Bændablaðið - 18.07.2013, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 201312
Fréttir
Reiðveganefnd hestamanna-
félagsins Neista á Blönduósi hefur
uppi áform um lagningu reið vegar
frá Svínvetningabraut, framhjá
heyrúllu svæðinu, vestur undir
hitaveitulögn, til suðurs meðfram
hitaveituæð að landamerkja-
girðingu við Hjaltabakka og þaðan
austur með girðingunni áleiðis að
veiðihúsi Laxár á Ásum.
Reiðveganefndin hefur sent erindi
til skipulags-, byggingar- og veituefnd
Blönduósbæjar um reiðvegagerðina.
Þar kemur einnig fram að uppi eru
áform að bæta reiðveginn sem liggur
frá Svínvetningabraut að landamerkja-
girðingu og tengist þar með þeirri leið
sem fjallað er um hér að ofan og að
auki að kanna hvort hægt sé að gera
reiðleið vestan Svínvetningabrautar
frá hesthúsabyggð að áðurnefndri
reiðleið.
Skipulags-, byggingar- og veitu-
nefndin tók erindi reiðveganefndar
fyrir á fundi sínum í gær og í fundar-
gerð segir að samkvæmt gildandi
aðal skipulagi Blönduósbæjar 2010-
2030 séu skilgreindar reiðleiðir og
samþykkir nefndin uppbyggingu
þeirra í samræmi við skipulag.
Endurbætur
reiðvega
Skýrsla starfshóps um eflingu nautakjötsframleiðslu á Íslandi:
Grípa þarf til aðgerða til að
mæta aukinni eftirspurn
– aðstaða verði sköpuð til að flytja inn nýtt erfðaefni til innblöndunar í íslenska holdanautastofninn
Eftirspurn eftir nautakjöti hefur
aukist mjög undanfarin misseri
og markaðurinn stækkað en
ásetningur nautkálfa síðastliðin
tvö ár hefur aftur á móti minnkað.
„Það liggur ljóst fyrir að grípa þarf
til aðgerða til að mæta aukinni
eftirspurn á næstu mánuðum,
þetta er úrlausnarefni sem
greinin stendur frammi fyrir og
þarf að leysa,“ segir Baldur Helgi
Benjamínsson, framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda.
Fyrr í þessum mánuði
skilaði starfshópur um eflingu
nautakjötsframleiðslu skýrslu og
kynnti fyrir ráðherra landbúnaðarmála
og starfsfólki ráðuneytisins. Baldur
Helgi segir að vel hafi verið mætt á
þann fund og viðtökur við innihaldi
og niðurstöðum skýrslunnar verið
jákvæðar og góðar.
Hlutverk starfshópsins var að
móta tillögur um hvernig standa
skuli að innflutningi á erfðaefni, gera
tillögur að kynbótaskipulagi, leggja
fram tillögur að nýju kjötmati og
einnig að móta tillögur um hvernig
megi stuðla að aukinni fagmennsku
í nautakjötsframleiðslu.
„Það er áhugi fyrir þessum málum
innan ráðuneytisins, þar er vilji til
þess að vinna að framgangi málsins.
Ég fann ekki annað en menn væru
jákvæðir og skýrslunni var vel tekið,
það er okkur mjög mikilvægt að fá
þessi jákvæðu viðbrögð.“
Fyrr á árinu skilaði nefnd á
vegum atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytis skýrslu um stöðu
holdanautastofnsins sem lið í að
efla nautakjötsframleiðslu hér á
landi. Niðurstaða þeirrar nefndar
var að þrátt fyrir að erfitt sé að gera
heildstæða úttekt á erfðafræðilegri
stöðu núverandi holdanautastofns sé
hægt að segja með talsverðri vissu að
ekki sé möguleiki á að stunda sjálfbært
ræktunarstarf í holdakynjunum
þremur sem hér finnast því skyldleiki
gripa sé of mikill. Óhjákvæmilegt
sé því að flytja inn nýtt erfðaefni
ef efla eigi holdanautastofninn hér
á landi. Starfshópur var að tillögu
Landssambands kúabænda skipaður
til að rýna þessa skýrslu og koma
með tillögur um aðgerðir til að efla
nautakjötsframleiðslu- og stöðu
holdanautastofnsins á Íslands.
