Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1952, Side 38

Læknablaðið - 01.04.1952, Side 38
142 LÆKNABLAÐIÐ í skýrslur, ef héruðin skipta um nafn á fárra ára fresti." Fleiri voru min orð ekki, því að fyrir mér vakti ekki að gera lítið atriði að stóru máli. Nú get ég hins vegar vel bætt því við, að ég saknaði stutta lag- góða nafnsins á Síðuhéraði, einkum þegar í þess stað var komið stirt og langt nafn, Breiðabólstaðarhérað. Nafnið varð aftur meðfærilegra, þeg- ar það breyttist í Kirkjubæjar- liérað, en þar er eitt dæmi þess, að til þess að fylgja reglunni getur þurft að hagræða nokkuð staðarnöfnum, svo sem að stytta Kirkjubæjarklausturs- hérað í Kirkjubæjarhérað. Mál- venjan hefir annars stytt þetta bæjarnafn í „Klaustur“ (Lárus á Klaustri, var ofl sagt) og gat því verið álitamál hvort liérað- ið átti að heita Kikjubæjar- eða Klausturs-hérað. Um leið og ég viðurkenni, að mig einan er að saka um at- hugasemdina við nafnbreyting- ar Síðuhéraðs, en ekki me'oril- stjóra mína, visa ég því á bug, að ég hafi talið breytingarnar „hótfyndni eina, sem eigi sér enga réttlætingu.“ En ef i minni litlu og meinleysislegu klausu felst of mikill „umvöndunar- tónn“ gagnvart yfirboðara, ber mér að sjálfsögðu að biðjast afsökunar. En svona er þetta svo oft, að ein syndin býður annarri heim. Ég hef látið mig „henda þá skyssu að hanga um of í nöfnum læknishéraða". Af þvi sprettur svo „umvöndunar- tónninn“. Hinu get ég ekki að gert, ef svar V. J. og tilefnið, sem ég gaf, minna um of á „kraftajötun" og „fis“. Vonandi leggur nú ekki dóms- málaráðuneytið á okkur þá „minnisraun“ að umhverfa sýslunöfnunum eftir sýslu- mannssetrum, þar sem það fer ekki saman. „Princip“ geta ver- ið góð, en hefð og venjur skapa sér einnig nokkra helgi. Ól. Geirsson. Ur erl. lœkiiaritum Vitamín B12. Vitamin B12 fannst árið 1948 i lif- ur, og fyrir rúmu ári í substrati, sem streptomyces griseus hafði ver- ið ræktaður á. Nýlega liefir það kom- ið i Ijós, að vitamin B12 er ekki eitt efni, heldur fleiri. Til þessa hafa fundizt B12, Blia, Blsb, B1SC og B12d, og hafa 3 þeirra, B,„, B12C og B12d, verið framleidd krystölluð, Efnin má að- greina með fysiskum og microbio- logiskum aðferðum. Þau verka öll á liinn sama liátt. Nú þykir enginn vafi á þvi, að B12 vitaminið sé utanaðkomandi lið- urinn (Castle’s exstrinsic factor) i pathogenesu mergrunanns. Ef sjúk- lingar, sem eru lialdnir mergruna, fá B12 vitamin per os, þá breytist blóðmyndin þvi aðeins að meltingar- vökvi úr lieilbrigðum sé gefinn um leið. Sé B12 vitamin gefið parenter- alt, þá verður blóðmyndin eðlileg innan 15—18 daga. Lyfið fyrirhygg- ir skemmdir á taugakerfinu, sem

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.