Bændablaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 18. júlí 2013
1 4 3 7
3 2 6
6 4 7
2 8
3 1 4
5
8 6
4
1 4 3
6 2 9
6 5 3
5 1 8 6
8 9 5
1 7
8 3 4 1
2 4 82
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama
talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
og heldur ekki innan hvers
reits sem afmarkaður er af
sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
Ríta Rún Kristjánsdóttir er 12
ára nemandi í Borgarnesi. Henni
finnst grjónagrauturinn hennar
ömmu bestur.
Nafn: Ríta Rún Kristjánsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Borgarnesi.
Skóli: Grunnskólinn í Borgarnesi.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Nátturufræði og íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur-
inn hennar ömmu.
Uppáhaldshljómsveit: Retro
Stefson.
Uppáhaldskvikmynd: Mýrin.
Fyrsta minningin þín? Þær eru svo
margar.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir í tölvu? Horfa á þætti.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Snyrtifræðingur, vinna
á gróðrarstöð eða á leikskóla.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Vera í stuði með vin-
konum mínum.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú hefur gert? Ekkert, það er allt
skemmtilegt.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt
í sumar? Vinna hjá ömmu og afa.
Einfaldar
grifflur
– fyrir 8–12 ára
PRJÓNAHORNIÐ
Efni: Basak frá Kartopa nr. 733
Sokkaprjónar nr. 4,5
Heklunál nr. 3,5
Fitjið upp 32 l og prjónið stroff, 2 l sléttar og 2 l
brugðnar, alls 15 umf.
Aukið út um 4 l og prjónið 12 umf. slétt.
Í 13. umferð þarf að gera ráð fyrir þumlinum. Þá
byrjið þið á að prjóna 1 l og prjónið svo næstu
5 l með aukabandi. Prjónið svo aftur yfir þær
lykkjur með aðallitnum. Klárið hringinn og
prjónið áfram 11 umf. slétt. Fellið af og heklið
fasta hekl í hverja lykkju. Heklið svo skeljahekl
til skrauts (6 skeljar).
Skeljahekl:
Heklið 2 stuðla, 2 loftlykkjur og aftur 2
stuðla í sömu fastalykkjuna. Hoppið svo
yfir 2 l og heklið 1 fastalykkju, hoppið aftur
yfir 2 l og endurtakið skelina.
Þumall:
Takið bandið úr og takið upp 10 l. Prjónið 6
umf. slétt og fellið svo af. Heklið fastalykkjur
í hverja prjónaða lykkju.
Gangið frá endum og prjónið hina griffluna
eins nema þegar kemur að því að staðsetja
þumalinn. Þá þarf að prjóna 12 l áður en
aukabandið er prjónað í.
Þessar grifflur ættu flinkir prjónakrakkar að ráða
við að prjóna sjálfir ef þeir fá svolitla aðstoð með
að hekla og gera þumalinn.
Gangi ykkur vel. Helena Eiríksdóttir.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ætla að verða snyrtifræðingur, vinna
á gróðrarstöð eða leikskóla
9
9
Létt
8 9
3 5
5 7 4
1 6 3
4 8 3 1 2
6 4 1
2 5 7
2
9 4
ÞungMiðlungs
6
Amma mús – handavinnuhús
Prjónagarn-
og bækur
frá Isager