Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 8
Tveir frábærir Android símar hjá Vodafone Þín ánægja er okkar markmið Sony Xperia Tipo 22.990 kr. 2.190. á mán.* LG Nexus 4 99.990 kr. 9.190. á mán.* *M .v. 1 2 m án uð i. V ið a fb or gu na rv er ð bæ tis t g re ið sl ug ja ld , 3 40 k r. á m án uð i.  SkákveiSla Ungir SkákSnillingar þyrpaSt til ÍSlandS Ofurstórmeistarar, skák- drottningar og undrabörn Landskeppni Íslands og Kína fer fram um helgina og N1 Reykjavíkurskákmótið hefst á þriðjudaginn. Kínverjar eru orðnir risaveldi í skákheiminum. Þrír af stigahæstu skákmönnum heims undir 20 ára aldri tefla í Hörpu. S kákáhugamenn á öllum aldri búa sig undir mikla veislu: Nú um helgina fer fram landskeppni Íslands og Kína í skák, og á þriðjudaginn hefst N1 Reykja- víkurskákmótið í Hörpu. Í byrjun mars munu svo 400 skák- áhugamenn þyrpast á Íslandsmót skákfélaga. En aðalfrétt- in í íslenskum skákheimi er tvímælalaust: Á næstu vikum munu margar skærustu stjörnur skákheimsins leika listir sínar á Íslandi. Ballið byrjar í Borgartúni á morgun, laugar- dag, með landskeppni Íslands og Kína í atskák. „Kínverjar eru orðnir risaveldi í skákheiminum,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Forset- inn telur mikið fagnaðarefni að fá kínverska skáksnillinga til landsins. „Kínverska liðið er skipað ofurstórmeisturum, skákdrottningum og undrabörnum. Kína hefur á undra- skömmum tíma náð gríðarlegum árangri í skák. Þetta eru góðir gestir, og stórkostleg upphitun fyrir N1 Reykjavíkur- mótið í Hörpu.“ Á pappírunum er kínverska liðið miklu sterkara. „Einn skákmeistari stakk upp á því, í léttum dúr, að keppnin yrði haldin fyrir luktum dyrum,“ segir Gunnar. En íslenska liðið verður ekki skipað neinum aukvisum, þótt marga af okkar sterkustu skákmönnum vanti. Stórmeistararnir Helgi Ólafsson, Stefán Kristjánsson og Þröstur Þórhallsson eru allir með, sem og hinir ungu og efnilegu Hjörvar Steinn Grétarsson, Guðmundur Kjartansson og Jón Viktor Gunn- arsson. Þá verður Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacni- kova, í íslenska liðinu og nokkur af efnilegustu börnum og ungmennum Íslands fá að spreyta sig. Á þriðjudaginn, 19. febrúar, hefst svo N1 Reykjavíkur- skákmótið í Hörpu, sem Gunnar Björnsson kallar „flagg- skipið í íslensku skáklífi“. Mótið var fyrst haldið árið 1964 og nýtur mikilla vinsælda og virðingar í skákheiminum. Þátttökumet eru nú slegin árlega. „Í fyrra voru 200 keppendur, þar af 130 útlendingar,“ segir Gunnar, og lofar nýju meti í ár. Reykjavíkurskák- mótið skilar sannarlega sínu: Hótel og gistihús fá meira en 2000 gistinætur, auk þess sem flugfélög og veitingahús njóta góðs af, svo um munar. En mestur er ávinningurinn auðvitað fyrir skákina: „N1 Reykjavíkurmótið núna verður óhemju spennandi. Við erum með margar af efnilegustu og skærustu stjörnum skákheimsins. Þrír af stigahæstu skák- mönnum heims undir 20 ára aldri tefla í Hörpu. Við erum með svakalega spennandi keppendur af báðum kynjum og frá ótrúlega mörgum löndum. Þarna tefla börn og gamlar kempur. Allt er þetta í anda kjörorða skákhreyfingarinnar: Við erum ein fjölskylda,“ segir Gunnar. Landskeppnin við Kínverja verður á laugardag og sunnudag í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni, og hefst báða dagana klukkan 13. Áhorfendur eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Gestir eru aðeins beðnir um að hafa hljótt og trufla ekki skákmeistarana. Tefldar verða atskákir, með 20 mínútna umhugsunar- tíma. Hvort lið er skipað sex skákmeisturum og alls eru tefldar 72 skákir. Þarna verða Friðrik Ólafsson, 78 ára, goðsögn í skákheimum, og margir af bestu skákmönnum Íslands í harðri glímu við kínverska snillinga og undrabörn. Friðrik Ólafsson, 78 ára, goðsögn í skákheimum. Er í íslenska liðinu sem mætir Kínverjum. Wei Yi, 13 ára, kominn með 2501 skákstig og tvo stórmeistaraá- fanga. Yngsti alþjóðameistari í heimi. Áttatíu prósent tölvupósta er ruslpóstur Tölvupósturinn er ekki samvinnutæki heldur ættu fyrirtæki að skoða aðrar leiðir til samskipta eins og blogg, sam- félagsmiðla eða wiki-síður, segir Snæ- björn Ingi Ingólfsson, lausnaráðgjafi Nýherja, á vef fyrirtækisins en hann var með erindi á Utmessunni í Hörpu um liðna helgi um hvort tölvupósturinn sé að deyja á kostnað annarra sam- skiptamiðla. Snæbjörn segir, að því er fram kemur á síðunni, að þrátt fyrir að tölvupósturinn sé orðinn 42 ára hafi hann ekki tekið miklum breytingum í áranna rás. Hann bendir á að 80% af þeim 300 milljörðum tölvupósta sem fara um netið dag hvern sé ruslpóstur og vírusar; starfsfólk fyrirtækja eyði miklum tíma í tilgangslausar upp- lýsingar. Hann bendir á að samfélags- miðlar og aðrar lausnir séu betri leiðir til samskipta innan fyrirtækja, slíkar leiðir séu skilvirkari, boðleiðir með þeim séu einfaldari og að verkefni vinnist hraðar. „Það er mikil ástæða fyrir fyrirtæki að skoða aðrar samskiptaleiðir því nú eru að vaxa úr grasi kynslóðir sem vilja síður nota tölvupóst, þess í stað notar ungt fólk samfélagsmiðla til að miðla upplýsingum og viðhalda samskiptum. Fyrirtæki þurfa að átta sig á þessari þróun. Nú þegar eru komnar margar snjallar lausnir sem taka á þessari þróun og leysa þann vanda sem felst í takmörkun á notkun tölvupósts.“ - jh 8 fréttir Helgin 15.-17. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.