Flutt verði inn erfðaefni af
holdakyninu Aberdeen Angus
Lögð er fram sú tillaga í nýju
skýrslunni að þegar verið hafist handa
við að skapa aðstöðu til að flytja
inn nýtt erfðaefni til innblöndunar
í íslenska holdanautastofninn og
telur starfshópurinn að flytja eigi inn
erfðaefni af holdakyninu Aberdeen
Angus. Á síðari stigum verði kannaðir
möguleikar á innflutningi á erfðaefni
Limousin gripa.
Lagt er til að erfðaefnið verði
flutt inn frá Noregi í samvinnu
við ræktunarfélög þar í landi.
Áður en til innflutnings erfðaefnis
kemur telur hópurinn að gera verði
ítarlega áhættugreiningu varðandi
fyrirkomulag innflutnings þess og
sérstaklega skoðað hvort unnt verði
að leyfa innflutning sæðis beint til
einstakra bænda. Þá telur hópurinn
fýsilegt að kanna hvort möguleiki sé
á að koma upp sérstöku ræktunarbúi
til að framrækta Aberdeen Angus
kynið og byggja upp hreinræktaðan
stofn og þar verði jafnframt aðstaða
til sæðistöku til dreifingar í gegnum
Nautastöð BÍ til bænda.
Skyldleikarækt orðin vandamál
Baldur Helgi segir að það erfðaefni
sem nautakjötsframleiðendur noti nú
sé um 20 ára gamalt „og það er alls
ekki viðunandi, skyldleikarækt er
orðin vandamál í greininni og ljóst
að við þessu þarf að bregðast, það
er bráðnauðsynlegt að fá nýtt blóð
inn í ræktunina. Þetta hefur verið til
umræðu lengi og í tveimur nýlegum
skýrslum sem fyrir liggja kemur
skýrt fram hversu mikilvægt það er
fyrir greinina að fá inn í hana nýtt
blóð,“ segir hann.
Nautakjötsmarkaðurinn veltir
um 2,5 milljörðum króna
Innleggjendur nautgripaafurða
voru alls 984 árið 2012 og komu
það ár til slátrunar alls 22.132
nautgripir. Miðað við skilaverð
til bænda er áætlað að verðmæti
nautakjötsframleiðslunnar sé um 2,2
milljarðar króna. Í fyrra voru að auki
flutt inn um 190 tonn af nautakjöti
að verðmæti um 300 milljónir
króna, þannig að heildarumfang
nautakjötsmarkaðarins á Íslandi er
um 2,5 milljarðar króna.
„Markaðurinn hefur vaxið
umtalsvert síðastliðin tvö ár, fram
til ársins 2010 var hann að jafnaði
um 4.000 tonn, innlend framleiðsla
og innflutningur, en undanfarin tvö
ár hefur hann verið um 4.500 tonn.“
Innlend nautakjötsframleiðsla
þarf að aukast
Ásetningur nautkálfa fór vaxandi
fram til ársins 2010 en síðan þá hefur
hann heldur dregist saman. Sú þróun
á sér stað á sama tíma og eftirspurn
eftir nautakjöti fer vaxandi.
„Það er því nauðsynlegt að grípa
til ráðstafana, þetta er úrlausnarefni
sem greinin stendur frammi fyrir og
þarf að leysa,“ segir Baldur, en m.a.
telur hann að bændur í greininni þurfi
að grípa til ráðstafana til að auka
fallþunga og flýta eldi þeirri gripa
sem nú eru í uppvexti, ásamt því að
auka ásetning kálfa.
„Í ljósi þess að eftirspurn fer
vaxandi tel ég að þeir bændur
sem í greininni eru ættu að velta
alvarlega fyrir sér að leita leiða til
að flýta eldinu. Dæmin sanna að
það er hægt að flýta eldinu og auka
vaxtarhraðann, m.a. með góðum
heyjum, steinefnabættu byggi og
fiskimjöli. Þetta tekur allt hins
vegar sinn tíma. Rannsóknir hafa
einnig sýnt að sterkt eldi skilar betri
efnahagslegri afkomu en eldi sem
byggir á kraftlitlu fóðri“ segir Baldur.
Markaðurinn vaxið um 10%
undanfarin 2 ár
Baldur segir helstu skýringu þess að
markaðurinn hefur vaxið svo hratt
sem raun ber vitni þá að straumur
ferðamanna til landsins hafi aukist
umtalsvert undanfarin ár. Hann
bendir líka á að athyglisvert sé að
eftir bankahrun hafi ekki komið nein
sveifla niður á við í sölu á nautakjöti.
