Bændablaðið - 23.05.2013, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. maí 2013
Undanfarna áratugi hefur
neysla á drykkjarmjólk breyst á
Vesturlöndum og sama þróun hefur
átt sér stað hér á landi. Þannig hefur
neysla á mjólk minnkað en neyslu
aukist á osti, jógúrt og skyri svo
dæmi séu nefnd. Enn fremur hefur
neysla á ýmsum bragðbættum
mjólkurdrykkjum aukist.
Mjólkursamsalan hefur um
margra ára skeið unnið að vöruþróun
ýmiss konar. Síðustu tvö ár hefur MS
unnið að nýjung, sem er laktósafrí
léttmjólk. Í laktósafrírri mjólk er búið
að fjarlægja laktósann úr mjólkinni,
en laktósi er mjólkursykur sem er
í mjólkinni frá náttúrunnar hendi.
Áður hefur MS kynnt á markað
fjölmargar vörunýjungar þar sem
búið var að draga úr laktósa en ekki
fjarlægja hann alveg. Má þar nefna
sykurskerta Kókómjólk, Hleðslu og
Skyr.is drykki.
Hvað er laktósaóþol?
Laktósaóþol hefur verið nokkuð
í umræðunni, en hjá fólki með
laktósaóþol er minnkuð virkni
eða skortur á ákveðnu ensími sem
nefnist laktasi og sér um niðurbrot
mjólkursykursins í líkamanum.
Neysla á vörum með laktósa getur
því valdið fólki með laktósaóþol
ýmsum kviðverkjum og öðrum
óþægindum. Hafa ber þó í huga að
laktósaóþol eða mjólkursykursóþol
er gjörólíkt mjólkurofnæmi, sem er
ofnæmi fyrir mjólkurpróteinum.
Tíðni laktósaóþols
Laktósaóþol er mjög mismunandi
eftir heimsálfum og í Asíu, Afríku
og Suður-Ameríku er meirihluti
fólks með óþol fyrir laktósa. Hér
á Vesturlöndum er tíðni laktósa-
óþols mun lægra, um 10%, og á
Norðurlöndunum er tíðni laktósaóþols
í kringum 2-5%. Forsvarsmenn MS
segjast þó hafa fundið fyrir mikinn
áhuga íslenskra neytenda á vörum
sem innihalda engan laktósa eða
mjólkursykur og það sé ástæða
þess að MS fór af stað með þessa
vöruþróun. Laktósafrí mjólk hentar
því fólki með mjólkursykursóþol og
öðrum þeim sem finna til óþæginda í
meltingarvegi við neyslu mjólkurvara.
Laktósafrí mjólk er jafnframt mun
lægri í kolvetnum en önnur mjólk
og er einnig D-vítamínbætt en það
vítamín er af skornum skammti í mat
og sérstaklega mikilvægt fyrir íbúa
á norðlægum slóðum sem lítið sjá af
sólinni á vetrarmánuðum.
Um nýju vöruna
Á síðustu mánuðunum hefur MS
verið að prófa laktósafríu mjólkina
meðal neytenda þykja niðurstöðurnar
lofa góðu. Vöruþróun á þessari vöru
hefur verið nokkuð langt og strangt
ferli og segja MS-menn það vera
ánægjulegt að sjá loks árangur
erfiðisins. Fólki líki laktósafría
mjólkin vel. Umbúðahönnun er
jafnframt lokið og ráðgert er að
kynna mjólkina á markaði í júni.
Ef viðtökur á markaði verða góðar
reikna forsvarsmenn fyrirtækisins
með að fjölga verulega vörum án
laktósa.
Átta vetra ær á Akranesi með
eitt horn á snoppunni
– fleiri dæmi til, m.a. erlendis, um hornvöxt á hrossum og Parísarmaddömu
Glóey er kollótt átta vetra
ær á Akranesi sem er í eigu
frístunda bóndans Atla Viðars
Halldórssonar. Hún er er sérstök
fyrir þær sakir að hún er í raun
kollótt en á henni vex eigi að síður
eitt horn. Það vex þó ekki upp úr
hvirflinum á hausnum heldur út
úr snoppunni framan við hægra
augað. Greint var frá þessu á vef
Bændablaðsins fyrir skömmu.
„Hornið sérstaka byrjaði að vaxa
í haust en við héldum að þetta væri
sár eða einhvers konar hrúður. En svo
byrjaði það að vaxa sem horn með
svörtum röndum. Það óx og dafnaði í
vetur en tók svo kipp eftir áramótin.
