Fréttatíminn - 15.02.2013, Síða 50
50 skák Helgin 15.-17. febrúar 2013
Skákakademían
Framtíðarstjörnur skína í Hörpu
a ugu skákheimsins munu beinast að Íslandi næstu daga og vikur. Um helgina
verður landskeppnin við Kínverja í
Arion banka í Borgartúni, þar sem
örugglega munu sjást stórkostleg
tilþrif, og á þriðjudaginn hefst sjálft
N1 Reykjavíkurskákmótið í Hörpu.
Keppendalistinn á XXVIII.
Reykjavíkurskákmótinu er langur
og glæsilegur. Þegar þetta er skrif
að eru um 220 skákmenn frá um
40 löndum skráðir til leiks. Flestir
koma frá Noregi (26), Þýskalandi
(15), Svíþjóð (13), Kína (12) og
Bandaríkjunum (12). Nú eru 66
Íslendingar skráðir, en þeim á ugg
laust eftir að fjölga.
Hvorki fleiri né færri en 37 stór
meistarar hafa boðað komu sína
á N1 Reykjavíkurskákmótið, 10
stórmeistarar kvenna og 27 alþjóð
legir meistarar.
Tveir ríkjandi heimsmeistarar
tefla í Hörpu: Alexander Ipatov frá
Tyrklandi sem er heimsmeistari 20
ára og yngri og kínverska stúlkan
Guo Qi, sem varð í fyrra heims
meistari stúlkna 20 ára og yngri,
þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára.
Fleiri framtíðarstjörnur munu
skína í Hörpu. Anish Giri frá Hol
landi, Wesley So frá Filippseyjum
og Yu Yangyi frá Kína skipa efstu
sætin þrjú á heimslista 20 ára og
yngri og hinn ótrúlegi Wei Yi, 13
ára, kemur til Íslands með 2501
skákstig og tvo stórmeistaraáfanga
í farangrinum.
Íslensk börn og ungmenni (og
auðvitað skákáhugamenn á öllum
aldri) fá stórkostlegt tækifæri til
að kljást við bestu og efnilegustu
skákmenn heims. Um síðustu helgi
fóru íslensku skákbörnin á kostum
á Norðurlandamótinu í skólaskák.
Þau unnu til flestra verðlauna og
sigruðu í heildarkeppni Norður
landaþjóðanna. Vignir Vatnar
Stefánsson varð Norðurlandameist
ari 11 ára og yngri – eftir harða
keppni við Nansý Davíðsdóttur,
sem hreppti silfrið. Þá unnu þeir
Mikael Jóhann Karlsson, Oliver
Aron Jóhannesson og Dawid Kolka
til bronsverðlauna í sínum flokkum
á Norðurlandamótinu.
Íslensku skákbörnin og ung
mennin voru heiðruð í Hörpu á
miðvikudaginn, þegar Skáksam
band Íslands og N1 efndu til kynn
ingar á skákhátíðinni sem í hönd
fer. Eggert Benedikt Guðmunds
son forstjóri afhenti börnunum
viðurkenningarskjöl, sem auk þess
báru eiginhandaráritun Friðriks
Ólafssonar, fyrsta stórmeistara
okkar.
Friðrik tefldi á fyrsta Reykjavík
urskákmótinu, árið 1964, og hefur
þrisvar sigrað á mótinu. Nú er
stóra spurningin, hvort þessi goð
sögn íslenskrar skáksögu verður
með á N1 Reykjavíkurmótinu sem
hefst á þriðjudaginn í Hörpu. Frið
rik er 78 ára og tefldi síðast – með
glæsibrag – á móti í Tékklandi í
desember. Friðrik hefur ekki enn
tekið ákvörðun um hvort hann tefl
ir í Hörpu, en um helgina verður
meistarinn í íslenska liðinu sem
mætir kínversku snillingunum í
landskeppninni í Arion.
Ef Friðrik verður með á N1
Reykjavíkurskákmótinu er ljóst
að aldursmunur á yngsta og elsta
keppanda verður yfir 70 ár – því
hinn galvaski Óskar Víkingur
Davíðsson 7 ára er líka skráður til
leiks. Þetta verður gaman. skákþrautin
Svartur leikur
og vinnur
Magnus Carlsen
hafði svart og átti
leik gegn Karjakin,
sem lét dólgslega á
kóngsvæng. Norski
snillingurinn fann
rétta svarið – eins
og venjulega.
Lausn: 1... 0-0 (hróker-
ing) og svartur vann,
enda tveir hvítir menn
skyndilega í uppnámi.
Óskar Víkingur Davíðsson 7 ára verður yngsti keppandinn í næstum 50 ára sögu
Reykjavíkurskákmótanna. Hér er Óskar að tafli við Öldu unnardóttur.
Samstarf innsiglað. Gunnar Björnsson forseti Skáksambandsins og Eggert
Benedikt Guðmundsson forstjóri N1 í Hörpu.
Niðurstaða
Bráðskemmtileg
kvöldstund með
tveimur af ástsæl-
ustu leikurum Ís-
lands í verki sem
hér eftir er orðið
klassískt í íslensku
leikhúsi.
