Bændablaðið - 18.07.2013, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013 7
Grillvagn sauðfjárbænda er
orðinn fastur liður í útihátíðum
víða um land, með öflugri áhöfn frá
Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna.
Láta menn sig ekkert muna um að
þeysast með vagninn landshorna
á milli viku eftir viku yfir
sumartímann og jafnvel á öðrum
árstímum líka.
Halldór Jökull Ragnarsson
kjötiðnaðar meistari var í óða önn
við að skera niður dýrindis steikur
úr heilgrilluðum lambaskrokk þegar
tíðindamann Bændablaðsins bar
að garði á Bændadegi sem haldinn
var í tengslum við Dýrafjarðardaga
á Þingeyri þann 6. júlí. Hann sagði
þá félaga fara víða með grillvagninn
góða.
„Við vorum á Höfn í Hornafirði á
síðustu helgi [29.-30. júní] og helgina
þar á undan vorum við á Hallormsstað.
Á næstu helgi verðum við á
Sveitamarkaði á Snæfellsnesi
og helgina þar á eftir verðum
við á Menningarnótt í
Reykjavík.“
Blaðamaður fékk að
bragða á lund af skrokknum
sem Halldór var að sneiða
niður. Það verður að segjast
að þvílíkt lostæti hlýtur að
vera vandfundið.
Halldór sagði að
skrokkarnir sem þeir væru að grilla
væru foreldaðir fyrir þá og það tæki
um tvo tíma að fullgrilla skrokkana á
vagninum. Ef þeir væru settir alveg
hráir beint á grillið tæki eldunin um
fjóra tíma.
„Svo erum við með sneiðar sem
við bjóðum upp á og grillum á svona
20 mínútum. Mér sýnist að fólk kunni
vel að meta þetta og hér í dag erum við
búnir að fara með mikið af kjöti. Þetta
er bara gaman, en að vísu mætti veðrið
vera örlítið betra,“ sagði Halldór, en
lofthitinn dansaði þá í kringum fimm
til sex gráður. – „En þetta er bara
Ísland í dag og svo sem óþarfi að
kvarta yfir því.“
Halldór sagði að búið væri að
þróa vagninn nokkuð frá því byrjað
var með hann fyrir nokkrum árum.
Nú væri mun þægilegra að
vinna við hann
og t.d. hægt að
loka helmingnum
á grillinu til að
halda góðum hita á
heilu skrokkunum á
meðan sneiðar væru
grillaður á opnu
grilli hinum megin á
vagninum. /HKr.
síðasta vísnaþætti
voru birtar stökur
frá sextugsafmæli
Jóhannesar bónda á
Gunnarsstöðum. Knapplega er
hægt að kveðja það samkvæmi
án þess að hugað sé að fram-
tíðarhorfum kappans. Misjafnlega
þótti hagyrðingunum horfa með
efri árin. Steingrímur bróðir
Jóhannesar var býsna bjartsýnn,
svo fremi að aðstæður yrðu honum
hagfelldar. Friðrik Steingrímsson
skólabróðir Jóa taldi útlitið ein-
sýnt:
Eins og maður sérhver sér,
senn fer allt úr böndum.
Elli- kerling um hann fer
ekki mjúkum höndum.
Hjálmar Freysteinsson læknir
leit framtíð Jóhannesar björtum
augum:
Þessi gáta létt er leyst,
lausnin á þann veg;
að hann hefur ekkert breyst,
-ekki frekar en ég.
En sýslungi Jóhannesar, gjörkunn-
ugur á Gunnarsstöðum, Ágúst
Marinó bóndi á Sauðanesi, var
ekkert sérlega svartsýnn á fram-
haldið:
Á langri ævi drakk oft dram;
það er dálítið skrítið,
að mörgu leyti fer‘onum fram,
en hann fríkkar lítið.
Kynni Björns Ingólfssonar á
Grenivík og afmælisbarnsins
komu til, þá Jóhannes hafði nokk-
uð þokast til þroska. Því treysti
Björn sér ekki í sögulega úttekt á
öldrunarferli Jóhannesar:
Ég ímynda mér, að sem unglingur
álitlegri hann væri að sjá.
Svona helvíti grár og hrukkóttur
hefur‘ann naumast verið þá.
Eftir hið válega hestaslys
Jóhannesar hafði Pétur Pétursson
eftirlit með bataferli hans:
Ekkert sé ég elst hann hafi,
eða hræðist klukkuslagið,
þó sýnist á því varla vafi
að versnað hefur göngulagið.
En þegar Birgir þáttastjórnandi
spyr Pétur, starfandi unglækni á
geðheilbrigðissviði, um ævihorfur
Jóhannesar, þá yrkir Pétur:
Á öldrun hans mér illa líst
svo ugg að manni setur.
En þó er allavega víst
að‘ann versnað tæpast getur.
Öldrunarheimili Þistilfirðinga
heitir Naust. Þar heldur Björn
Ingólfsson að Jóhannes verði
vistaður:
Á Naust þegar verður hann síðast
sendur
er sjálfsagt að hafa gát á honum.
Hann verður alltaf aðeins kenndur
að atast í gömlu kerlingonum.
Hjálmar Freysteinsson telur ekki
sjálfgefið að Jóhannes eldist illa:
Von um bata er veruleg,
þó varla fjölgi hárunum.
Farið geta fleiri en ég
fríkkandi með árunum.
Friðrik Steingrímsson byggir
öldrunarmatið á áralöngum kynn-
um við afmælisbarnið:
Lengi hef ég þrjótinn þekkt,
svo þrælvel merkin kenni.
Ég held‘ann verði leiðinlegt
og lundillt gamalmenni.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Í
Grillvagn sauðfjárbænda gerir víðreist:
Endasendist landshorna á milli með
ljúffengt og rjúkandi lambakjöt
Samúel Örn Erlingsson fréttamaður náði með miklum tilþrifum að grípa athygli grillvagnskokkanna eitt augnablik, en hann var staddur í Dýrafirði við að
taka upp sjónvarpsþátt um kraftakarla í Vestfjarðavíkingi. Kjartan Bragason, formaður Meistarafélags kjötiðnaðarmanna, mundar græjurnar á grillinu.
Myndir / HKr.
Þorsteinn Þórhallsson kjötiðnaðarmeistari hefur staðið vaktina á grillvagninum
með félögum sínum.
Til vinstri: Halldór Jökull Ragnarsson kjötiðnaðarmeistari mundar hnífinn af mikilli
fagmennsku.
Gaman að grilla
saman segir
Meistarafélag kjöt-
iðnaðarmanna.
Kjartan Bragason, formaður Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna, í óða önn að hantera
gómsætt grillkjötið ofan í gesti Bændadagsins
á Þingeyri. Þar var bæði boðið upp á heilsteikta
lambaskrokka sem og grillsneiðar og
kryddlegna bita.
Gamla kaupfélagið á Þingeyri (t.v) var lagt undir Bændadaginn.