Fréttatíminn - 15.02.2013, Side 44
44 bílar Helgin 15.-17. febrúar 2013
Mercedes-Benz er þekktari fyrir lúxusbíla en þýski bíla-
framleiðandinn er einnig mjög öflugur þegar kemur að
atvinnubílum. Mercedes-Benz hefur um árabil verið með
Actros nafnið á öllum stærri vöru- og flutningabílum
sínum. Nú verður þýski bílaframleiðandinn með nýtt
nafn á nýjum vinnuþjark þegar vörubíllinn Arocs verður
kynntur til sögunnar í vor, að því er fram kemur í til-
kynningu Öskju, umboðsaðila Mercedes-Benz. „Arocs
verður með mikilli veghæð og grindin verður hærri en
venja er í vörubílum. Þá verður Arocs með meiri sveigj-
anleika og gefur þar af leiðandi mun meiri möguleika á
að nota bílinn í allri vinnu utan vega m.a. við vegagerð, í
húsgrunnum, í námum og annars staðar sem þörf er á.
Arocs verður boðinn í mörgum útfærslum, bæði
tveggja, þriggja og fjögurra drifa. Bílarnir verða frá 238
hestöflum upp í alls 625 hestöfl og með burðargetu frá
18 tonnum upp í alls 44 tonn. Arocs er umhverfismildur
vinnubíll þrátt fyrir mikið afl og vinnugetu og hefur m.a.
fengið Euro VI umhverfisvottun sem er mikil viðurkenn-
ing,“ segir enn fremur.
„Arocs er mjög spennandi bíll í hinum sífellt stækk-
andi vinnubílaflota Mercedes-Benz. Arocs mun hafa
getu og burði til að vinna utanvega og á krefjandi stöðum
og fæst bæði með eða án framdrifs. Arocs verður mjög
spennandi kostur fyrir íslenskan markað og sérstaklega
fyrir verktaka sem er í snjómokstri, vegagerð eða annari
verktakavinnu t.d. undir krana. Arocs verður hagkvæm-
ur bíll í alla staði,“ segir Páll Halldór Halldórsson, sölu-
stjóri atvinnubíla hjá Öskju.
Arocs fylgir fast á hæla atvinnubílanna Actros og
Antos frá Mercedes-Benz sem komu á markað 2011 og
2012.
Arocs verður með mikilli veghæð og grindin
verður hærri en venja er í vörubílum.
Vörubílar Vinna utan Vega og Við krefjandi aðstæður
Arocs er nýr kraftajötunn frá Mercedes-Benz
Upplýsingar og innritun í S. 567 0300 Þarabakka 3
Góð þekking á undirstöðum
umferðarinnar er gott vegarnesti fyrir
framtíðarökumenn!
Ætlar þú að fara með ökunema í ængaakstur?
Við bjóðum upp á sérstakt leiðbeinendanámskeið
vegna ængaaksturs á tveggja vikna fresti.
Námskeið til undirbúnings almennu ökupró
er haldið í hverri viku allt árið.
Fagmennska í fararbroddi.
Ökuskólin í Mjódd býður upp á ölda gagnlegra
námskeiða um umferðarmál
www.bilprof.is
Kia frumsýnir hugmyndabíl
Kia frumsýndi á bílasýningunni í
Chicago nýjan, fjórhjóladrifinn hug-
myndabíl, Cross GT Concept CUV. Hér
er um að ræða svonefndan blending
sem er stærri en Sorento jeppinn og er
með tvinnaflrás, að því er fram kemur í
tilkynningu Öskju, umboðsaðila Kia.
„Allt er lagt í að gera bílinn sem þægi-
legastan og rúmbestan. Þá er mikið lagt
í innanrýmið þar á meðal ýmiss lúxus-
búnaður. Einkenni bílsins er lítil slútun
að framan og aftan en mikið hjólhaf.
Bíllinn er ennfremur hábyggður og með
sítengdu aldrifi,“ segir enn fremur.
