Bændablaðið - 18.07.2013, Side 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 201314
Á einum besta degi sumarsins hvað
veður varðar, laugardaginn 23.
júní, var haldið upp á 85 ára afmæli
Sambands sunnlenska kvenna (SSK)
í Þjórsártúni í Ásahreppi, þar sem
sambandið var stofnað. Í dag eru
26 kvenfélög innan SSK og kven-
félagskonurnar eru um eitt þúsund.
Í tilefni af afmælinu hefur sérstakt
prjónaverkefni verið í gangi, en
kvenfélagskonur hafa gengið um
koppa og grundir prjónandi búta í
risaveggteppi og minnast með því
formæðranna, sem gengu á milli
bæja prjónandi. Einnig var farin
áheitaganga, en SSK er að safna
fyrir nýju fæðingarúmi á fæðingar-
deildina á Selfossi.
Afmælisdagskráin í Þjórsártúni
var glæsileg og naut fólk þess að
koma saman í veðurblíðunni til
að hlusta á skemmtilegar ræður,
söng og vísur og sjá glímu. Þá voru
kaffiveitingarnar eins og í flottri
fermingarveislu, en þær voru í boði
systkinanna í Þjórsártúni. Magnús
Hlynur Hreiðarsson var í Þjórsártúni
og tók meðfylgjandi myndir.
/MHH
85 ára afmæli Sambands
sunnlenskra kvenna
– myndasyrpa frá glæsilegri afmælishátíð á Þjórsártúni 23. júní síðastliðinn
Nýr útifáni sambandsins var kynntur í afmælinu og dreginn að húni í Þjórsártúni.
Systkinin í Þjórsártúni buðu upp á veitingarnar sem voru ekki af verri
endanum, kökur og kruðerí eins og hver gat látið ofan í sig. Þau eru hér
frá hægri: Hrólfur, Ingibjörg, Valgerður, Lilja og Karl, Ölvisbörn. Á myndina
vantar Gyðu.
Margrét Þórðardóttir frá Þverlæk var
glæsileg í afmælinu.
Framtíðar kvenfélagskona á Suður-
landi, Hulda Guðbjörg Hannesdóttir
frá Arnkötlustöðum, 5 ára, sem var
svakalega fín í afmælinu.
Fimm fyrrverandi formenn SSK mættu í 85 ára afmælið. Þær eru hér með
núverandi formanni, Rosmarie Þorleifsdóttur, sem er þriðja frá vinstri.
Heiðursfélagar SSK, Sigríður
Theodóra Sæmundsdóttir frá Skarði
í Landsveit og Halla Aðalsteinsdóttir
frá Kolsholti í Flóahreppi.
Sveitamarkaður í Breiðabliki á Snæfellsnesi:
Ómissandi í sumardagskránni
Ragnar Kjartansson myndlistar-
maður opnaði sýningu á Galtarvita
á Vestfjörðum á Jónsmessu.
Er þetta annað árið í röð sem
Galtarviti, í samstarfi við Slíjm,
býður listamanni að koma til
vinnustofudvalar í opinn faðm
óvissunnar á Galtarvita. Sýningin
er opin í allt sumar og eru allir
velkomnir.
Sýninguna vann Ragnar í
vinnustofudvöl sinni á Galtarvita í
júní og er hún innblásin af skrifum
Óskars Aðalsteins, fyrrum vitavarðar
á Galtarvita, um frásögn sonar hans
af litastríði sem drengurinn stundaði
bolanum Dreka til ánægju.
Við opnun sýningarinnar dró
listamaðurinn ásamt föður sínum
Kjartani Ragnarssyni fána að húni
og bauð svo gestum til stofutónleika,
þar sem hann lék tregakántrítónlist á
gítar sem lengi hafði leitað hans og
nýlega fundið.
Ferðir á Galtarvita
Leiðin á Galtarvita er greiðust við
að ganga úr Skálavík. Farið er frá
Bolungarvík, ekið í Skálavík og
gengið þaðan um Bakkadal og um
Bakkaskarð, sem ætti að vera flestum
viðráðanlegt. Gott er að reikna með
um 4 tímum til göngunnar. Boðið er
upp á tjaldstæði eða svefnpokapláss
og algert net-, síma- og tímaleysi.