Innflutningur hafi á árunum fyrir
hrun verið töluvert meiri en nú hin
síðari ár, eða allt á bilinu 5-600 tonn.
„Markaðurinn hefur stækkað um
10% á tiltölulega stuttum tíma og
við sjáum fyrir okkur að hann muni
halda áfram að stækka. Við sjáum
fyrir okkur að markaðurinn stækki
um 2-3% árlega á næstu árum og
það viðbótarmagn er fljótt að telja í
hundruðum tonna. Það er því alveg
ljóst að hægt er að afsetja fleiri
íslenska gripi á innanlandsmakraði
og við því þurfa bændur í greininni
að bregðast. Þetta er tækifæri sem við
verðum að grípa, auka framleiðsluna
og verðmætasköpunina, en allar
forsendur til þess eru til staðar,“
segir Baldur.
Mjög aðkallandi að
taka upp nýtt kjötmat
Í skýrslunni er einnig nefnt að
nauðsynlegt sé að hefja þegar
undirbúning að upptöku á nýju
kjötmati og setja það markmið
að innleiðing þess hefjist í byrjun
næsta árs, 2014. Lagt er til að
yfirkjötmatið setji saman samráðshóp
reyndra kjötmatsmanna frá stærstu
sláturleyfishöfum og að nýtt kjötmat
verði síðan framkvæmt samhliða eldra
kjötmati fram til loka næsta árs, en þá
um áramótin 2014 og 2015 taki nýtt
kjötmat við.
„Það er orðið afskaplega aðkallandi
fyrir búgreinina að tekið verði upp nýtt
kjötmat og það er á valdi ráðuneytisins
að breyta því,“ segir Baldur. Það taki
tíma og geri starfshópurinn að tillögu
sinni að þegar á næsta ári verði byrjað
á upptöku þess samhliða núverandi
kjötmati. Það kerfi sé þannig
uppbyggt að kjötmatsflokkarnir séu
þrír, UN úrval sem um það bil 10%
af skrokkunum lendi í, bróðurpartur
alls kjöts eða um 85% fari í flokk
sem nefnist UN 1 og svo er UN 2
flokkur þar sem lakasta kjötið fer í,
um 5% af magninu. Baldur nefnir að
sauðfjárbændur hafi verið í svipaðri
stöðu fyrir 15 árum, um 90% af öllu
dilkakjöti hafi farið í sama flokk, en í
kjölfar þess að nýtt kjötmatskerfi var
tekið upp í sauðfjárrækt hafi verulegur
árangur náðst í ræktunarstarfi með
heilmiklum ávinningi fyrir bændur.
„Það er löngu orðið tímabært
að við tökum upp nýtt kjötmat í
nautakjötsframleiðslunni,“ segir
Baldur.
Starfshópurinn leggur líka til að
gerð verði úttekt á stöðu allra hjarða þar
sem nautakjötsframleiðsla er stunduð
sem aðalbúgrein og að henni lokinni
metið hvaða aðgerðir skili mestum
árangri. Þá er Ráðgjafar miðstöð
landbúnaðar ins hvött til að koma
upp skipulagðri ráðgjafarþjónustu
við nautakjöts framleiðendur.
Þess má geta að RML hefur nú
þegar sett af stað átaksverkefni á sviði
ráðgjafar til nautakjötsframleiðenda.
Einnig er í skýrslunni nefnt að gera
þurfi gangskör að því að efla og bæta
skýrsluhald í greininni. Það verði
gert að skilyrði fyrir því að fá innflutt
erfðaefni til notkunar í viðkomandi
hjörð.
/MÞÞ
Íslendingar
eru 323.810
Í lok 2. ársfjórðungs 2013
bjuggu 323.810 manns á Íslandi
samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands. Þar af voru 162.400 karlar
og 161.410 konur. Landsmönnum
fjölgaði um 880 á ársfjórðungnum.
Erlendir ríkisborgarar voru
21.990 og á höfuðborgarsvæðinu
bjuggu 207.120 manns.
Á 2. ársfjórðungi 2013 fæddust
1.100 börn en 500 einstaklingar
létust. Á sama tíma fluttust 270
einstaklingar til landsins umfram
brottflutta. Aðfluttir einstaklingar
með íslenskt ríkisfang voru 120
umfram brottflutta, en aðfluttir
erlendir ríkisborgarar voru 150 fleiri
en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri
karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður
brottfluttra íslenskra ríkisborgara,
en þangað fluttust 240 manns á 2.
ársfjórðungi af 620 alls.