Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 47
tíska 47Helgin 15.-17. febrúar 2013
NÝTT
200% ÞYKKING
100% KLESSUFRÍR
CLUMP DEFY MASKARI
Fermingar-
skórnir
fást hjá okkur
s.512 1733 - s.512 7733
Kringlan - Smáralind
www.ntc.is | erum á
Hælar m/bandi yfir rist
7.995.-
Hælar m/platformi
7.995.-
Glimmer blúnduhælar
9.995.-
Fylltir opnir hælar
6.995.-
Hælar m/platformi
8.995.-
C ath kom fyrst hingað til lands fyrir tæpum tveimur árum en þá sem ferðamað-
ur. „Ég hafði horft til Íslands um
nokkurt skeið sem staðar sem ég
gæti ferðast til ein og verið tiltölu-
lega örugg. Svo ég sló að endingu
til og kom hingað, algjörlega óund-
irbúin. Ég hafði ekki einu sinni kort
meðferðis.“
Cath treysti á gistingu hjá
ókunnum manni sem hún bókaði í
gegnum vefsamfélagið „couchsur-
fers“ en þar gefst fólki kostur á að
bóka gistingu á sófa heimamanna,
endurgjaldslaust með því skilyrði
að gera slíkt hið sama og bjóða sinn
eigin sófa ferðalöngum.
„Það gekk ekki upp því maður-
inn ætlaði sér nánari kynni við mig
en í boði voru. Hann vildi eitthvað
meira frá mér og mér ofbauð. Ég
flýtti mér því þaðan og hugðist bara
gista á farfuglaheimili það sem eftir
var. Ég fór á nærliggjandi bar með
bakpokann en þar gerðist svolítið
óvanalegt og skemmtilegt sem
varð til þess að ég ílengdist,“ segir
Cath dularfull og gerir hlé á máli
sínu á meðan hún gerir að nöglum
blaðakonu.
Við erum staddar á lítilli nagla-
snyrtistofu á heimili hennar í Norð-
urmýrinni. Cath er litrík persóna,
með blátt hár og fjöldamörg húðflúr
af hinum ýmsu teiknimyndapers-
ónum. Um stofuna, allt um kring,
gefur að líta verðlaunagripi í bland
við myndir og plastfígúrur.
„Ég flúði sem sagt af heimili
þessa manns og var komin með
bakpokann á barinn,“ heldur Cath
áfram. „Á barnum var samankom-
inn hópur af fólki að skemmta sér.
Nokkur þeirra gáfu sig á tal við
mig og ég endaði með að sitja og
tala við einn strákinn alla nóttina.
Hann var ekkert smá almennilegur,
ég held að hann hafi vorkennt mér
bara að vera svona umkomulaus
því hann bauð mér að gista heima
hjá sér þar sem hann var með auka
herbergi.“ Cath þáði herbergið án
þess að gera sér grein fyrir því að
það myndi að vera upphafið að ein-
hverju nýju. Næstu dögum eyddi
hún ásamt nýja innlenda vini sínum
sem lóðsaði hana um borgina og
nærliggjandi staði, á endanum hófu
þau ástarsamband. Kærasti Cath
vinnur fyrir CCP og hafði sjálfur
nýlokið langri dvöl erlendis vegna
vinnu sinnar. „Við höfum oft rætt
hve ótrúleg tilviljun það var að
hann var kominn heim, það munaði
svo litlu að við hefðum aldrei hist.
Þetta átti bara að gerast,“ segir
Cath og brosir breitt. Hún snéri aft-
ur í styttri heimsóknir en þau voru
í fjarsambandi í heilt ár þangað til
núna í desember þegar hún ákvað
að tíminn væri kominn til að flytja.
„Ég er mjög hvatvís svo það var
ekkert mál að flytja. Það er skrítn-
ara svona eftir á því ég er svolítið
upp á kærastann minn komin þar
sem ég þekki fáa, en er mikil
félagsvera. Ég sakna auðvitað vina
minna en á móti hitti ég sem betur
fer mjög mikið af allskonar fólki við
vinnuna svo ég er mjög glöð að hafa
loksins getað sett upp stofuna. Það
eru forréttindi að geta unnið heima,
við það sem þú elskar.“
Fyrir áhugasöm er hægt að hafa
samband við Cath í gegnum facebo-
ok.com/catherinenailartist.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn
Tíska FanTasíuhönnun á neglurnar
Elti hjartað til Íslands
Catherine Cóté er ung kanadísk kona sem flutti nýverið hingað til lands. Cath, eins
og hún er jafnan kölluð, er margverðlaunaður naglasérfræðingur sem sérhæfir sig
í marglituðum gelásetningum. Hún er jafnframt sú eina á Íslandi en hingað flutti
hún eftir að hafa kynnst manni. Blaðakona Fréttatímans fór í handsnyrtingu á
dögunum og varð margs vísari.
Catherine er marg-
verðlaunaður sér-
fræðingur í naglalist.
Hún flutti frá Kanada til
Íslands fyrir ástina og
hefur nú opnað stofu á
heimilli sínu í Norður-
mýrinni í Reykjavík.
Neglur Catherine eru ótrúlega
skemmtilegar og fjölbreyttar. Það er
hægt að koma til hennar með hug-
mynd sem hún útfærir eða velja úr
fjölda leiða á stofunni sjálfri.