Bændablaðið - 18.07.2013, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013
Sighvatur Jón Þórarinsson og
Kristín Álfheiður reka kúabú-
skap á Höfða í Dýrafirði. Segir
Sighvatur að þau séu auk þess með
nokkrar kindur og hænur auk þess
að stunda skógrækt.
Þau hjón lögðu m.a. til kálfa
og heimalning sem voru gestum á
Bændadegi til sýnis.
„Þetta gengur bara ágætlega.
Við erum ekki með neitt stórbú, eða
tæpar 20 kýr og 100 kindur.“
Bragðbætt ábrystir vakti athygli
Þau hjón voru með bakkelsi og
ýmsar afurðir af búinu til sölu
á Bændadeginum á Þingeyri og
margvíslegan annan heimaunninn
varning. Ábrystir með vanillu- og
súkkulaðibragði vöktu þar mikla
athygli, enda hreinasta sælgæti.
Augljóst var að ekki skortir
hugumyndaflugið hjá vestfirskum
bændum. /HKr.
Góð aðsókn að Bændadegi sem haldinn var í tengslum við Dýrafjarðardaga á Þingeyri:
Árni Brynjólfsson bóndi á Vöðlum í Önundarfirði
spilaði á nikkuna af miklum móð
Árni Brynjólfsson, bóndi
á Vöðlum í Önundarfirði,
spilaði á harmoníku af miklum
móð fyrir gesti á Bændadegi
Búnaðarsambands Vestfjarða
sem haldinn var á Þingeyri 6. júlí
samhliða Dýrafjarðardögum.
Hann sagðist þó ekki þora að lofa
sér mikið í spilamennsku svona
um hásumarið, enda aldrei að vita
hvenær hann þyrfti að hlaupa í
heyskapinn.
„Spilamennskan gefur þó lífinu
lit. Í maí var ég að spila úti um
allt nokkrar helgar í röð.Það voru
afmæli, brúðkaup og allt mögulegt.“
Sagðist Árni rétt vera að byrja að
slá en sprettan væri mjög góð. Vænti
hann því góðra heyja í sumar.
„Ef það þornar aðeins á þá rýkur
maður
af stað með sláttinn. Það er svolítið
sérstakt núna að það er mikið meiri
raki nú í júní en undanfarin ár.
Hér var allt að brenna úr þurrki á
sama tíma í fyrra en slíkt sést ekki
núna. Það er aðeins vottur af kali
og einkum á blettum í lautum, en
ekkert sem skiptir máli.
Við erum með sláttinn svolítið
seinna á ferðinni núna en síðustu
árin en ég held að þetta sé mun nær
því sem eðlilegt geti talist. Það væri
samt fínt að fá þurrk,“ sagði Árni og
hélt áfram að spila á nikkuna fyrir
gesti. Hann sagði yfirleitt góðan hug
í vestfirskum bændum og þeir sem
væru í ferðaþjónustunni líka hefðu
mikið að gera. Þar væri greinilega
mikill vöxtur. HKr.
Kúabændur á Höfða í Dýrafirði mættu með margvíslegan varning á Bændadag:
Buðu upp á ábrystir með vanillu- og súkkulaðibragði
Sighvatur Jón Þórarinsson
og Kristín Álfheiður.
Árni Brynjólfsson, kúa- og músíkbóndi á Vöðlum. Myndir / HKr.