima í stað þess að fljúga með
sjúklinginn út,“ segir Sigrún og tekur fram að
einnig sé þetta kjörið fyrir nema.
„Efnið í líkaninu er mjög svipað og í raunveru-
legri höfuðkúpu og því hægt að nota sömu tól við
hvorutveggja. Það sem mig langar svo að þróa
áfram er að hægt sé að samkeyra það tölvukerf-
um sem notuð eru innan heilbrigðisgeirans og
jafnvel bæta svo við líkanið taugabrautum.“
Sigrún er 22 ára gömul og er því töluvert á
undan jafnöldrum sínum í námi, en hún hyggst
byrja á mastersnámi fljótlega. Núna einbeitir
hún sér að söngnámi en hún er á áttunda stigi.
„Ég hef alltaf þurft að flýta mér svolítið að
hlutunum. Ég kláraði framhaldsskólann á
tveimur árum og finnst lang best að hafa nóg
fyrir stafni. Það er líka mjög gott að hafa listina
til þess að vega upp á móti hinu,“ útskýrir Sigrún
sem segist hafa notað eyður í Háskólanum fyrir
söngnámið.
„Ég er mjög skipulögð og passa þannig upp á
að hafa tíma fyrir félagslífið, vini og fjölskyldu.
Ég er ekki alltaf niðursokkin í bækurnar,“ segir
hún og hlær. „Ég á líka mjög auðvelt með að læra
en hef samt þurft að hafa mikið fyrir því. Það er
bara svo lítið mál þegar þú ert að fást við eitthvað
sem þér finnst skemmtilegt.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
„Hægt var að framkalla aðgerð hér heima í stað þess
að fljúga með sjúklinginn út.“
Matarverð hækkar enn
Matvöruverð heldur áfram
að hækka, að því er fram
kemur í nýjustu verð-
könnun ASÍ. Frá því í haust
hefur verð á vörukörfu ASÍ
hækkað umtalsvert í nær
öllum verslunarkeðjum.
Mest er hækkunin í
versluninni Iceland, ríflega
10 prósent og í Krónunni
9 prósent. Í verslunum
10-11 hefur vörukarfan
hækkað um rúm 6 prósent,
í Hagkaupum um tæp 6
prósent og í Bónus um rúm
fjögur prósent. Í Nóatúni
og Samkaupsverslununum
nemur hækkunin tveimur
til þremur prósentum en í
öðrum verslunum er hækk-
unin undir einu prósenti.
Inflúensan á undanhaldi
Inflúensufaraldurinn sem geisað hefur á
landinu er nú á undanhaldi, samkvæmt
upplýsingum frá landlækni. Faraldurinn
náði hámarki upp úr miðjum janúar, sem er
nokkru fyrr en undanfarin ár. Að öðru leyti
virðist hann svipaður faröldrum undan-
farinna vetra. Vonast er til að RS veirusýk-
ingum muni einnig fækka á næstunni og að
RS faraldurinn sé því einnig í rénun. -sda
Meirihluti vill ekki í
Evrópusambandið
Í nýrri könnun MMR kemur fram að
þeim sem eru andvígir inngöngu
Íslands í Evrópusambandið fjölgar
lítillega. Nú eru 63% á móti en aðeins
fjórðungur fylgjandi. Karlar eru hrifnari
af inngöngu í Evrópusambandið en
konur og fólk á höfuðborgarsvæðinu er
jákvæðara en íbúar á landsbyggðinni.
menntaskólar ratleikur í versló grín sem fór úr böndunum
Harmar kynþáttagrín í Versló
Töluvert fjaðrafok varð á samskipta-
miðlum í gær vegna myndar af leið-
beiningum í ratleik frá árshátíðardegi
Verslunarskóla Íslands.
Á myndinni sem var deilt víða má
sjá ummæli sem snúa meðal annars að
innflytjendum, femínistum, samkyn-
hneigðum og konum. Einnig innihalda
leiðbeiningarnar áróðurstengd pólitísk
skilaboð sem snúa að Sjálfstæðisflokki
og gegn Samfylkingu.