Við höfum talað við marga og það
hefur enginn séð svona tilvik áður.
Annaðhvort er þetta mjög sjaldgæft
eða hreinlega einstakt tilvik á
kollóttri ær,“ segir Atli Viðar.
„Það kom dýralæknir hingað um
daginn og hafði aldrei séð svona
áður. Þá er sérstakt að þetta sé að
koma í ljós núna þegar Glóey er
komin á gamals aldur.“
Atli Viðar segist vera með um 65
kindur og sauðburður sé nú á fullu.
„Það hefur gengið prýðilega og
einungis 18 kindur eftir að bera. Við
höfum ekki séð neinn einhyrning enn
í hópi lambanna.“
Dæmi um hyrnd hross og hyrnda
Parísarmaddömu
Freyja Imsland, doktorsnemi við
Uppsalaháskóla í Svíþjóð, hafði
samband við Bændablaðið og
sagðist hafa lesið af viðlíka tilfellum
í bæði hrossum og mönnum. Sendi
hún einnig vísindagrein úr Journal
of Heredity frá því árið 1928 þar
sem vísað er til enn eldri greina um
slík fyrirbæri. Þar er m.a. rætt er
um slík horn á hrossum og meðal
annars 3 og 1/4 tommu horni á
tveggja ára meri frá Rogersville í
Kentucky í Bandaríkjunum. Upp
á læknalatnesku nefnist þetta
fyrirbrigði „cornu cutaneum“, eða
húðhorn. Horn af þessu tagi eru í
raun æxlisvöxtur í húð, og segir
Freyja að ef til vill mætti nefna þau
hornæxli. Þar er einnig vísað til fleiri
tilfella, eins og af hyrndum hesti sem
greint var frá í New York Sporting
Times þann 4. mars 1905. Einnig er
þar vísað til hests sem fæddist í Santa
Fé de la Vera Cruz í Argentínu og var
með tvö fjögurra tommu horn sem
uxu líkt og á nauti. Sagt er frá öðru
slíku hrossi frá svipuðum tíma í Síle.
Á Wikipediu er greint frá þekktu
dæmi um horn af þessu tagi. Það
óx á Parísarmaddömu, Madame
Dimanche, á 19. öld. Þegar hún
var 76 ára tók henni að vaxa horn,
og á sex árum náði það 24,9 cm
lengd en þá nam skurðlæknirinn Br.
Joseph Souberbeille hornið á brott.
Vaxmynd af höfði hennar ku vera til
sýnis á Mütter-safninu í Fíladelfíu í
Bandaríkjunum.
/HKr.
MS setur laktósafría
léttmjólk á markað
Hestakona íþróttamaður
Skaftárhrepps
Á sumardaginn fyrsta var Kristín
Lárusdóttir hestakona útnefnd
íþróttamaður Skaftárhrepps.
Kristín hefur á síðastliðnu ári náð
frábærum árangri á þeim mótum
sem hún hefur tekið þátt, auk þess
sem hún hefur verið óþrjótandi í að
miðla kunnáttu sinni til unga fólksins
í sveitarfélaginu. Kristín keppir í
meistaraflokki og hefur þátttökurétt
á Íslandsmóti. Á myndinni er Kristín
með verðlaun sín. Myndina tók
Fanney Ólöf Lárusdóttir.
/MHH
Hin átta vetra þríhyrnda ær Glóey frá Akranesi með lömbin sín tvö. Mynd / Atli Viðar Halldórsson
Tveggja ára meri frá Rogersville í Kentucky í Bandaríkjunum með rúmlega
þriggja tommu horn. Þessi mynd birtist í vísindaritinu Journal of Heredity
árið 1928.
Þríhyrnd ær sem var í eigu búsins á Miðengi í Grímsnesi. Eftir að hún var
orðin fullorðin fór að vaxa á henni þetta horn sem sjá má. Það var laust
við, sat einungis í skinninu. Svo myndaðist op ofan við hornið sem fór að
vessa úr, og að lokum féll hornið af, íholt og fullt af greftri. Ærin lifði fram
á síðastliðið haust og sá ekki á henni að henni hefði vaxið þriðja hornið.
Myndir / Helga Gústavsdóttir í Miðengi í Grímsnesi
Kristín Lárusdóttir, íþróttamaður Skaftárhrepps.