Bændablaðið - 18.07.2013, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013
Framkvæmdir standa nú yfir við
byggingu á um 300 fermetra hús-
næðis MS á Akureyri. Um er að
ræða viðbót við afgreiðslulager og
kælirými. Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdum ljúki í haust og segir
Kristín Halldórsdóttir, mjólkurbús-
stjóri MS á Akureyri, að þegar nýtt
viðbótarhúsnæði verði tekið í notk-
un muni aðstaða til að afgreiða og
taka á móti vörum batna verulega.
„Á meðan á þessum framkvæmd-
um stendur búum við óhjákvæmilega
við ákveðin óþægindi og þrengsli.
Það er auðvitað bagalegt, sumarið er
háannatími í okkar starfsemi en einnig
sá tími sem framkvæmdir við hús-
byggingar fara fram af sem mestum
krafti,“ segir Kristín en væntir þess
jafnframt að menn taki þrengslum
með jafnaðargeði.
Ný ostagerðartæki tekin í notkun
í haust
Fleiri stór verkefni eru í gangi hjá
MS-Akureyri um þessar mundir og
tengjast þau fjárfestingum og breyt-
ingum hjá Mjólkursamsölunni sem
miða að því að auka sérhæfingu mjólk-
urbúanna. Fyrirtækið hefur keypt ný
ostaframleiðslutæki sem eru komin
til landsins og bíða flutnings norður
í land. Nýju ostagerðartækin verða
stærri og afkastameiri en þau sem fyrir
eru og verður þeim nýju komið fyrir
í sama húsnæði og húsir núverandi
ostagerð og einnig þar sem skyrgerð
var áður. Fyrsta áfanga endurnýjunar
tækjanna er raunar lokið, en að sögn
Kristínar verður haldið áfram með
verkefnið þegar líður á sumarið. „Ég
geri ráð fyrir að við hefjumst handa
af krafti þegar nær dregur hausti og
byrjum á að taka gömlu tækin niður,
þau eru orðin 22 ára gömul og því
kærkomin endurnýjun fram undan,“
segir hún. Vonir standa til að hægt
verði að prófa nýju ostagerðartækin í
lok september. „Þetta er stórt og flókið
verkefni og það tekur nokkurn tíma að
koma öllu í gang.“
Mjólkursamsalan hefur fjárfest
í þessum endurbótum fyrir um einn
milljarð króna í tækjum, í í búnaði
og húsnæði á Akureyri.
Smávörudeildin flutt norður, skyrið
suður
Hluti af þeim breytingum sem
fylgja sérhæfingu mjólkurbúanna er
að smávörudeild MS var á liðnum
vetri flutt frá Selfossi norður yfir
heiðar og komið fyrir í samlaginu
á Akureyri. Það var gert í kjölfar
þeirrar ákvörðunar að hætta fram-
leiðslu á hinu fornfræga KEA skyri
í höfuðstað Norðurlands, en fram-
leiðsla á sýrðum vörum fer nú að
mestu fram hjá MS-Selfossi. Kristín
segir að framleiðsla smávörudeildar
MS henti rekstrinum á Akureyri vel;
deildin er með fjölbreytta starfsemi
og hefur m.a. á sinni könnu fram-
leiðslu á ýmsum vörutegundum, eins
og ostakökum, hrísmjólk, grjónagraut,
smámáli og rjómaosti, auk þess að
framleiða nokkrar tegundir af skyr-
kökum fyrir annan aðila.
Tækifæri í vöruþróun
„Þetta eru allt vinsælar vörur og við
sjáum mikil sóknarfæri þegar til
framtíðar er litið m.a. hvað varðar
vöruþróun,“ segir Krístín. Nú sé stóra
verkefnið að vinna að þeim fram-
kvæmdum og breytingum sem fylgi
nýju ostagerðartækjunum, „en þegar
því er lokið munum við skoða ýmsa
kosti sem það hefur í för með sér fyrir
okkur að fá smávörudeildina norður,“
segir hún. „Við teljum að margvíslegir
möguleikar séu fyrir hendi varðandi
þessar vörur, meðal annars að kynna
þær á stækkandi eftirréttamarkaði og
fyrir stórnotendum eins og mötuneyt-
um og veitingastöðum.“
Sala á rjómaosti eykst ár frá ári
Alls eru framleiddar sex tegundir
af mismunandi ostakökum auk þess
sem MS framleiðir árstíðarbundnar
ostakökur, t.d. fyrir jól, páska og
konudag. Hrísmjólk, með þremur
bragðtegundum, er einnig framleidd
innan smávörudeildar sem og grjóna-
grautur, en hvorutveggja hefur notið
mikilla vinsælda meðal landsmanna.
Þá er ótalinn rjómaostur, bæði hreinn
og með hinum ýmsu viðbótum eins
og hvítlauk, sólþurrkuðum tóm-
ötum, svörtum pipar, appelsínulíkjör
og kryddblöndu. Loks má geta þess
að hinn ítalskættaði mascarpone-
rjómaostur er einnig framleiddur
hjá MS-Akureyri, en hann er mikið
notaður í ábætisrétti, t.d. hið þekkta
Tíramísú. Þá er eftirrétturinn Smámál
framleiddur á Akureyri.
„Sala á rjómaostum eykst ár frá ári,
enda eru þeir núorðið mikið notaðir til
matargerðar, í sósur, súpur, pastarétti
og ýmsa rétti aðra. Við finnum fyrir
því að fólk kann vel að meta fjölbreytt
úrval rjómaostanna frá okkur,“ segir
Kristín. /MÞÞ
Mjólkursamsalan á Akureyri:
Fjárfestir fyrir um einn milljarð króna
í tækjum, búnaði og húsnæði
-
-
-
Bændablaðið
Kemur næst út
1. ágúst