Bændablaðið - 18.07.2013, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013
Í Næfurholti búa þau Ófeigur
Ófeigsson og Halldóra Hauks-
dóttir ásamt sonum sínum Hjalta
og Geir. Ófeigur er fæddur
og uppalinn í Næfurholti en
Halldóra kom þangað 1986.
Býli? Næfurholt.
Staðsett í sveit? Efsti bær á
Rangárvöllum.
Ábúendur? Ófeigur Ófeigsson og
Halldóra Hauksdóttir.
Stærð jarðar? Á milli 6 og 7.000
hektarar.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
430 kindur, tvær kýr, tveir kálfar,
tveir hestar, 4 hundar, einn köttur
og 12 hænur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það er mjög árstíðabundið, nú er
verið að klára flagvinnu og verið í
girðingarvinnu.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast
er sauðburður, heyskapur og
smalamennska, þá sérstaklega snatt
leitir, annars er flest skemmtilegt
þegar vel gengur. Leiðinlegast er
að taka til eftir sauðburð og þess
háttar.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Meiri gróður og betri
bústofn.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Svo sem ekki
mikla.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni?
Eflaust vel.
Hvar teljið þið helstu tækifærin
í útflutningi íslenskra búvara?
Í flestum greinum, og ekki síst í
lambakjöti ef öfgar í beitarmálum
loka ekki allt sauðfé inni í hólfum
allt sumarið með tilheyrandi
lyfjagjöfum, þá getum við hætt að
tala um sérstöðu og hreinleika.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Brauð, ostur, smjör, rjómi og
tómatsósa.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakótelettur með
brúnuðum kartöflum og brúnni sósu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Ekkert eitt sem stendur
upp úr, en mörg eftirminnileg atvik.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Hamborgarar slá alltaf í gegn en hér
er uppskrift að „smáborgurum“
sem eru heppilegur fingramatur.
Það er tilvalið að velja brakandi
ferskt íslenskt grænmeti nú þegar
uppskerutíminn er fram undan.
Glóðarsteiktir smáborgarar
8 stk. 40 g hamborgarar hnoðaðir úr úrvals
nautakjöti (rúmlega 300 g af hakki). Það er
líka kjörið að nota kjúklingakjöt.
Brie-ostur, skorinn í sneiðar
8 stk. lítil hamborgarabrauð eða
út stungnir brauðhringir
4 msk. sýrður rjómi
Tómatsulta eða salsa
Basilíkulauf
Salatblað, tómatur, gúrka eða paprika
(notið hugmyndaflugið!)
Hamborgarakrydd
Aðferð:
Skiptið hakkinu í 8 jafn stórar
kúlur. Fletjið hverja kúlu út á
vaxpappír svo hún verði um 6
cm að þvermáli og 6 til 7 mm á
þykkt. Gott er að frysta borgarana
í a.m.k. klukkustund (það kemur
í veg fyrir að þeir detti í sundur
við steikingu).
Setjið hálffrosnu borgarana á
pönnuna (eða grillið). Eftir 20
sekúndur, þrýstið þeim niður með
steikarspaða og kryddið. Snúið
við og leggið ostsneiðar ofan á
rétt í lokin.
Raðið grænmeti og basilíku-
laufum á borgarann ásamt sýrða
rjómanum og tómatsultunni.
Hamborgarakrydd
4 msk. salt
1 tsk. malaður svartur pipar
2 stk. stjörnuanís (mulinn í mortél)
¼ tsk. laukduft
Hrært saman og sett í kryddstauk
Góð hamborgararáð
Mikilvægt er að hita grillið vel
til að loka safann inni og halda
bragðgæðunum. Prófið sýrðan
rjóma eða jógúrtsósu í staðinn
fyrir majonessósur. – Smáborgarar
eru skemmtilegur partímatur!
Brakandi hamborgarasmábrauð
200 g volgt vatn
30 g smjör
1 stórt egg
400 g hveiti, gott að setja smá af rúg-
mjöli með
50 g sykur eða pálmasykur og hunang
1¼ tsk. salt
1 matskeið þurrger
40 g bráðið smjör (til að pensla fyrir
bakstur)
Aðferð:
Blandið og hnoðið allt saman -
gerið mjúkt og slétt deig.
Látið hefast undir stykki í 1 til
2 klst. eða þar til deigið hefur
næstum tvöfaldast.
Skiptið deiginu í 8 eða 12 bita.
Mótið hvert stykki í bolta, setjið
á smjörpappír og látið hefast í um
1 klst.
Penslið með bræddu smjöri.
Bakið í bollur í forhituðum 175
°C ofni í 15 til 18 mínútur, þar
til brauðið verður gullið/brúnt
á litinn. Fjarlægið brauðið
úr ofninum og penslið með
hinum hlutanum af bræddu
smjörinu. Þetta mun gefa
hamborgarabrauðinu glans og
raka. Kælið og framreiðið.
Hollur og skemmtilegur skyndibiti
MATARKRÓKURINN BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Næfurholt
Lilli (traktorinn) að binda inni á sandi.