Ormstunga
Höfundar: Benedikt Erlingsson
og Halldóra Geirharðsdóttir
Leikstjórn: Peter Engkvist
Búningar: Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Benedikt
Erlingsson
Lýsing: Garðar Bergþórsson
Leikdómur OrmStunga
Ormstungan
F yrir fimmtán, sextán árum lofaði ég að bjóða kærustunni í Skemmtihúsið við Laufásveg. Að sjá rísandi stjörnur,
þau Benedikt Erlingsson og Halldóru Geir
harðsdóttur í uppfærslu á Gunnlaugssögu
ormstungu. Sagan var mér þá enn í fersku
minni eftir menntaskóladvöl, enda ein af
styttri Íslendingasögunum. Aldrei varð neitt
af ferð í Skemmtihúsið. Þessi sama kærasta,
nú eiginkona mín, er greinilega eins og fíll
inn. Gleymir engu. Ég fékk því olnboga
skot yfir morgunverðarborðið, minntur á
svikið loforð úr tilhugalífinu. Miðum var
því reddað og við hjónin mættum ásamt
öðrum menningarpáfum landsins á frum
sýningu verksins í Borgarleikhúsinu fyrir
sléttri viku. Miðarnir voru pantaðir seint og
því enduðum við hjónin á aftasta bekk. Um
þessa öftustu bekki þarna á Nýja sviðinu
má segja að öðrum megin ná þeir óþarflega
langt upp í rjáfur. Gestir máttu hafa sig alla
við að hlusta því sjaldnast tala leikararnir
beint til áhorfenda, með þá skellihlæjandi
beggja vegna sviðsins.
Nú, sextán árum síðar, þarf ekki að
kynna þau Benedikt Erlingsson og Hall
dóru Geirharðsdóttur sérstaklega. Um
hæfileika þeirra í leikhúsinu þarf í raun
ekki að fjölyrða. Þetta fólk er einfaldlega
meðal okkar fremstu listamanna. Þau
þjóta milli persóna verksins áreynslulaust
og það fer ekki á milli mála hver er hvað.
Jafnvel þótt leikararnir tali bæði við sjálfa
sig og berjist. Áhorfendur, sérstaklega
þeir sem fengu miða á fyrsta bekk, eru
vel nýttir til fjörsins. Kollega Jón Viðar –
sem var í talsvert betra sæti – var meira að
segja ávarpaður með nafni og hláturdós
ein þar fremst var oftar en ekki skilin eftir
með hross í taumi. Þetta var vel gert og
náði fullkomlega blöndu þess að gera nóg
en ekki of mikið.
Leikmynd er minimalísk sem og bún
ingar leikara. Halldóra „vopnuð“ þremur,
fjórum flautum sem hún spilaði skemmti
lega á. Oft á tvær flautur í einu og jafnvel
sitt hvora laglínuna í hvorri. Sagan er
náttúrlega harmræn ástarsaga og henni
eru gerð góð skil. Ég er þess fullviss að
endurmenntunarnámskeið ná ekki að
koma henni mikið betur til skila. Jafnvel
þótt nokkur kvöld yrðu nýtt til verksins.
Þótt mér leiðist fátt meira en spunaleik
hús finnst mér að sama skapi fátt skemmti
legra í leikhúsi en snarpar og snaggara
legar sýningar sem teygja rætur sínar í þá
hefð. Þegar Ormstunga var fyrst frumsýnd
fyrir öllum þessum árum gekk yfir landið
leikhúsbylgja. Gott ef ekki voru spuna
leikrit yfir hádegismatnum hér og þar um
bæinn. Svo mikill var áhuginn á leikhús
inu þarna rétt fyrir aldamótin. Ormstunga
sækir svolítið í þessa spunahefð og má
segja verkið hafi verið upphafið að þessum
líflegu og skemmtilegu „áhorfendasýn
ingum“ sem hafa verið svo vinsælar síðan.
Sýningar eins og Brák, Mr. Skallagríms
son og jafnvel Gói og eldfærin hefðu senni
lega aldrei orðið til ef ekki væri fyrir þessa
bráðskemmtilegu sýningu sem sannast nú
að er orðin klassík í íslensku leikhúslífi. Ég
mun pottþétt bjóða frúnni að sjá hana aftur
eftir fimmtán, sextán ár.
Halldóra Geirharðs-
dóttir lætur sig ekki
muna um að spila á
í það minnsta þrjár
blokkflautur, þverflautu
og á kontrabassa. Hér
lætur hún Benedikt
Erlingsson fá það
óþvegið. Ljósmynd/Borgar-
leikhúsið
Haraldur
Jónasson
hari@ frettatiminn.is
Skíði VeðurSpár að Skána Fyrir heLgina
Útlit fyrir að opið
verði í Bláfjöllum
Vikan sem er að líða er búin að vera
ein sú besta í Bláfjöllum það sem af
er vetri. Fólk hefur verið duglegt að
drífa sig upp í fjöll og njóta dýrðar
daganna sem verið hafa.
Það spáði leiðinlegu um komandi
helgi en spár hafa verulega verið að
skána síðasta sólarhringinn. Stjórn
endur Skíðasvæðanna sjá því fram á
opnun um helgina. Rétt er að minna
á að Skálafell er opið um helgar frá
klukkan 1017 eins og í Bláfjöllum.
Ný box og rail eru komin í Bláfjöll
og því ættu allir bretta eða freestyle
iðkendur að æfa sig um helgina og
hita upp fyrir Mint Snow keppnina
í Bláfjöllum sem er fljótlega. Nánar
um það síðar...
Bretta- og freestyle-iðkendur ættu að
mæta í Bláfjöll um helgina og æfa sig.