Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 60
 Í takt við tÍmann Sigurbjörn ari SigurbjörnSSon Flottir sokkar „pimpa“ upp útlitið Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson er nítján ára verslingur. Hann leikur eitt aðalhlut- verkanna í söngleiknum VÍ Will Rock You sem verslingar sýna nú í Austurbæ. Sigur- björn Ari er áhugamaður um bíómyndir og hreyfingu og fílar stórar og kósí peysur.  Átta liða úrSlit Í gettu betur MH gegn í Borgó í kvöld Á tta liða úrslit Gettu betur halda áfram í Sjónvarpinu í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20. Að þessu sinni mæt- ast lið Menntaskólans við Hamra- hlíð og Borgarholtsskóla. Í síðustu viku komst MR í undanúrslit með því að sigra MA. Höfundar spurninga og dómarar eru Þórhildur Ólafsdóttir og Atli Freyr Steinþórsson. Spyrill er Edda Hermannsdóttir. Fréttatíminn tók púlsinn á kepp- endum liðanna í vikunni. Spurn- ingaljónin voru beðin að nefna það lag sem kemur þeim í rétta gírinn fyrir keppnina í kvöld. Lið MH Þórgnýr Albertsson: Brown Girl in the Ring – Boney M. Sigurgeir Ingi Þorkelsson: Rasputin – Boney M. Leifur Geir Stefánsson: Daddy Cool – Boney M. Lið Borgarholtsskóla Grétar Atli Davíðsson: Lose Yourself – Eminem. Daníel Óli Ólafsson: Times Like These – Foo Fighters. Valur Hreggviðsson: I Want it All – Queen. Frá vinstri eru Leifur Geir, Sigurgeir Ingi og Þórgnýr. Frá vinstri eru Valur, Grétar og Daníel. Staðalbúnaður Fatastíllinn minn er frekar hefðbundinn fyrir strák nú til dags, held ég. Það eru reyndar ekki margar karlmanns fatabúðir á Íslandi sem mér finnst varið í en ég versla í Sautján, eitthvað í Noland og svo eitthvað af „vintage“ fötum. Sumt „second hand“ er flott en ég er samt frekar vandlátur. Ég hef tekið ástfóstri við Nike Free Run skóna mína, þeir eru einir bestu skór sem ég hef átt lengi. Ég hef alveg vanvirt önnur skópör sem ég á undanfarið. Ég fíla stórar og kósí peysur en ég elska ekkert meira en flotta sokka. Uppáhalds sokkarnir mínir í dag eru dopp- óttir vínrauðir. Það sem ekki allir fatta er að ef þú ert í flottum sokkum, þá „pimparðu“ upp allt annað. Nú er til dæmis frekar mikið um að menn séu að bretta upp á buxurnar. Ef menn gera það þá þarf að glitta í eitthvað fallegt þarna. Hugbúnaður Það skemmtilegasta sem ég geri er að vera með vinum mínum og kærustunni. Níutíu prósent af því er niðri í skóla eða honum tengt. Ég er rosa mikill bíókall og finnst ekkert betra en góð ræma. Ég er líka svolítið fyrir heimildarmyndir. Eftir að foreldrar mínir hættu með Stöð 2 hef ég hins vegar dottið út úr öllum þáttum. Ég stundaði alltaf fótbolta en nú fer ég af og til með vinunum. Ég fer eitthvað í ræktina en síðasta sumar var ég í cross fit. Kannski ég geri það aftur í sumar. Vélbúnaður Ég er mikið að taka upp í Rjómanum í Versló og er því með allan tæknibúnað sem við kemur vídeóvinnslu. Annars er ég með snjallsíma eins og allir og er á Snapchat, Facebook, Instagram og öllu því. Aukabúnaður Ég hef verið mjög upptekinn síðustu mán- uði og hef því verið mikið í skyndibitunum. Þá uppgötvar maður hvað maturinn heima er vanmetinn. Ef ég á mæla með einhverj- um þá verð ég að segja Serrano, ég get alltaf borðað Serrano. Svo borðaði ég á Seylon á Selfossi um daginn og það var geggjað. Það hefur verið umtalað í hópnum síðan hversu gott þetta var. Helstu áhuga- mál mín eru vídeógerð, að bulla eitthvað með kameru, tíska og hreyfing. Ég vildi að ég gæti hreyft mig meira en ég geri núna. Ég ferðast mikið um á bíl móður minnar. Það er forláta Subaru Legacy 98 módel sem er mér mjög kær. Ég er snillingur í að troða mér í einhverjar skólaferðir. Í haust fór ég til Svíþjóðar og Finnlands á stóra söng- leikjaráðstefnu sem var mjög skemmtilegt. Nú í mars fer ég svo í viðskiptaferð til Sví- þjóðar, að skoða Ikea og fleiri fyrirtæki. Annars er ég mikið fyrir útilegur og það er mikið farið í þær á sumrin. Uppáhalds- staðurinn minn er Skorradalurinn, hann er sá staður sem ég hugsa um þegar ég er í prófum. Sigurbjörn Ari þykir fara á kostum í VÍ Will Rock You sem verslingar sýna nú í Austurbæ. Ljósmynd/Hari RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is ÞITT RÚM EFTIR ÞÍNUM ÞÖRFUM FAGLEG RÁÐGJÖF OG FRÍ LEGUGREINING Mesta úrval landsins af heilsudýnum. Heilsudýnur í öllum stærðum - úr öllum efnum. RúmGott er eini aðilinn á íslandi sem býður uppá legugreiningu. DR AU M AR ÚM 30-50% afsláttur af öllum heilsurúmum FERMINGARTILBOÐ 120 x 200 cm rúm á fermingartilboði. LEGUGREINING - BETRI SVEFN - BETRI HEILSA Tilboð á arineldstæðum 20-65% afsláttur Verð: 34.900 Verð: 44.900 Verð frá 79.442 60 dægurmál Helgin 15.-17. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.