Hrafnkell Ásgeirsson er formaður
nemendaráðs Verslunarskólans. Hann
segir ratleikinn alls ekki vera í anda yf-
irlýstrar stefnu skólans og að leiðbein-
ingar ratleiksins séu misheppnað grín
einangraðs hóps innan eldri bekkja
skólans.
„Þetta kemur frá einum bekk, sem er
í kringum 20 manns. Sjálfur var ég bara
að sjá þetta og finnst mjög ósmekklegt
og ljótt.”
Hrafnkell segir að sér þyki augljóst
að hér sé um að ræða grín sem hafi
farið úr böndunum.
Nemendur í bekknum sem um ræðir
eru á lokaári og eru þeir því um tvítugt.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Hér eru leiðbeiningarnar en í þeim var að finna fordóma sem formaðurinn
harmar: „...taka vatn úr polli í Æsufellinu og drekka það (35) auka 50 stig
ef innflytjandi stingur puttanum í vatnið áður en það er drukkið.“
2 fréttir Helgin 15.-17. febrúar 2013 Góð og fagleg
þjónusta er
metnaðarmál
Sjóvá leggur höfuðáherslu á
að veita viðskiptavinum sínum
góða og faglega þjónustu.
Ráðgjafar okkar eru boðnir og
búnir til að aðstoða viðskipta-
vini við að meta tryggingaþörf
sína og finna út hvernig best er
að haga henni.
Að sjálfsögðu vill enginn lenda í
tjóni, en ef til þess kemur skiptir
öllu að tjónaþjónustan sé fagleg
og skilvirk. Hjá tjónaþjónustu
Sjóvár starfar reynslumikið
starfsfólk sem veitir þér hraða
og góða þjónustu þegar mest
á reynir.
Sjóvá er ákaflega stolt af því
að mikil ánægja ríkir með
tjónaþjónustuna okkar.
Ánægjan kemur skýrt fram í
könnunum og mælingum, og
við finnum líka fyrir henni í
öllum okkar samskiptum við
viðskiptavini. Hún er okkur
hvatning til að gera enn betur
í þína þágu.
Þú færð
meira í
Stofni
Stofn er vildarklúbbur
viðskiptavina Sjóvár. Í Stofni
fá þeir betri kjör á tryggingum
sínum og njóta ýmissa fríðinda.
Þar má nefna endurgjaldslausa
vegaaðstoð, sem getur til dæmis
komið sér vel þegar dekk
springur eða bíllinn verður
straumlaus.
Í Stofni njóta viðskiptavinir
einnig afsláttar af barna-
bílstólum og öðrum öryggis-
vörum, sem og af viðgerðum
á smádældum á bílum. Þá
aðstoðum við viðskiptavini
í Stofni við skipulag og
utanumhald með nágranna-
vörslu í sínu hverfi.
Síðast en ekki síst fá skilvísir og
tjónlausir viðskiptavinir í Stofni
endurgreiddan hluta iðgjalda
sinna í febrúar ár hvert. Ekkert
annað íslenskt tryggingafélag
býður slíka endurgreiðslu.
Einstök börn
Eins og áður gefst þeim sem
það kjósa kostur á að ráðstafa
endurgreiðslunni að hluta eða
í heild til góðs málefnis. Í ár er
það stuðningsfélagið Einstök
börn sem njóta góðs af þessum
möguleika. Félagið, sem var
stofnað árið 1997, styður börn
og ungmenni með sjaldgæfa
og alvarlega sjúkdóma eða
skerðingar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2
-2
8
0
2
ÞÚ INNLEYSIR ENDURGREIÐSLUNA
ÞÍNA Á SJOVA.IS
ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ
Þessa dagana færð þú ásamt 20.632 öðrum
tjónlausum og skilvísum viðskiptavinum í Stofni
hluta af iðgjöldum síðasta árs endurgreidd
ÁVÍSUN Á ÁNÆGJU
Vantar
þig að
stoð?
Hringdu
og við
aðstoðu
m þig
við að i
nnleysa
tékkan
n.
440 20
00