Fréttatíminn - 15.02.2013, Síða 25
eiðholti
NÚ ER KOMIÐ AÐ ÍBÚUM Í
AÐ HÆTTA AÐ HENDA PAPPÍR Í RUSLIÐ
Allt um breytta sorphirðu er að finna á pappirerekkirusl.is
ER KOMIÐ AÐ ÞÍNU HVERFI?
Sorphirða í Reykjavík mun á næstu mánuðum breytast til hins
betra – og nú er komið að Breiðholti. Reykvíkingar munu á þessu ári
hætta alfarið að henda pappír, pappa, dagblöðum, tímaritum,
fernum og skrifstofupappír í almennar sorptunnur.
Pappír er verðmætt efni sem auðvelt er að nýta til hagsbóta fyrir
umhverfið. Í stuttu máli: Pappír er ekki rusl.
TVÆR LEIÐIR TIL AÐ LOSNA VIÐ PAPPÍRINN
BLÁ TUNNA
Þú pantar bláa tunnu á pappirerekkirusl.is, með símtali
í 4 11 11 11 eða með tölvupósti á sorphirda@reykjavik.is.
Við komum með bláu tunnuna til þín innan nokkurra daga.
GRENNDARGÁMAR
Á pappirerekkirusl.is finnur þú næsta grenndargám í
þínu hverfi.
Kjalarnes – LOKIÐ Grafarholt og Úlfarsárdalur – LOKIÐ
Okt
2012 2012 2013
Árbær og Grafarvogur – LOKIÐ Breiðholt – Í INNLEIÐINGU
Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir Miðbær og Hlíðar Vesturbær
Nóv Jan
2013
Feb
2013
Mars
2013
Apr
2013
Maí
– Takk fyrir að flokka!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2-
19
31
Seðlabanki Íslands kannaði um
nýverið væntingar markaðsaðila
til ýmissa hagstærða, svo sem
verðbólgu og vaxta. Leitað var til
36 markaðsaðila á skuldabréfa-
markaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða,
verðbréfa- og fjárfestingarsjóða,
verðbréfamiðlana og fyrirtækja
með starfsleyfi til eignastýringar.
Svör fengust frá 24 aðilum og var
svarhlutfallið því 67%.
„Miðað við miðgildi svara í
könnuninni vænta markaðsaðilar
þess að ársverðbólga verði 4% á
fyrsta og öðrum ársfjórðungi þessa
árs og um 4,5% bæði eftir eitt og tvö
ár, sem er um 0,2-0,3 prósentum
minni verðbólga en þeir gerðu ráð
fyrir í síðustu könnun bankans
sem framkvæmd var í nóvember
sl. Jafnframt sýna niðurstöður að
markaðsaðilar vænta þess að árs-
verðbólga verði að meðaltali um
4,5% á næstu fimm og tíu árum,
sem er svipuð niðurstaða og í síð-
ustu könnun. Markaðsaðilar vænta
þess að gengi krónu gagnvart evru
verði 175 krónur eftir eitt ár en það
er hækkun á gengi evrunnar um 8
krónur frá síðustu könnun,“ segir í
frétt bankans.
Niðurstöður könnunar bankans
sýna að markaðsaðilar vænta þess
að veðlánavextir Seðlabankans
haldist óbreyttir í 6% á fyrri helm-
ingi ársins en það eru 0,25 prósent-
um lægri vextir en í síðustu könnun
bankans. Að auki vænta markaðs-
aðilar að veðlánavextir verði 6,25%
eftir eitt ár sem er einnig lækkun
um 0,25 prósentur frá fyrri könnun.
Meirihluti markaðsaðila áleit
taumhald peningastefnunnar vera
hæfilegt þegar könnunin var fram-
kvæmd. - jhNýherji sér um rekst
ur upplýsingakerfa
Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær hefur samið við Nýherja
um alrekstur á upplýsingakerfum
og endurnýjun á miðlægu tölvuum
hverfi. Þá var samið um Rent a Prent
prentþjónustu, sem er umhverfisvæn
prentþjónusta og felur í sér lækkun
á árlegum prentkostnaði. Nýherji
mun hefja sýndarvæðingu á öllum út
stöðvum starfsmanna sveitarfélagsins,
en þær eru um 350. Sýndarútstöðvar
eru smávélar sem nota mun minna
rafmagn en venjulegar útstöðvar,
enda eru diskar og öflugir örgjörvar
óþarfir. Til þess að sinna viðhalds- og
tækniþjónustu fyrir sveitarfélagið hefur
Nýherji ráðið starfsmann með aðsetur á
Ísafirði, að því er fram kemur í tilkynn
ingu Nýherja.
„Markmiðið með samstarfinu
við Nýherja er að efla öryggi og
auka hagræðingu í upplýsingakerfi
Ísafjarðarbæjar,” segir Daníel Jakobsson
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. -jh
Gjaldeyrisútboð
Seðlabankans í mars
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa
evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur
til fjárfestingar til langs tíma í íslensku
atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkis
verðbréfum. Jafnframt kallar bankinn
eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja
íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé
í erlendum gjaldeyri. Útboðin þrjú sem
haldin verða þriðjudaginn 19. mars 2013
eru liður í losun hafta á fjármagnsvið
skiptum, að því er fram kemur í tilkynn
ingu Seðlabankans. - jh
Kraftmikill leigu
markaður
Alls voru gerðir 963 leigusamningar
á landinu í janúar. Það er fjölgun um
125% frá fyrri mánuði þegar leigu
samningar voru 429. Frá sama mánuði
fyrra árs nemur fjölgunin 11%. Mikil
árstíðarsveifla er á leigumarkaðinum
og og er janúar yfirleitt stór mánuður á
leigumarkaði enda margir á hreyfingu
í ársbyrjun í tengslum við nýtt upphaf í
skólum og fleira, að því er fram kemur
hjá Greiningu Íslandsbanka. Á höfuð
borgarsvæðinu voru gerðir samtals 634
samningar, fjölgun um 18% frá sama
mánuði fyrra árs. „Þessar tölur virðast
því benda til þess að leigumarkaðurinn
fari af stað inn í nýtt ár af krafti.“
Á síðasta ári voru gerðir 9084 leigu
samningar á landinu öllu og fækkaði
þeim um 9% frá árinu áður. „Þróunin
á síðasta ári virtist benda til þess að
leigumarkaðurinn væri aðeins farinn
að draga saman seglin, en á tímabilinu
2009-2011 voru gerðir um það bil
10.000 leigusamningar á ári hverju.
Eins og þróunin í janúar sýnir er ennþá
mikil sókn í leiguhúsnæði og sést
það einnig á þróun leiguverðs, en á
síðasta ári hækkaði leiguverð á höfuð
borgarsvæðinu samkvæmt mælingum
Þjóðskrár Íslands um 6,4%. Þetta er
meiri hækkun en sem nemur hækkun
íbúðaverðs á sama tíma, en á tímabilinu
hækkaði íbúðaverð á höfuðborgar
svæðinu um 5,8%.“ - jh
Finnur Oddsson, aðstoðarforstjóri
Nýherja og Daníel Jakobsson, bæjar
stjóri Ísafjarðarbæjar.
Seðlabankinn Væntingar markaðSaðila kannaðar
Vænta 4,5 prósent ársverðbólgu næstu 5 til 10 ár
Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
viðskipti 25 Helgin 15.-17. febrúar 2013