Ragnar Kjartansson myndlistarmaður:
Sýnir á Galtarvita
Sveitamarkaður verður haldinn
í félagsheimilinu Breiðabliki á
sunnanverðu Snæfellsnesi um
næstu helgi, 20.-21. júlí. Þetta er
í sjötta sinn sem markaðurinn er
haldinn, en hann er vaxtarsproti
upp úr verkefninu Byggjum brýr
sem Lifandi landbúnaður var
frumkvöðull að.
Sveitamarkaðurinn á Breiðabliki
hefur vaxið ár frá ári og öðlast
fastan sess í samfélaginu, og þykir
nú ómissandi þáttur í sumardagskrá
fólks í sveitunum í kring. Einnig
hafa ferðamenn gaman af að kíkja á
sveitamarkað og þeir sem hafa ein-
hver tengsl við svæðið nota tækifærið
til að koma í sveitina, kaupa vörur
á markaðnum, hitta heimamenn og
hafa gaman saman. Því ætla félaga-
samtök á svæðinu nú að ganga til liðs
við sveitamarkaðinn og brydda upp
á ýmsu skemmtilegu til að krydda
markaðinn og gera hann að nokkurs-
konar „sveitahátíð“ þar sem margt
skemmtilegt verður í boði.
Bútasaumskonur ætla t.d. að
sitja og sauma og setja upp sýningu
á því sem þær hafa verið að gera
síðastliðna vetur. Á laugardeginum
ætla ungmennafélögin og búnaðar-
félögin að standa fyrir sveitaleikum
eftir hádegi, þar sem fólk fær að
spreyta sig í ýmsum skemmtilegum
leikjum og þrautum. Björgunarsveitin
Elliði mun sýna Argo – nýtt átta hjóla
björgunartæki sem bæði kemst um
láð og lög. Félag sauðfjárbænda á
Snæfellsnesi mun standa fyrir því
að grillvagninn frá Landsamtökum
sauðfjárbænda verður á staðnum
og öllum boðið að smakka
grillað lambakjöt. Einnig verður
fjárhundasýning þar sem Svanur í
Dalsmynni mætir með smalahundana
og sýnir hvað í þeim býr.
Á sunnudeginum ætla kvenfélags-
konur að sýna handbragðið við
ýmsar hannyrðir og tónlistarfólk af
svæðinu mun stíga á stokk og flytja
nokkur lög. Þá væntum við þess líka
að fornbílafólk og þeir sem eiga fal-
leg farartæki skelli sér í sunnudags-
bíltúr og mæti á drossíunum sínum
á sveitamarkað. Einnig verður „luk-
kukrukka“ á staðnum þar sem allir
viðskipavinir sveitamarkaðsins geta
sett nafnið sitt í og dregið verður
um góða vinninga úr krukkunni á
hverjum klukkutíma – en vinn-
ingarnir verða ýmis glaðningur og
upplifun í sveitunum.
Að vanda kennir margra grasa á
markaðnum sjálfum þar sem boðinn
er til sölu margvíslegur varningur frá
fólki í sveitinni – bæði handverk,
listmunir, bækur, tónlist, plöntur og
ýmsar matvörur. En á Breiðabliki er
viðurkennt „heimilisiðnaðareldhús“
sem hefur fengið vottun um að þar
megi framleiða matvöru sem bjóða
á til sölu á almennum markaði. Þá
verður hægt að kaupa nýbakaðar
vöfflur með rjóma og gæða sér á
meðan fólk nýtur þess sem í boði er
og samverustundanna við allt það
skemmtilega fólk sem sækir hátiðina
heim. „Það er alltaf svo gaman að
hittast og gera eitthvað skemmtilegt
saman,“ segir í fréttatilkynningu frá
forsvarsmönnum Sveitamarkaðar.
Ragnar og faðir hans Kjartan Ragnarsson. Mynd / Dania Júlíusdóttir