Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.06.1943, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ 155 sjálíkrafa, ef hreyfingar voru ákafar. 6) Næöi súr mag-asafi aö leika um slíkt smáfleiöur, ágerðist sýru- myndun og blóðsóknin færðist yf- ir alla slimhúð magans. Að lokum myndaöist ulcus chron. Annars greru fleiðrin fljótt. Svo virtist sem magaslímið væri mikil vörn fyrir slímhúðina. 7) Þaö virðist mjög líklegt, aö skapbrigði, svipuð því senr hér er sagt, séu oft og einatt orsök maga- og skeifugarnasára i mönnum. —- Allt þetta kemur vel heim við þá kenningu gömlu læknanna, að áríðandi sé að gera hverja mál- tíð sem ánægjulegasta og forðast öll deilumál. Þá var og’mikil á- herzla lögð á, að öll framreiðsla matar og borðbúnaðar væri sem bezt. Maturinn átti að vera bor- inn fram in vase pulchro. (J.A.M. A. 31/10 ’42.) G. H. Nýju vísindin finna sifellt ný ráð og ný tæki. Eitt þeirra er hin mikl.a yfirskilvinda próf. Sved- bergs í Uppsala, annað einhverjir „electrophoretic procedures", sem Tiselius o. fl. vísindamenn í Kbh. hafa notað til þess að grafast nánar eftir gerð ýmsra hvítuefna. Með þessum ráðum og þvil. má með mikilli nákvæmni ákveða stærð og lögun hvítusameinda (molekula), luildusýkla o. fl. Hefir það komið í ljós, að sumir huldusýklar eru langir og mjóir stafir og er talið að hver stafur sé ein hvítusameind. — En geta þá þessar sameindir verið lifandi vernr? (J.A.M.A. ’42.) ‘ G. H. Smitandi augnbólga (conjunc- tivitis), áður óþekkt, hefir nýlega borizt til U. S., líklega frá Hawaii. Sóttnæmið er huldusýklar, sjúkd. ekki mjög næmur, en hefir þó breiðst mjög fljótt út. Snertismit- un. Engin lyf virtust hafa áhrif á sjúkd. Vagl eða ský á sjáaldur f'engu 1—10% sjúkl.;— Ætla mætti að sjúkd. þessi kynni að berast hingað. (J.A.M.A. '42.) G. H. Læknaannáll 1942. Tveir læknar liafa fengið rétt- indi til þess að starfa sem sérfræð- ingar: % '42 Kjartan R. Guð- mundsson, sérfr. í taugasjúkdóm- um. yin '42 Þórður Þórðarson, sér- fr. í lyflæknisfræði. Ótakmarkað lækningaleyfi liafa fengið: V, 0 '42 Ragnar Ásgeirsson. — Friðrik Kristófersson. — Lita Sigurðsson, læknir frá Danmörku, kona Haraldar Sig- urðssonar héraðslæknis á Fá- skrúðsfirði. Embættaveitingar, auk þeirra, sem getið var í 5. tbl. 1942: Ragnar Ásgeirsson, settur lækn- ir i Reykjarfjarðarhéraði, var skip- aður liéraðslæknir í því héraði frá VlO ’42. _ Theodór Skúlason ráðinn aðstoð- arlæknir við lyflæknadeild Land- sjn'talans frá %0 ’A2- Valtýr Valtýsson, héraðslæknir á Hólmavík, settur til þess að gegna Reykliólahéraði frá % ’42, ásamt sínu héraði. Bjarni Guðmundsson, áður hér- aðslæknir í Flateyrarhéraði, skip-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.