Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 15.02.2013, Blaðsíða 6
Skagfirskur sveitabiti H VÍ TA H Ú SI Ð / S ÍA Mýksti brauðosturinn á markaðnum nú á tilboði! Fáanlegur 26% og 17%. Melaheiði 17 - 200 Kópavogi - Sími: 564 3344 GSM: 898 3380 - Póstur: runir@heimsnet.is Bjóðum upp á nokkrar gerðir fermingakorta. Stærð 14x15cm. Verð 150 kr. stk. Umslag 29 kr. stk. Aðstoðum við uppsetningu texta og myndvinnslu. Útbúum sálmaskrá góð og persónuleg þjónusta Nafnspjöld - Reikningar - Bréfsefni - Umslög - Ljósritun Plaköt - Barmmerki - Bæklingar - Öll almenn prentun Mikil gleði og samtakamáttur einkenndi átakið sem fór fram úr öllum vonum aðstandenda. Ljósmynd/Kolbrún  Dans Þingmenn og ráðherrar létu sjá sig í hörpu Tvö þúsund dönsuðu gegn ofbeldi Mikill fjöldi fólks kom saman í hádeginu í gær, fimmtudag, og dansaði í þágu kvenna í alheimsbyltingu gegn kyn- bundnu ofbeldi. Tilgangurinn var að fá saman um einn milljarð kvenna, karla og barna um allan heim til þess að dansa til stuðnings konum og stúlkum og krefjast þess að kynbundið ofbeldi heyri sögunni til. Verkefnið sem heitir Milljarður rís er al- þjóðleg bylting með Eve Ensler í fararbroddi „Við á Íslandi erum kannski ekki stór hluti af milljarði en við getum látið fyrir okkur fara,“ sagði í tilkynningu frá V- dagssamtökunum, UN Women og Lunch Beat í síðustu viku. Hanna Eiríksdóttir er framkvæmdastýra UN Women á Ís- landi. Hún segir að Íslendingar hafi svo sannarlega sett sitt mark á átakið, en um 1500 manns lögðu leið sína í Hörpu til þess að stíga þar dans. „Við reiknuðum með svona 400 en það komu heilu fylk- ingarnar og það var alveg troðið,“ segir Hanna. Á meðal þeirra sem mættu voru hinir ýmsu þingmenn og ráðherrar. Einnig vakti athygli viðvera Vigdísar Finn- bogadóttur mikla athygli, en hún ku vera einkar lunkinn dansari. „Þetta var ótrúleg stund við urðum öll klökk yfir þessum ótrúlega krafti, gleði og samtakamætti sem einkenndi hverja manneskju á staðnum,“ segir Hanna sem vonar að átakið verði upphaf nýrra tíma í málefnum kvenna um heiminn. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is e kki verða birtar opinberlega upplýsingar um gæði umönnunar á hjúkr-unarheimilum landsins, samkvæmt ákvörðun landlæknisembættisins. Að sögn Önnu Bjargar Aradóttur, yfirhjúkrunarfræðings hjá embættinu, verður það hins vegar gert í framtíðinni þegar embættið telur að hjúkrunarheim- ilin séu tilbúin í það. „Nú er embættið í samstarfi við stjórnendur heimilanna um það hvaða gæðavísar skuli birtir, þeir eru ekki allir jafn hæfir til samanburðar og hvenær það verður,“ segir Anna Björg. „Vert er að taka fram að gæðavísar eru aðeins vísbending um gæði þjón- ustu og það eru margt sem getur haft áhrif á gæðin sem þarf að skýra um leið og þeir eru birtir,“ segir hún. Árið 2011 vakti doktorsrannsókn Ingibjargar Hjalta- dóttur um aðbúnað á hjúkrunarheimilum athygli en rann- sókn hennar fór fram á árunum 1996-2009. Í ljós kom að gæðum á umönnun hefði hrakað mjög á tímabilinu. Á árinu 2009 reyndist mikill skortur á virkni íbúa hjúkrun- arheimila og í ljós kom að um 55 prósent þeirra að meðal- tali hafi mjög lítið við að vera. Auk þess fengu 65 prósent íbúa 9 tegundir af lyfjum eða fleiri, sem er of mikið miðað við staðla um lyfjagjöf. Þá kom í ljós að tæpur helmingur þjáðist af þunglyndi. Í framhaldinu var Ingibjörg fengin til að þróa mælitæki fyrir gæði umönnunar á hjúkrunarheimilum og rætt var um í hagsmunahópum hvort birta ætti niðurstöður úr þeim opinberlega, í því skyni að auka gegnsæi þjónust- unnar og veita aðstandendum upplýsingar um ástand og þjónustu allra hjúkrunarheimila landsins. Landlæknisembættið hefur, eins og að ofan greinir, hins vegar tekið ákvörðun um að hjúkrunarheimilin séu ekki tilbúin í að slíkar upplýsingar séu birtar opinber- lega. Fréttatíminn tók stikkprufu á nokkrum úttektum sem gerðar voru á vegum landlæknis á hjúkrunarheimilum á síðasta ári í því skyni að meta hvort brugðist hafi verið við þeim ábendingum um það sem betur mætti fara sam- kvæmt niðurstöðum rannsóknar Ingibjargar. Hjúkrunar- heimilið Skjól hefur ýmist staðið í stað eða farið aftur frá árinu 2010 í mælingum á nokkrum gæðavísum og í úttekt landlæknis segir að ekki hafi verið unnið markvisst með niðurstöður þeirra. Algengi hegðunarvandamála sjúklinga hefur aukist, enn fleiri sjúklingar nota fleiri en níu lyf, fjöldi þvagfærasýkinga er yfir efri viðmiðunarmörkum og virkni sjúklinga hefur lítið sem ekkert aukist. Til samanburðar hefur hjúkrunarheimilið Droplaugarstaðir unnið markvisst í úrbótum í ljósi niðurstaðna fyrri gæðamælinga og hefur árangur náðst á flestum sviðum. Algengi róandi lyfja og svefnlyfja og stöðugrar notkunar svefnlyfja er samt sem áður enn á mörkum efri viðmiðana, að því er fram kemur í úttekt land- læknis í fyrra. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  heilbrigðismál gæðamál hjúkrunarheimila Umönnun sjúklinga enn víða ábótavant Hjúkrunarheimili eru ekki tilbúin til þess að upplýsingar um gæði umönnunar á þeim séu birt opinberlega, samkvæmt ákvörðun landlæknisembættisins. Árið 2011 komu fram sláandi niður- stöður um skort á gæðum þjónustu á hjúkrunarheimilum þar sem helmingur þjáðist af þunglyndi, þeir eru ekki nægilega virkir og stórum hluta sjúklinga var gefinn mun fleiri lyf að staðaldri en gott þykir. Ekki öll hjúkrunarheimili hafa nýtt ábendingar og bætt þjónustu við sjúklinga. Helmingur íbúa á hjúkrunar- heimilum þjáðust af þunglyndi árið 2009. Ekki hafa öll hjúkrunarheimili brugðist við niðurstöðum rannsóknar um gæði umönnunar á hjúkrunar- heimilum. Ljósmynd/Getty FYRSTA SVANSVOTTAÐA VEITINGAHÚSIÐ Á ÍSLANDI www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is s. 599 6660 FYRSTA SVANSVOTTAÐA VEITINGAHÚSIÐ Á ÍSLANDI 6 fréttir Helgin 15.-17. febrúar 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.