Bændablaðið - 23.05.2013, Qupperneq 25
Teg:
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
Teg: Teg:
Teg:
Teg:
Teg:
Bjóðum 20% afslátt af Case IH
varahlutum í takmarkaðan tíma
Kraftvélar er umboðsaðili fyrir Case IH dráttarvélar á Íslandi
Dalvegur 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
FERÐALÖG OG VIÐBURÐIR SUMARSINS
Ólafsdalshátíðin fjölskylduvæn að vanda
Ólafsdalshátíðin verður haldin i
sjötta sinn sunnudaginn 11. ágúst.
Að sögn Rögnvalds Guðmunds-
sonar, formanns Ólafsdalsfélagsins,
verður dagskráin fjölskylduvæn að
vanda; stutt ávörp, góð tónlistaratriði,
leikhópurinn Lotta með Gilitrutt,
sýningar í skólahúsinu, veitingar og
handverk.
Þá verður boðið upp á fræðandi
gönguferðir um jörðina. Hestar og
önnur húsdýr verða á staðnum. Frítt
er á hátíðina en gestum býðst að kaupa
vistvænt ræktað Ólafsdalsgrænmeti og
taka þátt í veglegu Ólafsdalshappdrætti
til styrktar félaginu.
Um 300 félagar
Ólafsdalsfélagið var stofnað árið
2007 og eru félagar nú um 300 tals-
ins og fer stöðugt fjölgandi. Markmið
félagsins er að hefja Ólafsdal til vegs
og virðingar á ný og nú sem frum-
kvöðlasetur á 21. öld – en þar var
fyrsti bændaskóli Íslands stofnaður
árið 1880 af frumkvöðlinum Torfa
Bjarnasyni og starfræktur fram til
1907.
Þar útskrifuðust yfir 150 skóla-
piltar af landinu öllu auk þess sem
stúlkur sóttust eftir vinnumennsku
í Ólafsdal enda var húsfreyjan,
Guðlaug Zakaríasdóttir, annáluð
handverkskona. Í Ólafsdal voru auk
þess framleidd ýmiss konar jarð-
yrkjuverkfæri og seld um allt land,
s.s. hinir þekktu Ólafsdalsplógar,
hestakerrur, herfi, aktygi á hesta,
ógrynni undirristuspaða o.fl.
Ólafsdalsfélagið hefur nú staðið
að framkvæmdum í dalnum sem
kostað hafa meira en 30 milljónir
króna og er stefnt að því að koma
fyrstu hæð hins glæsilega skólahúss
frá 1896 (um 400 fermetra hús) í
rekstur á þessu ári og 2. hæð í notk-
un árið 2014. Opið verður í Ólafsdal
í sumar, frá 29. júní-11. ágúst, alla
daga frá klukkan 13-15. Þar getur
fólk komið og skoðað húsið og
notið sýninga. Einnig er stefnt að
því að í boði verði kaffiveitingar og
Ólafsdalsgrænmeti.
Merkar jarðræktarminjar
Í Ólafsdal eru afar merkar jarð-
ræktarminjar, s.s. beðasléttur,
vatnsmiðlun, hlaðnir garðar og
fjöldi annarra minja frá tímum
Ólafsdalsskólans, s.s. minjar um
smiðju Torfa, tóvinnuhús, hlaðið
vatnshús og fjós.
Skemmtilegar gönguleiðir eru út
frá Ólafsdal, s.s. yfir í Bitrufjörð,
Kleifa í Gilsfirði, Saurbæjarsveit
og víðar.
Ólafsdalur er aðeins um 6 km
inn með Gilsfirði að vestanverðu
svo þangað er stuttur akstur frá
Gilsfjarðarbrúnni.
Rögnvaldur hvetur sem flesta
að ganga í félagið og koma þannig
að endurreisn þessa merka staðar í
landbúnaðarsögu Íslendinga – sem er
í sameign þjóðarinnar. Nánari upp-
lýsingar fást hjá Rögnvaldi í síma
693 2915 en einnig er hægt að senda
tölvupóst á netfangið olafsdalur@
olafsdalur.is.