Bændablaðið - 23.05.2013, Síða 1
10. tölublað 2013 Fimmtudagur 23. maí Blað nr. 395 19. árg. Upplag 30.000
Ingvar Björnsson, ráðunautur hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,
segir að allt upp í 80 prósenta kal
sé á fjölda bæja í Eyjafirði. Ingvar
segir að um langversta kal sé að
ræða á svæðinu síðan hann hóf
störf sem ráðunautur fyrir áratug
og telur hann jafnvel að ekki hafi
kalið jafn illa í Eyjafirði frá því
á kalárunum um 1970. Ljóst er
að mikla vinnu þarf að leggja í
endurræktun túna með tilheyrandi
kostnaði. Þá er sömuleiðis ljóst að
verulega mun draga úr kornrækt
á Norðurlandi í ár.
Að sögn Ingvars eru bændur þegar
byrjaðir að bregðast við og farnir að
vinna upp tún sem eru illa kalin. Hins
vegar eru stór svæði þar sem ekki er
hægt að hefja endurræktun þar eð tún
eru ýmist allt of blaut eða hreinlega
undir snjó. „Þetta er ekki komið í
ljós alls staðar en það er verulegt kal
víða í Hörgárdal og Öxnadal. Það er
minna kal inni í Eyjafirði en þó er
víða kal í túnum þar líka. Ég á síðan
von á að það geti orðið mikið kal á
Árskógsströnd og út með firðinum en
þar er enn mikill snjór og ekki ljóst
hvernig staðan er. Í Svarfaðardal er
mikill snjór og því ekki ljóst hvernig
staðan er þar en ég á von á að eitthvað
sé kalið þar líka. Svo er líklegt að það
sé kalið austur um, í Þingeyjarsýslum
og á Austurlandi, en það er erfitt
að segja til um þetta vegna þess
að víða er snjór yfir ennþá. Ég hef
þegar fengið upplýsingar um að í
Hróarstungu á Fljótsdalshéraði er
mikið kal. Það verður bara að segjast
eins og er að þetta lítur ekki vel út,
ástandið er í það minnsta ekki betra
en maður bjóst við.“ Þá segir María
Svanþrúður Jónsdóttir, ráðunautur á
Húsavík, ekki ljóst hversu mikið kal
sé í Þingeyjarsýslum en þó sé ljóst
að það sé mikið.
Mikill samdráttur í kornrækt
Ingvar segir að menn beiti ýmsum
meðölum til að ná sem mestri
uppskeru. Ýmist sái menn grænfóðri
eða grænfóðri og grasfræi saman. Þau
tún sem verst fari út úr kali séu tún
sem nýlega hafi verið endurræktuð
en þau séu flest nánast ónýt þar
sem kalið hefur illa. Hins vegar sé
tiltölulega auðvelt að endurrækta
þau tún, svo fundnar séu einhverjar
bjartar hliðar. „Menn endurrækta það
sem þeir geta, með tilliti til tíma og
peninga, en eitthvað af túnum láta
menn svo standa og vonast bara til
að það komi eitthvað upp úr þeim.
Það er líka ljóst að það verður mikill
samdráttur í kornrækt hér á svæðinu.
Þeir sem ætla sér að rækta korn eru
að sá þessa dagana. Hins vegar er það
ekki viðlit hér norðar og austar, þar
er ýmist snjór yfir eða of blautt til að
hægt sé að eiga við þetta.“
Mikið af heyi flutt norður
Ingvar hefur haft umsjón með
heymiðlun á Eyjafjarðarsvæðinu og
víðar á Norðurlandi. „Við fengum
strax mjög góð viðbrögð við ákalli
um að bændur létu vita ef þeir væru
aflögufærir með hey. Við gátum
því upplýst bændur sem leituðu
til okkar um að það væru til næg
hey en allt snýst þetta hins vegar
um kostnaðinn við að flytja það
af Suður- og Vesturlandi. Það hafa
verið töluvert miklir heyflutningar
hingað norður, ég hef bent bændum
á við hverja þeir gætu haft samband
en svo hafa þeir nú mestmegnis séð
sjálfir um þessi viðskipti. Það hafa
komið einhver þúsund rúllur inn á
svæðið, mest á Eyjafjarðarsvæðið en
eitthvað líka í Þingeyjarsýslur. Mest
hefur verið keypt af heyi í Hörgárdal,
Svarfaðardal og á Árskógsströndina.
Menn hafa líka miðlað heyjum innan
héraðs en það fer að verða lítið eftir
af því.“
Ingvar segir að þrátt fyrir þetta sé
hljóðið í bændum furðugott. „Menn
taka þessu eins og það er. Þetta er
auðvitað fjárhagslegt högg fyrir
ýmsa en þeir eru nú ekki beygðir.
Það má vera að það sé þyngra í
sauðfjárbændum sem ekki geta sett
út lambfé. Annars setja menn bara
undir sig hausinn og takast á við
vandamálin.“
/fr
Miklir heyflutningar frá Suður- og Vesturlandi norður í land:
Allt að 80 prósenta kal í túnum fjölda bæja
Íslendingar hafa nytjað fuglabjörgin og sótt sér þangað
næringarrík egg og fugl sér til matar um aldir. Það viðraði
vel á Langanesinu þegar blaðamaður Bændablaðsins
slóst í för með þeim Sæmundi Einarssyni, Einari
Jónssyni og Jóni Arnari Beck til að tína þar bjargfuglsegg
síðastliðinn föstudag. Hér sést Jón Arnar Beck síga í
neðan. Sæmundur fylgdist með af brúninni og Einar
leit eftir vaðnum sem festur er við bíl þeirra félaga.
Mynd / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
– Sjá nánar á bls. 7
Tvö býli halda áfram verkefni
um vistvænt grísaeldi
10 12
Ófremdarástand í
samgöngumálum
Ferðalög og viðburðir
sumarsins
25