Læknablaðið - 01.04.1952, Síða 33
L Æ K N A B L A Ð I Ð
137
byggðarlags, sem hlutaðeigandi
liérað hét eftir. Sem dæmi um
ósamræmið má nefna, að hér-
aðslæknirinn á Blönduósi
gegndi á mjög eðlilegan hátt
Blönduóshéraði, en nágranni
hans, héraðslæknirinn á
Hvammstanga, gegndi lengi vel
ekki Hvammstangahéraði,
heldur Miðfjarðarhéraði. Jafn-
vel mér reyndist þetta mikil
minnisraun, og má mikið vera,
ef þess sjást ekki einhvers stað-
ar merki í Heilbrigðisskýrslum.
Þá var það ekki höndulegt, er
Þistilfjarðarhéraði gegndi hér-
aðslæknir á Þórshöfn, en sá
staður er alls ekki í þeirri sveit,
sem ber nafnið Þistilfjörður,
heldur á Langanesi. Nær hér-
að þetta yfir þrjár sveitir, Þist-
ilfjörð, Langanes og Langanes-
strandir, og er jafnóviðeigandi
að kenna héraðið við hvert citt
þessara bvggðarlaga sem er.
Mörg dæmi þessu lík eru auð-
nefnd.
Þegar lög um skipun læknis-
héraða voru lauslega endur-
skoðuð 1944, var vfirleitt kom-
ið í fast horf, hvar vera skvldi
læknissetur í hverju héraði, og
þótti þá timabært orðið að sam-
ræma heiti allra héraða sam-
kvæmt því. En af þessari sjálf-
sögðu samræmingu varð það
að leiða, að læknishérað hlyti
að skipta um heiti í þeim und-
antekningartilfellum, að lækn-
issetur yrði fært úr stað, svo
sem gerzt hefir um Breiðaból-
staðarhérað (áður Síðuhérað),
er nú heitir Kirkjubæjarhérað
og mun væntanlega heita svo
um langa framtíð.
Það er augljós misskilningur,
að nafnskipti læknishéraðs
hljóti öðru fremur að rugla
menn, er athuga Heilbrigðis-
skýrslur. Óbreytt heiti héraðs
frá ári til árs segir að sjálf-
sögðu ekkert til um, að héraðs-
svæðið sé þar með óbrevtt, og
verður jafnan að hafa vara á
sér í þvi efni, ef einhverju varð-
ar. Eyrarbakkahérað hélt ó-
hreyttu heiti, þó að undan því
félli ekkert smáræði, þar sem
var allt Selfosshérað, er aftur
hélt óbreyttu heiti, þó að frá
því skildist litlu síðar Hvera-
gerðishérað. Þannig mætti
lengi (elja. Ef menn láta sig
henda þá skyssu að hanga um
of í nöfnum læknishéraða, er
auðvitað stórum meira vill-
andi, að hérað, sem breytt hefir
um takmörk, Iialdi óbreyttu
heiti, heldur en óbreytt hérað
skipti um heiti, ]jví að niður-
felling heitisins er skýr áminn-
ing um, að leitað sé eftir, hvað
komið liafi í þess stað, og er
slíkt jafnan auðfundið.
Vænti ég, að nú hafi verið
gerð nægilega skýr grein fvrir
eðlilegri nauðsyn umræddra
nafnskipta Síðuhéraðs, svo og
því, að með þeirri reglu, sem
nú er leitazt við að lialda uppi