Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 24
Fyrsti farmur af endurnýjanlegu elds- neyti frá verksmiðju íslenska nýsköp- unarfyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) hefur verið afhentur hollenska olíufyrirtækinu Argos í Rot- terdam. Eldsneytinu, metanóli af endur- nýjanlegum uppruna sem framleitt er úr vatni, raforku og koltvísýringi, verður blandað í bensín fyrir almennan markað í Hollandi. Argos er eitt af leiðandi olíu- fyrirtækjum í Norður-Evrópu, að því er fram kemur í frétt frá Carbon Recycling International. CRI hefur unnið að prófunum á blöndu metanóls og bensíns í samstarfi við innlend olíufélög, auk þess sem endurnýjanlegt metanól er notað til framleiðslu á lífdísil hjá innlendum framleiðendum. CRI gerir ráð fyrir að flytja út til Hollands alla framleiðslu sem ekki fer til innanlandsnota á þessu ári. Í Evrópu- sambandslöndunum er skylt að skipta út hluta af bensíni og dísil með eldsneyti af endurnýjanlegum uppruna. CRI er eina fyrirtækið í heiminum sem rekur verksmiðju sem framleiðir fljótandi bílaeldsneyti úr orku sem er ekki af lífrænum uppruna. Aðferðin var þróuð á rannsóknarstofu CRI í Reykja- vík. Framleiðslan fer fram í verksmiðju félagsins við Svartsengi en koltvísýr- ingur til framleiðslunnar er fangaður úr útblæstri orkuvers HS Orku. - jh  Stjórnandinn Hef fjárfest töluvert í skóm nafn: Hildur Þóris- dóttir. Starf: Forstöðu- maður markaðs- og mannauðssviðs MP banka. aldur: 39 ára. Menntun: BA í sálfræði og MSc í viðskiptafræði frá HÍ. Fyrri störf: Sér- fræðingur á starfs- mannasviði Straums fjárfestingabanka. Maki: Reynir Árnason, fram- kvæmdastjóri Póst- markaðarins ehf. Börn: Við eigum fimm yndisleg börn á aldrinum 7 til 20 ára. Búseta: Er að flytja úr rokinu á Seltjarnarnesi í lognið og blíðuna í Fossvogi. Morgunstund Snúsa í góðan hálftíma. Morgunmatur- inn er volgt sítrónuvatn með lífrænni ólífuolíu, glas af rauðrófusafa og AB mjólk með hörfræjum. Yfirleitt snæddur á hlaupum. Hefðir Fyrsti kaffibolli dagsins er heilög stund og alltaf tekinn í vinnunni, eiginlega eina rútína dagsins því enginn dagur er eins. Ég þykist ætla í ræktina á hverjum degi en klikka á því í 90% tilfella.  nýSköpun EldSnEytiSvErkSMiðja Cri Íslenskt bílaeldsneyti á markað í Hollandi Græjan Er mjög lítil græjukona en betri helmingurinn bætir mig mjög upp hvað það varðar. Undanfarið hef ég þó aðeins verið að stúdera eldhústæki og nú skilst mér að það sé varla hægt að komast af án þess að vera með tvo bökun- arofna. Minn tími Gott fólk og góður matur. Áhugamál Hef mjög gaman af tónlist og fer mikið á tónleika. Við erum líka mjög dugleg að ferðast og skíðin hafa komið sterk inn undan- farið. Klæðaburður Vil hafa fötin mín frekar einföld og er allt of mikið í svörtu eins og flestar íslenskar konur. Er hrifin af íslenskri hönnun og GK og Ella eru fastir viðkomustaðir þegar ég er á rölti í bænum. Ann- ars hef ég mest dálæti af skóm og hef fjárfest töluvert á því sviði, þar eru 38 þrep í algjöru upp- áhaldi. Boðskapur Margur er knár þó hann sé smár. Ljó sm yn d/ H ar i E ftirlitsstofnunin SGS Ger-many GmbH hefur gefið út sjálfbærnisvottorð fyrir verksmiðju Carbon Recycling Inter- national (CRI) í Svartsengi og er það fyrsta vottorðið sem gefið er út samkvæmt ISCC PLUS kerfinu fyrir endurnýjanlegt eldsneyti sem ekki er af lífrænum uppruna. Carbon Recycling International er brautryðjandi í framleiðslu endur- nýjanlegs eldsneytis úr grænni orku og endurunnum koltvísýringi. Félagið hóf rannsóknir og þróun á framleiðslu endurnýjanlegs elds- neytis árið 2006. Eldsneytisverk- smiðja fyrirtækisins í Svartsengi á Reykjanesi var opnuð vorið 2012. Verksmiðja CRI framleiðir endurnýjanlegt metanól úr raforku og koltvísýringi sem losaður er frá jarðvarmaorkuveri HS Orku. Koltvísýringur úr útblæstri frá hverflum orkuversins er hreinsað- ur og endurunninn í eldsneyti, með tækni sem þróuð var af CRI á Ís- landi. Metanól er notað sem íblönd- unarefni í bensín fyrir óbreytta bíla og sem hráefni í framleiðslu á öðrum eldsneytistegundum, að því er fram kemur í tilkynningu CRI. „Þetta sýnir að endurvinnsluað- ferð okkar er hagkvæm, dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið og stuðlar að sjálfbærri nýtingu takmarkaðra náttúruauðlinda,“ segir KC Tran, forstjóri CRI. „Framleiðsluaðferðin og elds- neytið eru einnig svar við mark- miðum Evrópusambandsins, sem ætlar að skipta út 10% af jarðefna- eldsneyti í samgöngum fyrir árslok 2020 og draga með því úr losun gróðurhúsalofttegunda. Nýlega lagði framkvæmdastjórn ESB til breytingar á tilskipun sambands- ins um orkuskipti. Samkvæmt tillögunum verður notkun hefð- bundins lífeldsneytis í samgöngum takmörkuð við 5% af orkuþörfinni. Afganginn, eða þau 5% sem upp á vantar af þörfinni til orkuskipta í samgöngum, eiga að vera af ólíf- rænum uppruna eða úr úrgangi. ISCC kerfið hefur verið lagað að því að ná einnig yfir endur- nýjanlegt eldsneyti af ólífrænum uppruna, samkvæmt ISCC PLUS kerfinu. „Vottun CRI á Íslandi sýnir að eldsneytið er framleitt með sjálfbærum hætti, dregur mjög úr losun gróðurhúsalofttegunda og veldur engum hliðaráhrifum vegna notkunar á gróðurlendum og öðru ræktarlandi,“ sagði dr. Jan Henke frá ISCC. „Vottun okkar á metanólverk- smiðju CRI var mjög skilvirk og sýndi að ISCC PLUS nær fyllilega yfir nýstárlegar aðferðir til fram- leiðslu á eldsneyti,“ sagði Betina M. Jahn frá SGS í Þýskalandi. SGS hefur verið brautryðjandi í vottun framleiðsluferla sem mæta kröfum tilskipunar ESB um endurnýjan- lega orku. Hjá CRI í Svartsengi starfa nú á þriðja tug starfsmanna við rann- sóknir, viðskiptaþróun og fram- leiðslu. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is  EldSnEyti alþjóðlEg EFtirlitSStoFnun vottar vErkSMiðju Cri Sjálfbærnivottorð fyrir eldsneytisverk- smiðju í Svartsengi Fyrsta vottun framleiðslu endurnýjanlegs eldsneytis sem ekki er af lífrænum uppruna. Carbon Recycling International í Svartsengi er brautryðjandi í framleiðslu endur- nýjanlegs eldsneytis úr grænni orku og endurunnum koltvísýringi. 24 viðskipti Helgin 15.-17. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.