Bílllinn er með 3,8 lítra, V6
bensínvél og flötum rafmótor sem
er undir gólfi bílsins. Samanlagt er
afkastageta bílsins 400 hestöfl og
togið ekkert smáræði eða alls 678
Nm. Bíllinn kemst 30 km eingöngu
fyrir rafmagni en bíllinn mun
verða með lágan koltvísýringsút-
blástur. Samkvæmt upplýsingum
frá Kia kemur fram að Cross GT sé
náskyldur Sorento en ennþá stærri.
Hjólahafið er 3,10 metrar, eða 40
cm lengra, og lengd bílsins er 4,90
metrar.
Hugmyndabíll Kia, Cross GT Concept CUV, er fjórhjóladrifinn
blendingur, stærri en Sorento jeppinn.
reynsluakstur toyota Verso 7 manna
n ýr Toyota Verso er algjör
snilldarbíll fyrir
stórar fjölskyldur.
Hann rúmar sjö
í sæti en tvö öftustu sætin leggjast
niður með einu handtaki og þá er
hann einfaldlega fimm manna bíll
með stóru skotti. Að auki fer sér-
staklega vel um farþega í aftursæti
(miðröð) því sætin eru þrískipt, og
hver og einn situr í bílsæti sem er
jafnstórt og framsæti. Því má vel
spenna þrjú börn í stólum í miðröð-
ina (það er ekki algengt) og tveir
bílstólar komast vel fyrir í öftustu
röð. Hún er þó ekki ætluð fyrir full-
orðinn í lengri ferðir.
Bílsætin eru öll á sleðum og því
má renna þeim fram og aftur að vild
og skapa þannig rými fyrir fótleggi
eftir því sem þörf krefur. Bíllinn
er því sérstaklega rúmgóður að
innan – en að utan er hann nettur
og frekar lítill um sig. Stór að innan
og nettur að utan, sem sagt.
Hann hefur allt til alls og státar
af skemmtilegum lausnum fyrir
fjölskylduna. Í gólfi í miðröð eru
geymsluhólf (fyrir leikföng) og
skúffa undir sætum og aftan á
framsætinu eru
felliborð, líkt og
í flugvélum. Þau
vöktu sérstaka
lukku meðal
minna barna.
Þeim fannst ekki lítið sport að koma
vatnsflöskunni sinni fyrir í glasa-
haldaranum í borðinu sínu og borða
nestið á borðinu á milli þess sem
ég sótti þau í skólann og skutlaði á
íþróttaæfingu. Því bílar fjölskyldna
í dag eru svo miklu meira en tæki
til að komast á milli staða. Þeir eru
íverustaður fjölskyldunnar hluta úr
degi, á morgnana og svo aftur síð-
degis, þar sem koma þarf við ýmsu,
svo sem að matast og leika sér. Þá
er ekki slæmt að geta líka hlustað
á uppáhaldstónlistina og það er
sannarlega hægt í Toyota Verso. Sjö
manna týpan hefur sem staðalbún-
að afþreyingarkerfi með snertiskjá
(og bakkmyndavél) og Bluetooth
tengingu þannig að auðvelt er að
hlusta á uppáhaldstónlistina úr sím-
anum eða með því að stinga USB
lykli í þartilgerða rauf.
Versóinn er jafnframt fremur
sparneytinn, díslivélin eyðir 4,9
lítrum á hverja hundrað kílómetra í
blönduðum akstri.
Stór að innan
en nettur að utan
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
Nýr Toyota Verso er hannaður með fjölskylduna í huga. Hann rúmar sjö í sæti og hvarvetna
eru sniðug geymsluhólf fyrir hvers kyns aukahluti sem fylgja fjölskyldunni.
Plúsar
+ Mjög rúmgóður
+ Skemmtilegar
geymslulausnir
+ Sparneytinn
+ Vel úthugsaður fjöl-
skyldubíll
Mínusar
÷ Þriðja sætaröðin ekki
fyrir fullorðna
Helstu upplýsingar
Breidd 179 cm
Verso Terra 5 sæta frá kr.
4.310.000
Verso Sol 7 sæta frá kr.
5.180.000