Fréttatíminn - 15.02.2013, Qupperneq 10
A Aukning erlendra ferðamanna hingað til lands utan háannar er það sem mesta athygli vekur í ævintýri ferðaþjónustunnar undanfarið. Fjöldamet voru slegin í öllum mánuðum liðins árs á Keflavíkur-flugvelli. Aukningin milli ára fór yfir 20 prósent sex
mánuði ársins en hlutfallslega var hún mest milli
ára í september, 25,4 prósent, í mars 26.5 prósent, í
desember 33,7 prósent og í nóvember hvorki meira
né minna en 60,9 prósent. Hlutfallsleg aukning er
því mest utan háannar.
Árið 2012 fóru 647 þúsund erlendir
ferðamenn frá landinu um Leifsstöð
og ef ferjusiglingum frá Seyðisfirði er
bætt við er talan tæplega 660 þúsund.
Fjölgunin milli ára er 106 þúsund
ferðamenn, eða 19,6 prósent. Þá eru
ótaldir farþegar skemmtiferðaskipa.
Þeir voru um 92 þúsund á liðnu ári.
Aukning var frá öllum mörkuðum,
Bretlandi, Norður-Ameríku, Mið- og
Suður-Evrópu, Norðurlöndunum, auk
annarra landa.
Frá árinu 2000 hefur fjöldi ferðamanna til lands-
ins meira en tvöfaldast. Erlendir ferðamenn voru
þá um 300 þúsund. Árleg aukning hefur að jafnaði
verið um 6,3 prósent frá árinu 2000 og í ljósi þess
sést hve fjölgunin er mikil á nýliðnu ári, nær 20
prósent. Gistinætur erlendra gesta árið 2011 voru
um 2,4 milljónir og hefur árleg aukning þeirra verið
að jafnaði 7,2 prósent frá árinu 2000, heldur meiri
en fjölgun ferðamanna. Þá eru ótaldar gistinætur Ís-
lendinga en þær voru um átta hundruð þúsund árið
2011.
Ferðaþjónustan er því komin með öruggan sess
sem undirstöðuatvinnugrein hérlendis en frá árinu
2008 hækkuðu útflutningstekjur af ferðaþjónustu
úr tæpum 94 milljörðum króna í 117,6 milljarða, sé
miðað við heildarneyslu erlendra ferðamanna, að því
er fram kemur í nýrri skýrslu um stöðu ferðaþjón-
ustunnar. Sem hlutfall af heildarútflutningstekjum
eru þetta um 14 prósent. Að viðbættum umsvifum
íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja erlendis voru
gjaldeyristekjur þjóðarinnar samtals 160,8 millj-
arðar króna árið 2010, eða 19 prósent af útflutningi
vöru og þjónustu samtals. Árin 2011 og 2012 jukust
umsvifin enn sem meðal annars má sjá af því að
ferðamennska og aðrir flutningar skiluðu 15,2 millj-
örðum króna meira af gjaldeyrisinnflæði á fyrstu
þremur ársfjórðungum 2012 en sama tímabil árið
áður. Aukningin milli 2010 og 2011 hafði þó verið
15,7 prósent.
Það munar um neyslu hvers ferðamanns því með-
alútgjöld eru talin hafa verið um 234 þúsund á hvern
þann sem hingað kom árið 2011, að meðtöldum far-
gjöldum. Reiknað er með sjö gistinóttum á hvern
ferðamann en tölur benda til þess að dvalarlengd er-
lendra gesta hafi aukist að meðaltali undanfarin ár.
Vaxtarverkir fylgja svo örri þróun og vel þarf
að halda á spilunum til að styrkja stöðu þessarar
mikilvægu atvinnugreinar og fyrirtækjanna sem
að henni standa. Stjórnvöld léku sér nokkuð með
fjöregg hennar þegar fram komu áform um hækkun
virðisaukaskatts á gistingu úr 7 í 25,5 prósent en
lendingin varð 14 prósent eftir að mótmælaalda reis.
Virðisaukaskattur á gistingu er í lægra skattþrepi í
flestum samkeppnislöndum. Í fyrrnefndri skýrslu
er bent á brýn verkefni sem snúa að stjórnvöldum,
meðal annars að móta framtíðarsýn í málefnum
ferðamannastaða.
