Bændablaðið - 23.05.2013, Side 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 23. maí 2013
Við stofnun Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins ehf. (RML) um
síðustu áramót varð sú breyting
að skráning á öllum skýrsluhalds-
gögnum fluttist frá Bænda-
samtökunum til RML. Í kjölfar
þessa hefur verið ákveðið að gera
nokkrar breytingar á vinnu-
ferlum varðandi skrán ingar fjár-
bóka og úrvinnslu kynbótamats.
Markmið þessara breytinga
er að bændur hafi möguleika á
að fá kynbótamat gripa uppfært
samkvæmt nýjustu gögnum hratt og
örugglega svo það nýtist sem best í
ræktunarstarfinu og búrekstrinum.
Nú í kjölfar skila á vorbókum er um
að ræða uppfærslu á kynbótamati
fyrir frjósemi á grundvelli
burðarupplýsinga nýliðins vors í
tæka tíð fyrir líflambaval haustsins.
Einnig verða nokkrar breytingar
á gjaldskrá vegna skráninga á
fjárbókum þar sem gjaldskrá RML
miðar við að gjaldtaka vegna
út seldrar þjónustu sé samkvæmt
tímagjaldi og verður þá innheimt
fyrir þann vinnutíma sem fer í
að skrá hverja bók fyrir sig í stað
fastagjalds. Vekjum við athygli á
því að þetta getur þýtt breytingar á
verði á skráningu bóka frá því sem
áður var og hvetjum við bændur til
að kynna sér það. Gjaldskrá RML
er aðgengileg inni á heimasíðunni
www.rml.is og hægt er að fá nánari
upplýsingar um þessar breytingar
með því að hringja í 516-5000.
Meginbreytingin er fyrir þá
skýrsluhaldara sem enn skila
bók inn til skráningar. Þeir geta
nú skilað bókum inn á næstu
starfsstöð RML, þaðan sem henni
verður miðlað áfram til skráningar
innan fyrirtækisins. Allir þeir sem
skiluð haustbók til skráningar
síðasta haust fengu sendar
leiðbeiningar með um útfyllingu
þeirra. Þessar leiðbeiningar eru
einnig aðgengilegar á heimasíðu
RML, www.rml.is. Vandlega
útfyllt vorbók flýtir mjög fyrir allri
skráningar vinnu og eru menn hvattir
til að fylgja þessu leiðbeiningum við
útfyllingu bóka núna í vor.
25% afsláttur fyrir tímanleg
skil vorbóka
Til að hvetja til tímanlegra skila
og til að dreifa álag í skráningu
verður veittur 25% afsláttur af
skráningu vorbóka sem komnar
eru inn til RML fyrir 30. júní
næstkomandi. Jafnframt verður
tryggt að búið verður að skrá þær
bækur inn þegar kynbótamat fyrir
frjósemi verður uppfært miðað
við gögn frá vorinu 2013 í ágúst.
Það er því tryggt að þeir sem skila
bókum snemma fá haustbækur með
uppfærðu kynbótamati sem byggir á
nýjustu vorgögnum. Næsta keyrsla
kynbótamats í frjósemi verður síðan
ekki fyrr en í lok nóvember um leið
og kynbótamat fyrir aðra eiginleika
verður keyrt. Í meðfylgjandi töflu má
sjá helstu dagsetningar varðandi skil
fjárbóka. Vert er að árétta að þessar
dagsetningar eru eingöngu viðmið
vegna úrvinnslu kynbótamats og
prentunar haustbóka en hafa ekkert
með þátttöku í gæðastýringu að
gera.
Um 80% sauðfjárbænda skila
rafrænum gögnum
Nærri 80% sauðfjárbænda skila
sínum upplýsingum inn rafrænt,
hjá þeim verður engin breyting á
skráningum gagna önnur en sú að
þeir eru hvattir til að skila gögnum
inn tímanlega svo að uppfært
kynbótamat fyrir frjósemi komi í
haustbók.
Viðmiðunardagsetning fyrir
skýrsluhaldara í vefskilum í gegnum
fjarvis.is er 1. ágúst og hafi menn
skilað fyrir þann tíma er tryggt að
haustbók innihaldi kynbótamat sem
byggir á nýjustu vorgögnum.
Miðað verður við að engin haust-
bók verði send út fyrr búið er að
uppfæra kynbótamatið um miðjan
ágúst. Ef einhver þarf á haustbók
að halda fyrir þann tíma er hægt
að óska eftir því sérstaklega en
hún verður þá ekki með uppfærðu
kynbótamati fyrir frjósemi.
Allar nánari upplýsingar um
skráningar fjárbóka hjá RML
veitir Eyjólfur Ingvi Bjarnason,
ráðunautur í sauðfjárrækt. Netfang
hans er eyjolfur@rml.is, sími 516-
5013 og 862-0384.
Við minnum á að með því að
kaupa aðgang að fjarvis.is geta
skýrsluhaldarar sjálfir skráð inn
öll sín skýrsluhaldsgögn og fá jafn-
framt aðgang að öllum uppgjörum
og skýrslum búsins.
Hægt er að fá allar upplýsingar
um aðgang og notkun á fjarvis.is
með því að hafa samband við RML.
Skráning vorbóka í sauðfjárrækt og uppfærsla kynbótamats:
Breytingar gerðar á vinnuferlum
Uppskriftir á gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
gómsætar
grillpizzur
Galdurinn við að grilla pizzu er að ná upp nógu
miklum hita í grillið að osturinn bráðni. Það
getur verið gott að baka pizzuna yfir óbeinum
hita og að sjálfsögðu nota ost sem bráðnar
hratt eins og Gott í matinn pizzaostinn.
Rjómaostur og fetaostur gera grillpizzurnar
algjörlega ómótstæðilegar.