Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 20
varlega slasaðir á eftir, jafnvel höfuðkúpubrotnir. Neyslusaga flestra drengjanna er mjög áþekk. Þeir byrja að drekka áfengi mjög ungir, 11-12 ára og prófa síðan kannabis. Flestir fóru mjög fljótt í sterkari efni, þá helst spítt, og byrjuðu síðan að sprauta sig með örvandi efnum 14-15 ára. „Ég er náttúrulega bara fíkill,“ segir einn 16 ára sem er búinn að vera edrú frá því fyrir áramót. Hann hefur farið tuttugu sinnum í neyðarvistun á Stuðlum að eigin sögn, í fyrsta sinn þegar hann var að verða tólf ára. „Það var bara spennandi og þar fékk ég bara enn meiri áhuga. Ég lærði meira og kynntist fólki í neyslu. Ég held því fram að það hafi skemmt mig. Krakkarnir gera ekkert annað en að tala um dóp. Þetta er náttúrulega ekki meðferð, heldur einangrun ef maður hefur gert eitthvað af sér, það er bara verið að taka mann úr umferð,“ segir hann. Hann hefur tvívegis verið vistaður í lengri tíma á meðferðardeild Stuðla og var á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í um ár. „Það var helvíti. Þrisvar sinnum verra en öll neyslan mín. Ég er svo ofvirkur að ég fúnkeraði ekki þarna og það var ekkert að gera fyrir mann,“ segir hann. „Meðferðarheimili eru ekki heimili heldur geymslur,“ segir hann. Oft verið nálægt dauðanum Flestir þeirra drengja sem Fréttatíminn talaði við hafa ýmist „dósað“ sjálfir, sem sagt tekið of stóran skammt af fíkniefnum, eða orðið vitni að því að einhver „dósaði“. „Ég hef verið nálægt dauð- anum,“ segir einn. Annar segist einu sinni hafa lent í því að vera í partíi þar sem einhver „dósaði“ þannig að hann þurfti að hringja í lögregluna. „Ég hringdi bara í lögguna og lét mig svo hverfa því ég var sjálfur með efni á mér. Það voru aðrir gaurar á staðnum,“ segir hann. Þeir vita hvernig þeir eiga að bregðast við lendi einhver í því að taka of stóran skammt. „Það þarf að gefa honum vatn og aftur vatn, fá hann til að drekka. Henda honum í kalda sturtu og fá hann til að borða eitthvað. Ef hann hefur „dósað“ á spítti þarf að reyna að róa hann niður og fá hann til að drekka vatn,“ segir einn drengjanna. Golfsettið ferðast frítt! + Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 6 26 87 0 2/ 13 Í fíkniefnaheiminum ríkir skýr stéttaskipting að sögn drengjanna. „Þeir sem eru nýbyrjaðir fá ekki að umgangast þá sem eru lengra komnir. Það er mjög erfitt að komast í efri stéttirnar og það gerist helst ekki nema maður þekki einhvern þar, á til dæmis skyldmenni þar. Þeir sem eru af fínum heimilum eiga erfiðara með að komast í efri stéttirnar því þeir eru ekki með nein sambönd. Þeir eru „labelaðir“ tíkur. Þeir sem „surviva“ í þessum heimi eru þeir sem þekkja einhverja í þessu, ólust jafnvel upp í þessu,“ segir hann. Skortur á úrræðum fyrir drengina Davíð Bergmann Davíðsson hefur starfað sem meðferðarfulltrúi barna og unglinga árum saman. Hann hefur gífurlegar áhyggjur af þeim drengj- um sem eru að feta sig út á slóð glæpa og segir allt of fá úrræði fyrir þá. „Það þarf markvisst að hjálpa þessum drengjum, sem eru farnir að pissa utan í glæpamenn,“ segir Davíð. „Öðruvísi mun þetta ekki lagast,“ segir hann. „Við þurfum að beita nýjum aðferðum og horfa til aðgerða eins og „Youth Offending Team“ sem tíðkast í Bretlandi. Sú hugmyndafræði gengur út á það að tengja í huga drengjanna orsök og afleiðingu afbrota, það hefur skort hér á landi,“ segir Davíð. Nýlega voru fréttir í fjölmiðlum af börnum sem lögreglan fann í herbúðum Vítisengla þegar gerð var þar rassía. Að sögn Davíðs mun sú aðgerð einungis verða til þess að styrkja sess þessara barna í undirheimunum því önnur börn muni líta upp til þeirra fyrir vikið. „Ég hræðist þessa þróun ef ekki verður brugðist við af alvöru,“ segir Davíð. „Ég bind miklar vonir við það að breyting verði til batnaðar í þessum málaflokki eftir að Alþingi hef- ur samþykkt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt sáttmálanum verður að bregðast við af alvöru og það verða að vera til úrræði til að taka á þessum erfiðustu einstaklingunum,“ bendir hann á. Þurfum að dæma börn til meðferðar Davíð segir það ekki hefð hér á landi að dæma börn til meðferðar þrátt fyrir að heimild fyrir því sé til staðar í almennum hegningarlögum. „Það gerir það að verkum að erfiðara er að eiga við andfélagslega einstaklinga. Dómstólar landsins eru ekki að nýta sér nægilega vel grein í almenn- Ég var einn og ætlaði að fara að kaupa þegar díler- inn og gaurarnir sem voru með honum hótuðu mér og neyddu mig til að fremja vopnað rán. Lj ós m yn d/ N or di cP ho to s/ G et ty Im ag es Lj ós m yn d/ N or di cP ho to s/ G et ty Im ag es 20 úttekt Helgin 15.-17. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.