Læknablaðið - 01.04.1952, Qupperneq 23
LÆKNABLAÐIÐ
127
áhrif á tonsillitis ulcerosa
(Vincenti) (26sjúkl.).
Þessar tilraunir með sulfalyf
og penicillin í Blegdamsspítal-
anum virðast benda mjög á-
kveðið á, hvers vænta má af
þessum lyfjum við tonsillitis
ac., þ. e. einskis af sulfa, en þó
» nokkurs af penicillini.
í þessu sambandi þykir mér
rétt að geta hér um penic. töfl-
ur, sem töluvert hafa verið not-
aðar, hæði hér og erlendis, sem
„sogtöflur“ eða „munntöflur“,
til að láta renna í munni, í von
um að lyfið hefði þannig bein
(local) áhrif á tonsillitis eða
aðrar bólgur í hálsi eða munni.
Ég liefi séð nokkrar greinar
um þetta efni bæði í skandinav-
iskum og amerískum ritum, og
er þar varað við þessari notkun
penicillins, þar eð hún sé
gagnslaus með því að lyfið
muni á þennan hátt ekki ná til
sýkla þeirra er bólgunni
valda, og geti auk þess verið
X
beinlínis skaðleg, valdið stoma-
titis ulcerosa og slæmum phar-
«■ vngitis. Ég liefi rekizt á allmörg
slík tilfelli. Skýringin á þessu
fyrirhrigði er sögð vera, að
penicillinið eyði eðlilegri
munnflóru og skapi þannig
skaðlegum sýklum lífsskilyrði.
Ég nota penic. yfirleitt ekki
við tonsillitis ac. nema i fyrsta
lagi, ef sjúld. er mjög þjáður,
með háan hita og yfirvofandi
fylgikvilla (komplikatioíiir). I
öðru lagi við fylgikvillaua
sjálfa, svo sem adenitis colli o.
fl. f þriðja lagi í þeim tilfellum,
sem hafa langvarandi hitaslæð-
ing og slappleika í framhaldi
af t. ac. Án þess að geta fullyrt
nokkuð um árangurinn af pen-
ic. meðferð í slíkum tilfellum,
sem ég hefi nefnt, þar eð ekki
hefir verið um neinar skipu-
lagðar tilraunir að ræða, þyk-
ist ég þó oft hafa séð góð áhrif
af lyfinu.
Mér hefir ekki tekizt að
finna neitt ritað um meðferð
á t. ac. með aureomycini eða
öðrum nýrri antibiotica.
Ég hefi aðeins prófað aure-
omycin á tveim hálsbólgusjiikl
ingum á öðrum degi sjúkdóms-
ins í háðum tilfellum, og gaf
þeim 250 mg. 6. liverja klukku-
stund. Þeir urðu báðir liita-
lausir eftir 1—1 % sólarhring,
en auðvitað getur það hafa ver-
ið tilviljun ein.
Læt ég þetta nægja um með-
ferð á t. ac. simplex.
Meðferð á tonsillitis
phlegmonosa.
Ég gef þessuin sjúklingum
eins og öðrum hálsbólgusjúkl.
antineuralgica og skolvatn.
Auk þess finnst mér sjálfsagt
að reyna penicillin fyrst í stað,
en fari hólga og verkir vaxandi
þrátt fyrir þessa meðferð, má
búast við að graftarígerð hafi
mvndazt, enda þótt ekki finnist
fluctuation. Er þá ekki um ann-