Tæplega helmingur ferðamanna á árinu 2011 kom
yfir sumarmánuðina þrjá, tæplega þriðjungur að
vori eða hausti og um fimmtungur að vetri. Takist
að fjölga enn ferðamönnum utan háannar, eins og
áhersla er lögð á, þarf meðal annars að huga að því
að halda vinsælum ferðamannaleiðum opnum yfir
vetrartímann, þróa afþreyingu og lengja opnuna-
tíma safna, svo nokkuð sé nefnt. Í skýrslunni um
stöðu ferðaþjónustunnar kemur fram að nú þegar
megi kalla höfuðborgarsvæðið heilsársáfangastað.
Stuðla þarf að því að það eigi við um landið í heild
þegar fram í sækir. Sé skynsamlega á málum haldið
ætti fátt að vera því til fyrirstöðu.
Fjölgun erlendra ferðamanna utan háannar
Heilsársáfangastaðurinn Ísland
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Hverjum bjallan glymur
Það ætti kannski frekar fyrir
háttvirtum þingmanni að
liggja að greiða til baka eitt-
hvað af þeim 1700 milljónum
sem hún og eiginmaður
hennar hafa fengið afskrifað-
ar áður en hún fer að breiða
út ósannindi og dylgjur um
aðra þingmenn í þingsal.
Þór Saari móðgaðist fyrir
hönd ráðherra innanríkis- og
utanríkismála, og taldi Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur
dylgja um þá úr ræðustóli
Alþingis. Skot hans á Þor-
gerði Katrínu féll í grýttan
jarðveg og hann lauk máli
sínu við dynjandi undirleik
þingforseta á bjölluna.
Fyrirgefðu, Fídel
Samlíkingin við Kúbu var
vanhugsuð og
kjánaleg og ekki
nema sjálfsagt
að biðjast
velvirðingar á
henni.
Gylfi
Magnússon,
fyrrverandi við-
skiptaráðherra, hefur
beðist afsökunar á ummælum
sínum að Ísland yrði Kúba ef
Icesave-málið yrði ekki leyst
með samningi.
Stúdentapólitík
Það var sjúklegt fyllerí alla
nóttina þarna á aðfaranótt
föstudags. Það var verið að
brjóta glös og svona, þetta
voru bara algjör skrílslæti.
Íbúi við Vesturgötu barmaði sér
í DV yfir sigurhátíð Vökuliða
sem fögnuðu stórsigri í
kosningum til til Stúdentaráðs
á akademískan hátt.
Öðrum hefur
dottið þetta í
hug
Það hefur aldrei
hvarflað að
mér að segja af
mér.
Bjarni
Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðis-
flokksins, stendur fastur á sínu
og fer hvergi.
Hasar í rauða hverfinu
Og ég bara negldi hann, ég
kýldi hann kaldan.
Sigurður Auðberg Davíðs-
son, barþjónn á Amsterdam,
afgreiddi snarlega dólg sem
sveiflaði hnífi.
Líf metin til fjár
Aðgerðir næturinnar tóku
enda klukkan að ganga 6 í
morgun og hafði þá 4 manns-
lífum verið bjargað.
Erla Björk Birgisdóttir, skurð-
hjúkrunarfræðingur á Land-
spítalanum, vakti mikla athygli
með pistli um þau kraftaverk
sem gerast innan veggja
spítalans.
VikAn sem VAr
General Electric kæli- og frystiskápar sem hafa inn-
byggða klakavél með mulningi og ísköldu íslensku
vatni. Þeir eru öflugir og glæsilega innréttaðir. Fást
hvítir, svartir og með stálklæðningu.
Verð frá kr. 398.800 stgr.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
TILBOÐSDAGAR
Tilboð
Amerískir með klakavél
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð 40.000
Höfðagaflar 5.000
Sjónvarpsskápar 25.000
Rúm 153cm 157.000
Púðar 2.900
Vín
Torino
Fjarstýringavasar 2.500
Hægindastólar 99.000
Tungusófar 75.400
Hornsófar 119.450
Sófasett 99.900
Mósel
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
10 viðhorf Helgin 15.-17. febrúar 2013