Fréttatíminn - 15.02.2013, Page 31
5 stjörnu FIT
Innifalið:
• Lokaðir tímar 3x í viku
• Leiðbeiningar um mataræði sem er
sérstaklega samsett til að tryggja
þátttakendum 5 stjörnu árangur
• Hvatning, fróðleikur og hollar og góðar
uppskriftir frá Ágústu Johnson
• Mælingar og vigtun fyrir og eftir
fyrir þær sem vilja
• Dekurkvöld í Blue Lagoon spa
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal
og opnum tímum
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu
- jarðsjávarpotti og gufuböðum
• 10% afsláttur af öllum meðferðum Blue Lagoon spa
Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu til að ná
5 stjörnu formi. Hentar jafnt byrjendum sem vönum.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin,
tímasetningu og skráningu finnur þú á
www.hreyfing.is
Breyttu línunum og tónaðu
líkamann í sitt fegursta form
Við höfum sett saman nýtt æfingakerfi byggt á kerfi
sem hefur slegið rækilega í gegn í New York. Það
sameinar margar ólíkar styrktaræfingar sem móta
og tóna vöðva líkamans á áhrifaríkan hátt.
Æfingarnar eru rólegar, krefjandi og gerðar til að
breyta línum líkamans á kerfisbundinn hátt.
Áhersla er lögð á þægilega tónlist.
Náðu 5
stjörnu formi
steini og beinagrindur í skáp-
unum.“
Stökk á Johnny
Hilmir segist hafa verið búinn að
heyra af Fyrirheitna landinu áður
en Tinna Gunnlaugsdóttir þjóð-
leikhússtjóri bauð honum hlut-
verk Johnnys Byron. „Fólk sem sá
sýninguna í London var búið að
segja mér frá henni og að þarna
væri mjög spennandi stykki á
ferðinni. Ég vissi ekkert að Tinna
væri með þetta verk en sló strax til
þegar hún nefndi þetta við mig. Ég
var fljótur að kasta mér á Johnny.
Þetta er heilmikil rulla og maður
er á sviðinu allan tímann. Þarna
eru samt mjög skemmtileg hlut-
verk fyrir alla leikarana en það
koma margir við sögu og ég myndi
segja að þetta væri stór sýning.
Þetta eru allt æðislega fín hlut-
verk og það eru allir að blómstra
þarna og Guðjón Pedersen leik-
stjóri er alveg í essinu sínu og
í miklu stuði. Þannig að það er
svífur góður andi yfir vinnunni
og sýningunni. Finnur Arnar er
líka búinn að gera þessa frábæru
leikmynd með heilli rútu inni á
sviðinu og heilum heimi í kringum
hana. Manni finnst maður bara
eiga heima þarna. Þetta er falleg
sviðsmynd í ljótleika sínum.“
Jón Viðar gerir kröfur
Umfangsmikil uppfærsla ástralska
leikstjórans Benedict Andrews á
Machbeth eftir Shakespeare vakti
athygli og umtal í janúar. Sitt sýnd-
ist hverjum en Hilmir skemmti
sér vel á meðan á blóðbaðinu stóð.
„Það er alltaf gaman þegar þessi
stóru Shakespeare-verk eru sett
upp. Það er alltaf viðburður og
frábært að taka þátt í því. Þetta
var erfitt en skemmtilegt og mikið
álag á hópnum. Maður var þarna
í klukkutíma baðaður í einhverju
blóðsýrópi þannig að maður komst
hvorki lönd né strönd og beið bara
baksviðs. En það var þess virði.
Mér fannst gaman að þessu og
skemmtilegt að sjá Bjössa [Björn
Thors] og Möggu [Margrét Vil-
hjálmsdóttir] gera þetta og þetta
var flott hjá þeim. Þetta var bara
viðburður og það var gaman að
taka þátt í þessu.
Benedict er feikilega klár náungi
og skemmtilegt að vinna með
honum. Hann er kröfuharður en
jafnframt mjög klár. Bara svona
skapandi náungi enda mjög vinsæll
leikstjóri í heiminum í dag, sem
hefur fengið stór verðlaun. Það er
alltaf gaman að geta fengið svona
leikstjóra til landsins.
Jón Viðar Jónsson, leikhúsgagn-
rýnandi DV, var þó ekki hrifinn af
uppsetningu Benedicts, gaf sýning-
unni eina stjörnu sem leikararnir
máttu skipta á milli sín. Jón Viðar
víkur oftast nær fögrum orðum að
Hilmi Snæ en leikarinn segist þó
ekki upplifa sig sérstaklega í náð-
inni hjá hinum stranga rýni.
„Nei það er nú alls ekkert alltaf.
Ég man nú eftir nokkrum skiptum
þar sem hann hefur ekki verið
neitt sérstaklega ánægður með
mig. En það er bara eins og það
er. Ef honum mislíkar þá mislíkar
honum verulega.
Ég held að Jón Viðar geri miklar
kröfur til mín. Hann hefur oft
skammað mig og það er bara
fínt. Það er nauðsynlegt að láta
skamma sig líka. Það er bara
svoleiðis.“
Bjart fram undan
Hilmir Snær er annálaður hesta-
maður en skepnurnar hafa mátt
mæta afgangi í atinu sem hefur
verið hjá honum á sviðinu. „Ég er
búinn að hafa lítinn tíma til þess
að sinna hestunum. Ég er nýbúinn
að taka þá inn og rétt byrjaður að
sýsla í þessu en það er ákaflega
gott þegar maður er að vinna mik-
ið að komast út undir bert loft og
anda að sér súrefninu á hestbaki.
Ég kúpla mig svolítið út með því
að fara í hesthúsið, þótt maður sé
bara að moka skítinn eða eitthvað.
Maður tæmir hugann alveg. Þetta
er mitt jóga,“ segir Hilmir sem
horfir björtum augum til sumars-
ins og loka leikársins. „Nú er bara
mikil hestamennska fram undan
og þegar þessu lýkur mun ég bara
eiga heima uppi í hesthúsi að temja
og svona. Þannig að það er bjart
fram undan. “
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
viðtal 31 Helgin 15.-17. febrúar 2013