Bændablaðið - 23.05.2013, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 23. maí 2013
2 6 5
7 1
3 4
8 1 6
9 8 3 6 2
3 4 9
1 8
6 5
6 7 3
1 7 6
9 3
9 7 5 2
4
3 5
1 2 7 3 5
6 3
7 8
5 7
3 8 6
3 4 9
4 8 6 5
2 9 6
2 1 8 3
2
1 5
24 1
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er
af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú til
hægri þyngst en sú í miðjunni þar á
milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
Jens Kristofer Buck Jensson er 11
ára gamall nemandi í Hlíðarskóla á
Akureyri. Honum finnst skemmti-
legast að smíða í skólanum en þess
fyrir utan æfir hann bogfimi.
Nafn: Jens Kristofer Buck Jensson.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Akureyri.
Skóli: Hlíðarskóli.
skólanum? Smíða.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur. Ég á á eina sem heitir Ronja.
Uppáhaldsmatur: Pítsa.
Uppáhaldshljómsveit: Ásgeir
Trausti.
Uppáhaldskvikmynd: Expendables
2.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég svaf
með pabba mínum þegar ég var lítill.
hljóðfæri?
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Leika mér.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór?
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Stokkið ofan af þaki.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Teikna.
vetur? Já, bara leika mér. /ehg
Þæfðir inniskór
PRJÓNAHORNIÐ
Nú fer fólk að fara meira í
sumarbústaðina og keyra í
húsbílunum þegar vorið er farið
að sýna sig. Þá er gott að eiga hlýja
mjúka inniskó á alla fjölskylduna.
Íslenski lopinn er tilvalinn í svona
skó þar sem hann þæfist svo
auðveldlega. Ekkert er heldur á
móti því að nota alla afgangana í
prjónakörfunni og hafa þá röndótta.
Stærð: 26-44
Efni:
Tvöfaldur plötulopi nr. 1027, 2 plötur.
Smávegis af öðrum lit til að hekla kant.
Prjónar nr. 6 - 7
Prjónað slétt fram og tilbaka.
Skór:
Byrjað við tána og prjónað fram og tilbaka slétt-
prjón, endað á hæl.
Fitjið upp 10-11-13-14-15-17 l á prjóna nr. 6 eða
7 látið ca 50 cm langan enda standa út af til að
sauma skóinn saman.
Merkið við 4-4-4-5-5-5 l og 7-8-10-10-11-13 l
en þar fer fram útaukning sitt hvoru megin við
merkin í öðrum hverjum prjóni 6 sinnum þar til
34-35-37-39-41 l eru á prjóninum.
Prjónið þá áfram þar til skórinn mælist 13-13-
14-16-18-20 cm
Prjónið nú í næstu umferð þannig 8-8-8-10-10-
10- l garðaprjón 18-19-21-18-19-21 l sléttprjón
8-8-8-10-10-10 l garðaprjón.
Prjónið þannig þar til skórinn mælist 31-33-36-
40-44-49 cm.
Fellið þá af.
Frágangur.
Dragið þráðinn gegnum lykkjurnar á tánni og
saumið skóinn saman frá tá að garðaprjóninu.
Leggið hann tvöfaldan saman í hælinn og
saumið saman.
Heklið kant kringum opið.
Þæfing:
Setjið skóna í þvottavélina ásamt gallabuxum
eða öðru taui sem ekki er hætta á að láti
lit eða taki í sig lit með ensímlausu og
klórlausu þvottaefni. Þvoið á 40 gráðu kerfi
með þeytivindu. Gott er að strekkja skóna
utan um skó til að móta þá þar til þeir þorna.
Best er svo síðar að handþvo þá eða þvo á
ullarkerfi til að þeir minnki ekki meira.
Kveðja, Inga Þyri Kjartansdóttir.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætlar að leika sér í sumar
1
6
Bændablaðið Smáauglýsingar
56-30-300
Næsta blað kemur út 6. júní